
Þjóðadeild karla í fótbolta

Reiði í Danmörku: Sagður skvapaður og eins og barn með lömunarveiki
Mikil reiði er í Danmörku vegna leiðara í Ekstra Bladet þar sem landsliðsmarkvörðurinn Kasper Schmeichel er sagður „þungur og mjúkholda“, og kýla boltann í burtu eins og „barn með lömunarveiki“.

„Ekki pæla í því sem aðeins of feitur fyrrverandi leikmaður segir“
Spænska ungstirnið Lamine Yamal togaði stuttbuxurnar sínar aðeins niður eftir sigurinn gegn Hollandi í 8-liða úrslitum Þjóðadeildarinnar í fyrrakvöld, til að skjóta á Hollendinginn Rafael van der Vaart.

„Aron í svona stóru hlutverki, það er búið“
Sérfræðingur Stöðvar 2 Sports Albert Brynjar Ingason segir að ferill nýráðins landsliðsþjálfara fari illa af stað og að hann þurfi núna að læra hratt.

„Eru sex mörk ekki nóg til að þú haldir kjafti?“
Eftir að hafa tapað illa með Ungverjum gegn Tyrkjum í umspili um sæti í A-deild Þjóðadeildar ákvað Liverpool-stjarnan Dominik Szoboszlai samt að skjóta á hinn tvítuga Arda Güler sem nú segir Szoboszlai algjöran brandara.

Boltastrákurinn orðinn þjóðhetja og fer frítt á undanúrslitin
Þökk sé snöggum þankagangi er fimmtán ára gamli boltastrákurinn Noel Urbaniak orðin þjóðhetja í Þýskalandi, eftir að hafa átt hlut í marki gegn Ítalíu í gærkvöldi. Honum var síðan kippt aftur niður á jörðina í morgun þegar hann hóf störf sem starfsmaður í kebabverksmiðju, en getur látið sér hlakka til undanúrslitaleiksins sem hann fer frítt á.

Landsliðsþjálfarinn gagnrýndur: „Þetta eru klár mistök hjá Arnari“
„Þetta er vont,“ var það fyrsta sem Lárus Orri Sigurðsson sagði eftir tapið gegn Kósovó í gær. Hann segir Arnar Gunnlaugsson hafa gert hrein og klár mistök með „ósanngjörnu“ vali sínu á byrjunarliði þar sem leikmenn léku í stöðum sem þeir þekkja ekki.

Fékk fund með Heimi og hló með honum eftir markið
Adam Idah innsiglaði sigur Írlands í einvíginu við Búlgaríu, í umspilinu um sæti í B-deild Þjóðadeildar UEFA í fótbolta. Hann hafði fengið fund með Heimi Hallgrímssyni í von um að spila meira og saman glöddust þeir í gærkvöld.

Frakkland verður með Íslandi í riðli
Frakkland verður með Íslandi í riðli í undankeppni heimsmeistaramótsins 2026. Það varð ljóst eftir sigur liðsins í vítaspyrnukeppni gegn Króatíu, í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar.

Með skýr skilaboð til Arons og Gylfa: Hættið á meðan þið getið gert það sjálfir
„Þú hefur bara visst mikinn tíma til að ákveða hvenær þú hættir í landsliðinu. Á endanum verður það bara ákveðið fyrir þig,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson þegar hann fór yfir frammistöðu Arons Einars Gunnarssonar gegn Kósovó. Hann hvatti Aron og fleiri af gullkynslóðinni til að hætta sjálfir áður en það yrði of seint.

„Ætla ekki að standa hérna og afsaka neitt“
„Þetta var ekki gott. Við erum undir í flestum atriðum leiksins og Kósovó gerði bara vel. Þeir áttu skilið sigurinn og unnu þetta einvígi nokkuð sanngjarnt,“ segir Aron Einar Gunnarsson eftir að Ísland féll niður í C-deild Þjóðadeildar í kvöld.

„Verður að vera þolinmæði og verður að vera bjartsýni“
Orri Steinn Óskarsson skoraði eina mark íslenska karlalandsliðsins í fótbolta er liðið mátti þola 1-3 tap gegn Kósovó í Þjóðadeild UEFA í kvöld.

„Horfi enn þá mjög jákvæður á framhaldið“
„Mér fannst þeir vera yfir í flestöllu af þessu einfalda. Keyrðu svolítið yfir okkur á því. Tilfinningarnar eru ömurlegar,“ segir Stefán Teitur Þórðarson sem óvænt lék sem miðvörður í fyrri hálfleik gegn Kósovó í kvöld.

„Á báðum endum vallarins ekki nógu góðir“
Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var eðlilega súr og svekktur eftir 3-1 tap Íslands gegn Kósovó í Þjóðadeild UEFA í kvöld. Tapið þýðir að Ísland er fallið úr B-deild.

Heimir stýrði til sigurs og Írland heldur sér uppi
Heimir Hallgrímsson stýrði sínum mönnum í írska landsliðinu til 4-2 sigurs í umspilseinvígi gegn Búlgaríu. Írland heldur þar með sæti sínu í B-deild Þjóðadeildarinnar en Búlgaría situr áfram í C-deildinni.

Einkunnir Íslands: Martraðarinnkoma og fall úr B-deild
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 1-3 tap er liðið tók á móti Kósovó á óhefðbundnum heimavelli Íslands í umspili Þjóðadeildar UEFA í kvöld.

„Datt aldrei í hug að Arnar yrði lélegri en Arnar“
Íslendingar tjáðu sig tæpitungulaust um tapið slæma gegn Kósovó á Twitter, sem gengur nú undir nafninu X. Almennt mátti greina ansi mikla óánægju, þá sérstaklega í garð landsliðsþjálfarans sem lagði leikinn upp á áhugaverðan hátt.

Umfjöllun: Ísland - Kósovó 1-3 | Aldrei verið á verri stað
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er fallið niður í C-deild Þjóðadeildar UEFA eftir 3-1 tap gegn Kósovó í heimaleik Íslands í Murcia á Spáni í kvöld. Ísland tapaði því einvíginu 5-2 og það verða Kósovóar sem spila í B-deild keppninnar í fyrsta sinn, haustið 2026.

Sjáðu mörkin úr leik Íslands og Kósovó
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tók á móti Kósovó á óhefðbundnum heimavelli Íslands í Þjóðadeild UEFA í knattspyrnu.

Sex breytingar á byrjunarliðinu
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, gerir sex breytingar á byrjunarliðinu fyrir seinni leikinn gegn Kósovó í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Tveir Skagamenn sem spila vanalega á miðjunni eru í vörninni.

Íslenskur fjöldasöngur í Murcia
Fjöldi Íslendinga er mættur til Murcia til að styðja karlalandsliðið í fótbolta í leiknum gegn Kósovó í dag.

Gummi Ben og Kjartan Henry hituðu upp í Murcia
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Kósovó í seinni leik liðanna í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Leikið er í Murcia á Spáni.

Ronaldo alveg sama um eftirhermu Højlunds
Cristiano Ronaldo, markahæsta landsliðsmanni allra tíma, er alveg sama þótt Rasmus Højlund hafi hermt eftir einkennisfagni sínu í leik Danmerkur og Portúgals á dögunum.

Tvær ólíkar íþróttir heima og úti: „Viljum vera aggressívari og taka meiri sénsa“
„Auðvitað hefðum við viljað betri úrslit en það er enginn heimsendir í tveggja leikja einvígi. Við erum nokkuð brattir“ segir landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson, sem mun nálgast leikinn í dag eins og „alvöru heimaleik“ þrátt fyrir að vera víðs fjarri Laugardalnum. Ísland þarf að sækja til sigurs eftir 2-1 tap gegn Kósovó í fyrri leiknum.

Svona var blaðamannafundurinn fyrir seinni leikinn gegn Kósovó
Vísir var með beina útsendingu klukkan hálf sex frá blaðamannafundi íslenska landsliðsins fyrir leik morgundagsins gegn Kósovó.

Svekktur með sitt hlutskipti en gengur í takt með hópnum
Stefán Teitur Þórðarson var svekktur með að byrja ekki fyrri leik Íslands gegn Kósovó í umspili fyrir sæti í B-deildar Þjóðadeildarinnar í fótbolta líkt og hver einasti leikmaður í landsliðinu hefði verið. Hann metur möguleikana fyrir seinni leikinn mikla og segir að samstaða hópsins sé það sem geti skilað liðinu langt.

Valkostum Arnars fjölgar fyrir seinni leikinn mikilvæga
Valgeir Lunddal er klár í að byrja seinni leikinn gegn Kósovó á morgun í umspili fyrir sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar eftir að hafa hrist af sér smávægileg meiðsli sem héldu honum frá keppni í fyrri leiknum.

Meiddur í fimmta sinn á tímabilinu
Ítalski landsliðsmaðurinn Riccardo Calafiori, leikmaður Arsenal, er mættur aftur til Lundúna eftir að hafa meiðst í leik gegn Þýskalandi í gærkvöldi.

Skoraði í fyrsta landsleiknum
England vann 2-0 á Wembley gegn Albaníu í undankeppni HM 2026. Þetta var fyrsti leikur Englendinga undir stjórn Tomas Tuchel. Hinn átján ára gamli Myles Lewis-Skelly skoraði opnunarmarkið, í sínum fyrsta landsleik, Harry Kane bætti svo við í seinni hálfleik.

„Verðum að átta okkur á því að við fengum tvo daga“
Sverrir Ingi Ingason segir leikkerfið sem nýi landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson leggur upp með krefjast mikils af leikmönnum. Frammistaðan í gær hafi verið góð í ljósi þess að liðið fékk bara tvo daga til að slípa sig saman. Góð frammistaða sé mikilvægari en sigur í einvíginu.

Jóhann Berg tók fullan þátt í æfingu dagsins
Eftir að hafa verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn tók Jóhann Berg Guðmundsson fullan þátt í æfingu dagsins.