Búið að opna ESB pakkann: Sambandsríkið Evrópa og endalok íslensks fullveldis Um árabil hefur sá frasi verið tugginn í íslenskri umræðu að við eigum að „kíkja í pakkann“ varðandi aðild að Evrópusambandinu. Röksemdin hefur verið sú að við getum alltaf hafnað samningnum ef hann hentar okkur ekki. Skoðun 4.2.2026 12:02
Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Stuðningur þjóðarinnar við veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefur aukist frá því í fyrra en ríflega 78% segjast hlynnt aðild Íslands að bandalaginu. Nokkur hreyfing er einnig á afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar, en þjóðin skiptist nokkurn vegin í tvennt í afstöðu sinni til málsins, þar sem 42% segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB og sama hlutfall er andvígt. Innlent 4.2.2026 08:43
Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist hafa skilning á því að fólki finnist erfitt að greiða hærri gjöld. Það sé fúlt að verðbólga hafi hækkað fyrir helgi en bendir á að undirliggjandi verðbólga sé stöðug. Hún segir fyrsta skref að afnámi verðtryggingar verða stigið um næstu áramót. Viðskipti innlent 2.2.2026 09:50
Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Forsætisráðherra Slóvakía og ein helsta klappstýra Donalds Trump í Evrópu er sagður hafa verið sleginn yfir því hvernig bandaríski forsetinn talaði til hans og sálarástandi hans á dögunum. Trump hafi virst „hættulegur“. Ráðherrann hafnar fréttum af meintum ummælum hans. Erlent 28. janúar 2026 13:42
Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður og þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir í svari til Dags B. Eggertssonar að þrátt fyrir að hún hafi fyrir tólf árum verið hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu sé það ekki staðan í dag. Innlent 28. janúar 2026 09:09
„Móðir allra samninga“ Nýr fríverslunarsamningur á milli Evrópusambandsins og Indlands er sagður munu leiða til þess að útflutningur aðildarríkjanna til Indlands mun tvöfaldast fyrir árið 2032. Næstum allir tollar verða afnumdir eða lækkaðir verulega, sem mun spara evrópskum fyrirtækjum fjóra milljarða evra. Erlent 27. janúar 2026 11:46
Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Fulltrúar Evrópusambandsins og Indlands hafa lagt lokahönd á fríverslunarsamning sem hefur verið í smíðum, með hléum, í nærri tvo áratugi. Báðir aðilar eru sagðir freista þess að styrkja tengslin sín á milli og við önnur ríki heims, meðal annars vegna óútreiknanlegrar framgöngu Bandaríkjanna á alþjóðasviðinu. Erlent 27. janúar 2026 07:42
Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. Erlent 26. janúar 2026 23:01
„Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Útlit er fyrir að ákveðinn vendipunktur hafi orðið á sambandi Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þjóðarleiðtogar og embættismenn í Evrópu eru sagðir líta á tilraunir Trumps til að kúga Evrópu með tollum og hótunum til að eignast Grænland marka tímamót. Erlent 24. janúar 2026 11:58
Mótmæli bænda í ESB náðu eyrum þingsins í Strassborg Samtök bænda og samvinnufélaga bænda í aðildarlöndum ESB, Copa-Cogeca, hafa fylgt fast eftir mótmælunum vegna Mercosur-samninganna. Skoðun 23. janúar 2026 16:31
Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, gagnrýndi ríki Evrópu og sagði ráðamenn heimsálfunnar skorta pólitískan vilja til að standa í hárinu á Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann kallaði eftir alvöru aðgerðum frá Evrópu og aukinni samstöðu, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 22. janúar 2026 15:32
„Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Donald Trump Bandaríkjaforseti er hættur við að leggja refsitolla á Evrópu vegna Grænlands. Hann segist hafa átt góðan fund með Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og þar hafi þeir náð saman um „ramma framtíðarsamkomulags varðandi Grænland og raunar alls heimsskautsins.“ Erlent 21. janúar 2026 19:47
Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Lykilstjórnendur hjá Vélfagi hafa unnið að því að halda starfsemi gangandi í nýju félagi með því að kaupa búnað þess ódýrt. Þá hafa þeir fjarlægt tölvur úr húsnæði fyrirtækisins sem innihalda teikningar af vélum. Nokkrir starfs- og stjórnarmenn Vélfags voru handteknir í aðgerðum saksóknara í dag. Innlent 21. janúar 2026 15:45
Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Mikil spenna hefur ríkt milli Bandaríkjanna og ríkja Evrópu vegna ásælni Trumps í Grænland og var ræðu hans á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins því beðið með mikilli eftirvæntingu í dag. Þar sagðist hann verða að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ en nokkrum tímum síðar mátti greina meiri sáttatón hjá Bandaríkjaforseta. Erlent 21. janúar 2026 09:39
Hreint ekki eins og atvinnuviðtal Mér finnst einhvern veginn eins og þeir sem vilja að við göngum í Evrópusambandið ættu öðrum fremur að vera með það á hreinu hvers konar ferli fer í gang þegar ríki sækir um inngöngu í sambandið. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, er það hins vegar greinilega ekki. Nema hann tali gegn betri vitund. Skoðun 21. janúar 2026 07:33
Telur Trump gera mistök Grænlenska landsstjórnin telur ólíklegt að Bandaríkjamenn beiti hervaldi til að leggja Grænland undir sig. Þjóðin þurfi þó að vera undirbúin fyrir óvæntar vendingar í samvinnu við aðrar þjóðir. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir hótanir Bandaríkjanna um tolla á lönd sem styðja Grænland, mistök. Erlent 20. janúar 2026 22:54
Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Grænlendingar eru að ganga í gegnum erfiða tíma en ólíklegt er að Bandaríkjamenn muni beita hervaldi til að leggja Grænland undir sig. Þjóðin þarf þó að vera undirbúin fyrir hvað sem er, í samvinnu við Dani, Evrópusambandið og aðra bandamenn. Erlent 20. janúar 2026 14:19
Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, dregur í efa að Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sé treystandi. Hann hafi samþykkt í fyrra að beita meðlimi Evrópusambandsins ekki frekari tollum en ætli sér þrátt fyrir það að setja tolla á nokkur ríki Evrópu í tengslum við hótanir hans í garð Grænlands. Erlent 20. janúar 2026 13:45
Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú sögð skoða hvort hægt sé að banna snjallforrit sem byggja á gervigreind sem hægt er að nota til þess að búa til falsaðar nektarmyndir af fólki. Samfélagsmiðlinn X hefur legið undir ámæli fyrir að framleiða slíkar myndir af börnum og konum. Erlent 19. janúar 2026 15:55
Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins hefur ákveðið að kalla saman ráðið vegna hótana Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er varða innlimun Grænlands. Trump boðaði í gær tolla á átta NATO-ríki sem höfðu sent hermenn til landsins. Erlent 18. janúar 2026 20:41
Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, segist hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseta vegna „öryggisástandsins“ á Grænlandi. Rutte segist hlakka til að sjá Trump á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsstofnunarinnar (World Economic Forum) sem hefst á morgun. Erlent 18. janúar 2026 18:14
Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Löndin sem Trump hefur hótað háum tollum gangi þau ekki að óskum hans um að styðja innlimun hans á Grænlandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu. Þau segjast tilbúin til viðræðna en að þeim verði ekki hnikað hvað fullveldi þeirra varðar. Erlent 18. janúar 2026 13:58
Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Sendiherrar Evrópusambandsins koma saman á neyðarfundi seinna í dag vegna Grænlandstolla Bandaríkjaforseta. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir samband Bandaríkjanna og Evrópu aldrei hafa verið verra. Hún útilokar ekki að Ísland bætist á lista forsetans. Innlent 18. janúar 2026 12:56
Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Emmanuel Macron, forseti Frakklands, kallar eftir því að Evrópusambandið beiti „ofurvopni“ sínu gegn Bandaríkjunum vegna aðgerða Donalds Trump varðandi Grænland. Utanríkisráðherra Danmerkur segir erfitt að átta sig á Bandaríkjamönnum og forsætisráherra Ítalíu segir Bandaríkjamenn ekki skilja Evrópumenn. Erlent 18. janúar 2026 12:10