Facebook
1 2 3 4 5 6 … 13 ›
Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Gunnar Helgason er á rannsóknarferðalagi um Wales fyrir nýjan furðusagnaflokk sinn og hefur deilt myndböndum af vettvangi á Facebook. Deilingarstillingar miðilsins hafa strítt höfundinum og færslurnar ratað í ýmsar óviðkomandi grúppur, svo sem íbúahóp Grafarholts og Úlfarsárdals. Höfundurinn kann engar skýringar á málinu og kennir Mark Zuckerberg um klúðrið. Lífið 22.10.2026 12:15
Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Í síðustu viku hélt hópur fornleifafræðinga til afskekktrar eyjar í Kyrrahafi. Vonuðust þeir til að leysa eina stærstu ráðgátu flugsögunnar: Hvað varð um Ameliu Earhart, sem hvarf sporlaust árið 1937 er hún reyndi að fljúga umhverfis jörðina? Unnendur hulinna leyndardóma þurfa þó ekki að örvænta. Dularfullur hlutur, sem hafði sést á gervihnattarmynd af lóni á eyjunni, reyndist ekki vera flugvél heldur trjábolir. Lífið 22.10.2026 07:01
„Þetta er ákall“ Mæður og sérfræðingar í stafrænni velferð segja sig hafa verið knúnar til þess að kalla eftir því að bandaríska kvikmyndin Social Reckoning verði sýnd hér á landi. Hætt hefur verið við sýningar myndarinnar og segja þær það sæta furðu, þörf sé á vitundarvakningu um samfélagsmiðla sem séu hannaðir til þess að vera ávanabindandi og séu skaðlegir ungmennum. Innlent 21.10.2026 23:00
Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Bandaríska samfélagsmiðlarisanum Meta hefur verið gert að greiða sekt að andvirði 25 milljarða Bandaríkjadollara eða um þrjú þúsund milljarða króna vegna þess hvernig fyrirtækið laug um meðferð þess á gögnum notenda samfélagsmiðilsins Facebook. Um er að ræða stærstu sekt sem fyrirtækið hefur fengið. Viðskipti erlent 21.10.2026 21:32
Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Mikil umræða kviknaði á Facebook um helgina um ítök og áhrif breska auðjöfursins Jims Ratcliffe sem hefur keypt tugi jarða á Norðausturlandi á síðustu áratugum. Sló í brýnu milli veiði- og tónlistarmannanna Bubba Morthens og Pálma Gunnarssonar sem voru ósammála um Ratcliffe og áætlanir hans. Lífið 19.10.2026 11:40
Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Kvikmyndin The Social Reckoning, sem fjallar um stóra Facebook-lekann árið 2021 sem afhjúpaði varhugaverða stjórnunarhætti fyrirtækisins, hefur fengið dræmar viðtökur hjá bæði gagnrýnendum og áhorfendum. Viðtökurnar hafa verið svo dræmar að hætt var við sýningu á kvikmyndinni á Íslandi, um þremur vikum fyrir frumsýningu. Bíó og sjónvarp 16.10.2026 13:12
Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Tímabilið þar sem lundapysjum sem hafa rambað inn á byggt ból er bjargað og þeim sleppt út á sjó stendur sem hæst um þessar mundir. Langflestar pysjur finnast í Vestamannaeyjum og hefur þar verið útbúið sérstakt sleppisvæði en í það minnsta einni lundapysju hefur verið bjargað af götum Reykjavíkur þetta árið. Innlent 26.8.2026 22:59
Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Færsla þar sem æðruleysisbæninni hafði verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni. Innlent 16.8.2026 22:33
Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Stjórnandi Mæðra tips! á Facebook segist reglulega sæta hótunum frá ósáttum konum eða mönnum tengdum þeim vegna nafnlausra færsla í hópnum. Hún gefur ekki upp hver stendur á bak við færslurnar nema lögregla banki upp á. Aðeins færslur sem virkilega kalli á nafnleysi fái að standa. Innlent 30.7.2026 08:02
Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Facebook og tengdir miðlar á borð við Instagram liggur niðri. Vefútgáfa miðlanna er óaðgengileg. Innlent 19.7.2026 08:57
Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi en undirbúningur hátíðarinnar hefur verið mikið ræddur síðastliðnar vikur. Tekist hefur verið á um hvort að skipulag hafi verið með sem bestum hætti en meðal þeirra sem telja svo vera er starfshópur Lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 22.6.2026 20:10
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. Lífið 30.4.2026 07:00
Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Áhrifavaldarnir Brittany og Jake Frink kalla sig The Venture Seekers á samfélagsmiðlum þar sem þau tjá ást sína á Íslandi í vinsælum myndskeiðum en Brittany segir „þetta reddast“-viðhorf Íslendinga eitt það mikilvægasta sem þau hafi tekið með sér héðan. Lífið 18.4.2026 07:02
Helmingur hefur áhyggjur af áróðursherferðum erlendra ríkja Tæpur helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af áróðursherferðum erlendra ríkja hér á landi og hefur mikill meirihluti orðið var við þær, og sérstaklega á Facebook. Helmingur segist vel undirbúinn til þess að sjá í gegnum áróðursherferðir erlendra ríkja hér á landi og karlmenn eru líklegri en konur til að telja sig geta það. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar og Netvís sem birtir lista yfir óvinsælustu hópa landsins. Innlent 10.4.2026 09:19
Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. Lífið 9.4.2026 07:00
Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, bar í gær vitni í fyrsta sinn í dómsmáli þar sem fjallað er um ávanabindandi samfélagsmiðla og tækni. Réttarhöldin gætu haft mikil áhrif á rekstur samfélagsmiðla á næstu árum. Viðskipti erlent 19.2.2026 13:55
Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. Lífið 19.2.2026 07:00
Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Norsk stjórnvöld skoða að setja á samfélagsmiðlabann fyrir börn undir fimmtán ára aldri. Þau feta þar með í fótspor Dana og Ástrala. Erlent 27.12.2025 10:01
Messenger-forritið heyrir sögunni til Meta hætti fyrr í vikunni stuðningi við forrit Facebook Messenger í tölvu fyrir bæði Windows og macOS. Í forritinu var hægt að spjalla við vini án þess að opna Facebook. Enn er hægt að nota smáforritið í snjallsíma en ætli fólk að nota Messenger í tölvu þarf það að vera í gegnum Facebook eða Messenger.com. Í umfjöllun TechCrunch segir að líklega sé Meta að samþætta Messenger og Facebook aftur til að sporna við minni notkun á Facebook. Viðskipti erlent 17.12.2025 16:35
Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram Það er ekki hægt annað en að hlæja þegar Steinar Þór Ólafsson, samskiptasérfræðingur, rifjar upp árdaga Facebook. Atvinnulíf 8.12.2025 07:01
Tilkynna yngri en 16 ára að reikningum að Facebook og Instagram verði lokað Unglingar yngri en 16 ára í Ástralíu hafa nú fengið tilkynningu um að aðgöngum þeirra á Facebook, Instagram og Threads verði lokað vegna banns við notkun samfélagsmiðla fyrir yngri en sextán ára sem tekur gildi í landinu í desember. Erlent 19.11.2025 19:15
Fann engin önnur ráð en „að ganga í söfnuð Votta Jehóva“ Brynjar Níelsson, héraðsdómari og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir aðventuna reyna mest á hjónabandið. Hann segist því ganga í Votta Jehóva á hverju hausti til að losna við jólaundirbúninginn og skrái sig svo aftur í Þjóðkirkjuna eftir áramót. Lífið 12.11.2025 13:59
Græða á tá og fingri á svikum og prettum Sérfræðingar Meta, sem rekur meðal annars samfélagsmiðlana Facebook og Instagram, áætla að um tíu prósent allra tekna félagsins í fyrra, 2024, séu til komnar vegna auglýsinga sem ganga út á að svindla á fólki eða selja ólöglegan varning. Notendur samfélagsmiðla Meta sjá um fimmtán milljarða slíkra auglýsinga á degi hverjum. Viðskipti erlent 6.11.2025 21:26
Hugleiki Dagssyni hent út af Facebook Hugleiki Dagssyni hefur verið hent út af Meta-aðgöngum sínum fyrir að brjóta reglur miðlanna. Hann veit ekki um hvaða mynd sé að ræða en spýtukallanekt viðrist fara fyrir brjóstið á algóritma Meta. Lífið 19.10.2025 15:01
Skammar vini sína: „Hættum Happy birthday á Facebook“ Óttar Kolbeinsson Proppé, verkefnastjóri hjá Almannarómi og fyrrverandi fréttamaður, þakkar vinum sínum fyrir afmæliskveðjurnar í tilefni 27 ára afmælis hans í síðustu viku en skammar um leið þá vini sína sem sendu honum kveðju á ensku. Menning 19.8.2025 17:02
Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Meta, móðurfélag Facebook og annarra samfélagsmiðla, sætir nú gagnrýni vegna reglna sem leyfa gervigreindarspjallmenni sínu Meta AI að eiga í rómantískum og lostafullum samtölum við börn. Viðskipti erlent 16.8.2025 10:40
Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Fésbókaryfirvöld hafa tjáð Hugleiki Dagssyni grínista að ef hann heldur áfram að birta klúrar skrítlur á 216 þúsund fylgjenda síðuna sína verði lokað á síðuna að eilífu. Hugleikur líkir gervigreindinni sem sigtar út efnið hans við barn sem skilji ekki muninn á kaldhæðni og alvöru. Lífið 13.8.2025 14:18
Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Forsvarsmenn samfélagsmiðlafyrirtækisins Meta, sem rekur meðal annars Facebook, Instagram og aðra samfélagsmiðla, birtu í gær fjórðungsuppgjör sem þykir mjög jákvætt. Fyrirtækið hagnaðist um rúma átján milljarða dala á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Viðskipti erlent 31.7.2025 09:49
Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann „Kveikjan að öllu þessu var í raun og veru mín eigin líðan,“ segir Sara Líf Guðjónsdóttir, laganemi og flugfreyja, um færslu sem hún birti á Facebook hópinn Mæðratips og hlaut mikla athygli. Þar bauð Sara mæðrum sem hafa einangrast eða finna fyrir einmanaleika að vera með í opnum mömmuhóp og áður en hún vissi af höfðu yfir hundrað konur sent henni skilaboð. Lífið 22.7.2025 20:01
#blessmeta - önnur grein Maria Ressa hlaut Friðarverðlaun Nóbels árið 2021 fyrir hugrekki í blaðamennsku. Hún er frá Filippseyjum, ólst upp í Bandaríkjunum og gerðist síðan blaðamaður í heimalandi sínu. Bók hennar, „Hvernig veita má einræðisherra mótstöðu“ (How to stand up to a dictator), er reynslusaga úr einræðisríki. Skoðun 24.5.2025 10:02