Fósturbörn

Fréttamynd

„Eftir­lit sveitar­fé­laga með fóstur­börnum er brotið“

Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið. Þetta segir formaður Félags fósturforeldra. Lausnin sé ekki endilega að teikna upp nýtt kerfi utan um fósturbörn heldur miklu frekar að stjórnvöld tryggi að verkefnum sveitarfélaga gagnvart fósturbörnum sé sinnt. Hann hefur fengið skilaboð og símtöl frá hátt í fjörutíu manns sem sé með brotna æsku eftir dvölina á Bakkakoti.

Innlent
Fréttamynd

Ekki sé lög­boðið eftir­lit með fimmtungi fóstur­barna

Formaður Félags fósturforeldra fer hörðum orðum um kerfi sem passa eigi upp á fósturbörn og -foreldra en framkvæmi ekki lögboðið eftirlit. Hann gefur lítið fyrir orð bæði forsætisráðherra og forstjóra Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um málefni fósturfjölskyldna. Könnun félagsins sýni fram á að ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturforeldra.

Innlent
Fréttamynd

Hræðast ekkert meira en að hann verði tekinn

Þau hafa alið hann upp, elskað, fætt og klætt frá því hann kom til þeirra rúmlega ársgamall. Nú er drengurinn á þriðja aldursári og þau hræðast ekkert meira en að hann verði tekinn frá þeim en kynmóðirin hefur alltaf barist fyrir því að fá hann til baka.

Lífið
Fréttamynd

Aldrei til matur, lyktuðu alltaf illa og urðu fyrir ofbeldi

Það var aldrei til matur á heimilinu, þær áttu aðeins fötin sem þær stóðu í, lyktuðu alltaf illa, voru lamdar af foreldrum sínum en móðir þeirra tók að lokum eigið líf. Þær sakna föður síns lítið og segja lífið betra án hans en með honum.

Lífið
Fréttamynd

Byggði upp traust og misnotaði hana síðan

Alexandra Rós Jankovic var erfiður unglingur og fáir réðu við hana. Að lokum var hún tekin af heimilinu. Í síðasta þætti af Fósturbörnum fengu áhorfendur Stöðvar 2 að heyra áhugaverða og erfiða sögu Alexöndru.

Lífið
Fréttamynd

Ég sá allt og heyrði allt

Alena Da Silva á að baki brotna æsku og tekur þátt í stofnun samtaka fósturbarna. Barnaverndaryfirvöld gripu seint inn í aðstæður hennar og Alena telur rétt barna til góðs og öruggs lífs of lítinn.

Lífið
Fréttamynd

Með dreng í varanlegu fóstri: „Ætla að drekkja þessu barni í ást“

"Ég var í jarðaför, kem út í bíl eftir erfidrykkjuna og ég held að það hafi verið svona 18 símtöl sem ég hafði misst af frá Andrési,“ segir Gunnlaugur Kristmundsson sem er með lítinn í varanlegu fóstri ásamt sambýlismanni sínum Andrési James Andréssyni en saman fóru þeir í gegnum ferlið með Sindra Sindrasyni í þættinum Fósturbörn á Stöð 2 í gærkvöldi.

Lífið
  • «
  • 1
  • 2