Fjölmiðlar
85 86 87 88 ›
Fjölgar í flugblaðaflórunni Pálmi Haraldsson og félagar hjá Iceland Express virðast vera að ná vopnum sínum eftir fáheyrðar hrakfarir síðasta árs. Í gær var tilkynnt um að þar á bæ hygðust menn feta í fótspor Flugfélags Íslands og Icelandair og hefja útgáfu nýs flugtímarits fyrir farþega. Í vélum Icelandair gefst fólki kostur á að lesa tímaritið Atlanta - sem Iceland Review sér um - og í innanlandsfluginu má glugga í Ský. Nýja blaðið í Express-vélunum heitir því viðeigandi nafni flyXpress og er gefið út af Birtíngi. Við stjórnvölinn er Hrund Þórsdóttir, sem einnig ritstýrir Mannlífi. Viðskipti innlent 23.9.2012 18:18
300.000 kr. miskabætur í Aratúnsmálinu Blaðamaður DV var dæmdur til að greiða íbúa í Aratúni 300.000 króna miskabætur fyrir ærumeiðingar og 800.000 kr í málskostnað í Hæstarétti í dag. Innlent 14.6.2012 16:55
Aratúnsmálið flutt fyrir Hæstarétti Málflutningur fór fram í svokölluðu Aratúnsmáli fyrir Hæstarétti í dag. Í málinu er blaðamaður DV, Jón Bjarki Magnússon, krafinn um bætur vegna umfjöllunar hans um nágrannaerjur í Aratúni. Innlent 4.6.2012 15:07
Skrifaði ummæli á dv.is um Aratúnsmálið - þarf að borga 500 þúsund Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu um sextugt til þess að greiða 500 þúsund krónur vegna ummæla sem hún skrifaði í athugasemdarkerfi á vefnum dv.is. Innlent 5.1.2012 13:38
Urðu fyrir þrýstingi stjórnmálamanna Stjórnmálamenn reyndu ítrekað að hafa áhrif á fréttaflutning fréttastofu Stöðvar 2 á fyrstu árum stöðvarinnar. Ráðherrar beittu sér fyrir því að einstakir fréttamenn yrðu reknir fyrir óþægilegan fréttaflutning. Innlent 6.11.2011 20:30
Nýr og spennandi fréttavefur Stúdentar og aðrir flykkjast á student.is sem er fréttavefur þar sem fjallað er um háskólalífið frá öllum hugsanlegum sjónarhornum. Vefurinn er hluti af lokaverkefni Díönu Daggar Víglundsdóttur meistarnema í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Lífið 26.2.2009 15:44
Jón Bjarki: Upptakan sýnir að Reynir er tvísaga Upptaka sem spiluð var í Kastsljósi í kvöld sýnir að Reynir Traustason, ritstjóri DV, er tvísaga, að mati Jóns Bjarka Magnússonar fyrrum blaðamanns DV. ,,Reynir heldur því fram í dag að ég sé að bulla að það hafi engir aðilar hafi reynt að stoppa fréttina en upptakan sýnir að þetta var ekki þannig." Það sé greinilegt að Reynir sé tvísaga. Innlent 15.12.2008 22:50
Þórhallur óttast ekki málsókn Reynis Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Sjónvarpsins og ritstjóri Kastljóss, segist ekki óttast hugsanlega málsókn Reynis Traustasonar, ritstjóra DV, í kjölfar þess að einkasamtal Reynis og Jóns var birt í Kastljósi fyrr í kvöld. Upptakan átti brýnt erindi til almennings, að mati Þórhalls. Innlent 15.12.2008 22:13
Íhugar málsókn gegn RÚV og fyrrum blaðamanni DV Reynir Traustason, annar af ritstjórum DV, segist vera að íhuga réttarstöðu sína gagnvart Ríkissjónvarpinu og Jóni Bjarka Magnússyni, fyrrum blaðamanni á DV, í kjölfar þess að einkasamtal Reynis og Jóns var birt í Kastljósi fyrr í kvöld. Innlent 15.12.2008 21:27
Reynir: Vorum grátbeðnir um að birta fréttina ekki Reynir Traustason, einn af ritstjórum DV, segir að ritstjórn blaðsins hafi verið grátbeðinn um að birta ekki frétt um Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóra Landsbankans í byrjun nóvember. Ákveðin öfl hafi viljað ,,stúta" blaðinu. Innlent 15.12.2008 19:42
Tjá sig ekki um vöruskipti RÚV Í áliti samkeppniseftirlitsins um stöðu og háttsemi RÚV á auglýsingamarkaði ljósvakamiðla, sem birt var á föstudag, kemur fram að RÚV hafi boðið birtingar á auglýsingum í skiptum fyrir vörur. Í ályktuninni er ekki útskýrt nánar hvers konar vöruskipti er um að ræða. Auglýsingastjóri RÚV vill ekki tjá sig um málið. Innlent 19.11.2008 22:12
Starfsmannafundur hjá RÚV á morgun Félag fréttamanna á Ríkisútvarpinu hélt fund í dag þar sem aðgerðir vegna komu nýs fréttastjóra Ríkisútvarpsins voru ræddar. Boðað hefur verið til starfsmannafundar í Ríkisútvarpinu á morgun. Innlent 30.3.2005 00:01
Útvarpsstjóri átti einn kost Fréttamenn RÚV ætla að fara fram á rökstuðning frá útvarpsstjóra vegna ráðningar nýs fréttastjóra. Heimildir innan Útvarpsins herma að útvarpsstjóri hafi metið það svo að þar sem enginn annar umsækjenda hafi komist á blað hjá útvarpsráði ætti hann þann kost einan í stöðunni að skipa Auðun Georg Ólafsson sem fréttastjóra. Innlent 11.3.2005 00:01
Taugatitringur innan Árvakurs Núverandi stjórnendur Morgunblaðsins og tengdir aðilar telja sig geta varist óvinveittri yfirtöku. Taugatitrings gætir meðal helstu hluthafa þessarar áttatíu og þriggja ára gömlu íslensku stofnunar og greinilegt að öll dýrin í skóginum eru ekki lengur vinir. Innlent 11.3.2005 00:01
Fréttamenn bíða viðbragða Stjórn Félags fréttamanna fór fram á fund vegna fréttastjóramálsins með Markúsi Erni Antonssyni útvarpsstjóra í gærmorgun en síðdegis varð ljóst að ekkert yrði af þeim í gær, að sögn Jóns Gunnars Grjetarssonar formanns Félags fréttamanna á RÚV. Hann sagði fréttamenn bíða viðbragða frá honum og Auðuni Georg Ólafssyni nýráðnum fréttastjóra. Innlent 11.3.2005 00:01
Talibanafemínistar gegn Bjössa Jör Björn Jörundur var að fá úr prentsmiðjunni 5. tölublaðið af bOGb. Hann tók við ritstjórn tímaritsins blautur á bak við eyrun. Nú er komin reynsla og í helgarblaði DV ræðir ritstjórinn það hversu erfitt getur reynst að kollvarpa hugmyndum fólks um að hann ritstýri klámblaði og árásir femínista á hendur sér. Menning 13.10.2005 15:09