Icelandair
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 50 ›
Nýjasta þota Airbus í krefjandi prófunum í hvassviðri í Keflavík Flugvélaframleiðandinn Airbus nýtti sér hvassviðrið á Íslandi í dag til flugprófana á nýjustu farþegaþotu sinni með því að lenda henni margsinnis í stífum hliðarvindi. Þetta er samskonar þota og ráðamenn Icelandair veðja á sem sína framtíðarvél. Innlent 10.10.2023 20:40
Þotan lögð af stað að sækja Íslendingana Flugvél Icelandair, sem utanríkisráðuneytið leigði til að sækja Íslendinga í Ísrael, er farin í loftið frá Keflavíkurflugvelli. Farkosturinn er Boeing 757-þotan TF-FIU, sem ber nafnið Hekla Aurora, en hún er máluð í litum norðurljósanna. Innlent 9.10.2023 11:15
Flytja hópinn til Jórdaníu og flogið þaðan til Íslands Um 120 manna hópur Íslendinga sem nú er staddur í Ísrael mun halda til Jórdaníu í dag og verður flogið með hópinn frá höfuðborginni Amman til Íslands í kvöld. Innlent 9.10.2023 08:11
Fleiri farþegar í september en á sama tíma í fyrra Icelandair flutti 416 þúsund farþega í september. Þeir voru átta prósentum fleiri en í sama mánuði í fyrra. Það sem af er ári hefur félagið flutt um 3,4 milljónir farþega, nítján prósentum fleiri en yfir sama tímabil í fyrra. Viðskipti innlent 6.10.2023 09:49
Halda upp á afmæli fyrstu stóru flugvélar Íslendinga Íslenskir flugáhugamenn undirbúa núna afmælisveislu fyrir flugvél. Ein ástsælasta flugvél landsins varð nefnilega áttræð í gær og verður tímamótunum fagnað í Flugsafni Íslands á Akureyri um næstu helgi. Innlent 2.10.2023 21:33
Metur Icelandair langt yfir markaðsgengi þótt aðstæður hafi versnað IFS mælir enn með kaupum í Icelandair í nýju verðmati sem birt var eftir að flugfélagið lækkaði afkomuspá sína í ljósi hækkandi eldsneytisverðs. Fáir innlendir hlutabréfasjóðir eru með hlutfallslega mikið af eignum sínum bundnum í bréfum flugfélagsins. Innherji 19.9.2023 13:36
Afkomuviðvörun Icelandair kom ekki á óvart eftir mikla hækkun á olíuverði Ekki átti að koma á óvart að afkomuspá Icelandair yrði færði niður í ljósi þess hve mikið olíuverð hefur hækkað að undanförnu. Það er enn útlit fyrir mikla eftirspurn eftir flugi, segir hlutabréfagreinandi IFS í samtali við Innherja, en markaðsvirði Icelandair hefur lækkað um þriðjung á tveimur mánuðum. Innherji 14.9.2023 16:10
Gunnar Már hættir hjá Icelandair Cargo Gunnar Már Sigurfinnsson hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu sem framkvæmdastjóri Icelandair Cargo og mun þar með stíga til hliðar úr framkvæmdastjórn Icelandair Group. Greint var frá því í gær að fraktstarfsemi félagsins hafi reynst erfið. Viðskipti innlent 14.9.2023 08:36
Færa niður afkomuspá Uppfærð afkomuspá Icelandair gerir ráð fyrir minni hagnaði á árinu en áður var búið að gera. Farþega- og leiguflugsstarfsemi félagsins skilar betri rekstarniðurstöðu en í fyrra en fraktstarfsemin hefur verið erfið. Viðskipti innlent 13.9.2023 22:29
Funheitar og föngulegar flugfreyjur Flugfreyjustarfið var lengi álitið kvennastarf sem einkenndist af glamúr, glæsileika og kynþokka. Konur eru enn í miklum meirihluta innan starfsstéttarinnar þrátt fyrir töluverða aukningu af karlmönnum síðastliðin ár. Starf flugfreyju er fyrst og fremst öryggisstarf. Lífið 10.9.2023 21:00
Barist um flugmenn á heimsvísu Barist er um flugmenn á heimsvísu og dæmi eru um að flugfélög þurfi að draga saman flugáætlanir þar sem ekki tekst manna áhafnir. Fjórtán flugmenn Play sögðu upp í gær eftir að hafa fengið atvinnutilboð hjá Icelandair. Viðskipti innlent 1.9.2023 13:06
Ekki ein uppsögn borist Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segir engan flugmann hafa sagt upp störfum nú fyrir mánaðamótin. Ef átján flugmenn myndu segja upp störfum á einu bretti yrði félagið að tilkynna það á markaði. Viðskipti innlent 31.8.2023 10:26
Dagskrá riðlast vegna seinkunar á flugi Flugi Icelandair frá Reykjavík til Egilsstaða seinkaði um eina og hálfa klukkustund í morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru um borð en sumarfundur ríkisstjórnarinnar fer fram á Egilsstöðum í dag. Reiknað er með því að matvælaráðherra tilkynni um ákvörðun sína varðandi hvalveiðar á fundinum. Innlent 31.8.2023 09:09
Losun frá flugi og siglingum jókst um 95 prósent eftir faraldurinn Útblástur gróðurhúsaloftegunda vegna alþjóðasamgangna frá Íslandi jókst um 95 prósent á milli ára í fyrra þegar ferðatakmörkunum eftir heimsfaraldurinn var aflétt. Losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda stóð svo gott sem í stað á milli ára í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Umhverfisstofnunar. Innlent 31.8.2023 08:59
Kvöldfundur vegna atvinnutilboðs Icelandair til átján flugmanna Play Átján flugmenn Play sem voru á biðlista eftir störfum hjá Icelandair fengu símtal í gær þar sem þeim var boðið að hefja störf hjá félaginu. Þeir sem hyggjast þiggja boðið verða að segja upp hjá Play í dag. Viðskipti innlent 31.8.2023 08:35
Heitir í háloftunum Karlkyns flugþjónum, eða heitum háloftaprinsum, hefur fjölgað ört á síðastliðnum árum. Í gegnum tíðina hafa konur verið kenndar við starfið út frá gömlum staðalímyndum. Flugfreyjur áttu að vera ógiftar og snotrar í vexti. Lífið 30.8.2023 20:02
Sameina svið hjá Icelandair Leiðakerfis-og sölusvið og þjónustu-og markaðssvið flugfélagsins Icelandair verða sameinuðu í eitt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 30.8.2023 18:54
„Ekki ljóst að svo stöddu hvenær þetta kemst í lag“ Íslenskar flugvélar sitja nú fastar í Bretlandi vegna bilunar í flugstjórn. Play og Icelandair hafa bæði fundið fyrir þessu vandamáli, sem nú er unnið að því að leysa. Innlent 28.8.2023 13:35
Hittust fyrir tilviljun í flugvél Icelandair og eru í dag hjón Í apríl 2022 var hin 25 ára gamla Sasha Ebrahimi á leiðinni frá Bandaríkjunum til London með millilendingu á Íslandi. Annar farþegi, hinn 35 ára gamli Daniel Guiterrez, settist við hliðina á henni í vél Icelandair á flugvellinum í Denver. Hvorugt þeirra grunaði að tæpu ári seinna ættu þau eftir að verða hjón. Lífið 13.8.2023 20:00
Komin heim þremur dögum á eftir áætlun Eva Rún Guðmundsdóttir, sem fljúga átti til Íslands frá Osló á sunnudag er nú komin til landsins, þremur dögum eftir áætlaða heimferð. Hún segist mjög fegin að vera loksins komin heim. Innlent 9.8.2023 21:56
Tíminn á flugvöllum orðinn jafn langur og ferðalagið Flugi Evu Rúnar Guðmundsdóttir frá Amsterdam til Íslands, sem átti að vera komin til Íslands með flugi Icelandair á sunnudag, hefur verið aflýst. Hún vissi ekki hvort hún ætti að hlæja eða gráta þegar ástæða aflýsingarinnar var gefin upp. Innlent 8.8.2023 17:59
Martröð mæðgna sem áttu að koma til Íslands á sunnudag Þrjár íslenskar konur, systur og móðir þeirra, sem reiknuðu með að vera komnar heim til Íslands með flugi Icelandair frá Osló á sunnudagskvöld eru enn ókomnar heim. Þær hafa þurft að yfirgefa flugvél sem var á leiðinni í loftið, bíða í fjórtán klukkustundir á flugvelli og segja upplýsingagjöf í öllu ferlinu hafa verið ábótavant. Upplýsingafulltrúi Icelandair harmar óþægindin sem farþegar hafa lent í vegna frestana og aflýsinga á flugferðum. Innlent 8.8.2023 14:54
„Þetta er alveg það mikið tjón að maður talar við lögfræðing“ Bubbi Morthens segist sitja uppi með mikið fjárhagslegt tjón eftir að flugferð hans frá eyjunni Krít var skyndilega aflýst í gær. Það eina í stöðunni sé að taka málinu með ró en íslenska hópnum hefur verið tilkynnt að ekki verði flogið til Íslands fyrr en eftir miðnætti að grískum tíma. Innlent 5.8.2023 11:06
Bubbi strandaglópur á Krít Fjöldi Íslendinga eru strandaglópar á eyjunni Krít á Grikklandi eftir að flugferð Icelandair þaðan til Íslands var aflýst vegna tæknibilunar. Meðal þeirra er tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens en ekki liggur fyrir hvenær farþegar komast heim. Innlent 4.8.2023 22:53
„Stóra spurningin“ er hvað Icelandair ætlar að gera með sterka sjóðstöðu Útlit er fyrir að Icelandair muni fara langt með að skila nærri hundrað milljóna Bandaríkjadala rekstrarhagnaði á árinu 2023, um fimmfalt meira en í fyrra, að sögn hlutabréfagreinenda sem verðmetur félagið um 50 prósentum yfir núverandi markaðsgengi. Sjóðstaða Icelandair, sem nemur um 75 prósentum af markaðsvirði flugfélagsins, hefur aldrei verið sterkari en stjórnendur segja að ekki standi til að nýta þá fjármuni til að greiða hraðar niður skuldir. Innherji 2.8.2023 11:01
Áfengisneysla og „Spánarfílingur“ í flugi sé miklu minni en áður Flugfreyja sem starfað hefur sem slík í þrjá áratugi segir að áfengisneysla í flugi hafi minnkað til muna síðan hún hóf störf sem flugfreyja. Þá finnst henni farþegar vera orðnir kurteisari á þessum tíma. Innlent 29.7.2023 17:04
Sterkasta lausafjárstaða í sögu Icelandair Flugfélagið Icelandair hagnaðist um 1,9 milljarða á öðrum ársfjórðungi 2023. Um er að ræða bestu afkomu félagsins á þeim ársfjörðungi síðan 2016. Forstjóri Icelandair segist stoltur af rekstrarniðurstöðunni. Viðskipti innlent 20.7.2023 17:49
Bandarískir ferðamenn slá met Icelandair sagði frá því á dögunum að sætanýting í flugi til og frá Norður-Ameríku hafi aldrei verið betri í júní. Það stemmir vel en Bandaríkjamenn eyddu 14,14 milljörðum króna á Íslandi í júní samkvæmt tölum frá Rannsóknasetri verslunarinnar (RSV). Skoðun 19.7.2023 07:00
Fimm flugvélum Icelandair snúið við vegna bilunar í kerfi Isavia Bilun í tölvukerfi íslenska flugumsjónarsvæðisins hjá Isavia varð í dag til þess að snúa þurfti fimm flugvélum Icelandair á leið til landsins við. Innlent 15.7.2023 17:04
Icelandair flýgur til Innsbruck næsta vetur Icelandair hefur bætt nýjum skíðaáfangastað við áætlun sína næsta vetur, borginni Innsbruck í Austurríki. Flogið verður frá 27. janúar til 2. mars. Viðskipti innlent 12.7.2023 15:46