
Íslensk tunga

Magnaður áfangi fyrir íslenskuna
Það er sannarlega magnaður áfangi fyrir íslenskuna að tungumálið okkar hafi verið valið í þróunarfasa fyrir nýjustu útgáfu gervigreindarmállíkansins GPT-4, fyrst allra tungumála fyrir utan ensku. Samstarfsverkefni með fyrirtækinu OpenAI hefur komið því til leiðar að stærsta gervigreindarnet heims er nú fínþjálfað til þess að skilja og miðla upplýsingum á íslensku.

Íslenskt máltæknifyrirtæki í samstarfi við OpenAI um GPT-4
Íslenska máltæknifyrirtækið Miðeind hefur síðustu mánuði aðstoðað bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI við að þjálfa nýjustu kynslóð GPT líkansins. Þetta er í fyrsta sinn sem OpenAI gerir tilraunir með sérstaka þjálfun risamállíkans síns á öðru tungumáli en ensku, og þar varð íslenska fyrir valinu.

Starfsmenn frá 45 löndum í Krónunni og hátt í þriðjungur fastráðinna
„Við höfum verið að sjá það undanfarið að starfsþróun starfsfólks af erlendum uppruna er að færast í aukana þannig að þessi hópur er að færa sig í auknu mæli í yfirmanna- og stjórnunarstöður,“ segir Erla María Sigurðardóttir, mannauðsstjóri Krónunnar.

Ekki vera feimin við að spyrja: Viltu að ég tali við þig á íslensku?
Fleira hæft starfsfólk vantar erlendis frá til að vinna á Íslandi.

Áhyggjur leikskólakennara
Í töluverðan tíma hef ég haft gríðarlegar áhyggjur af máltöku ungra barna í leikskólum. Eftir 37 ára starf með börnum veit ég hversu mikilvæg máltakan er..hversu mikið vægi hún hefur í daglega lífi lítilla barna og hversu mikill grunnur hún er að framtíð þeirra.

Bing skrifar fréttir á íslensku, stundum
Bing er leitarvélin frá Microsoft sem getur skrifað fréttartexta á mörgum tungumálum, þar á meðal íslensku. Bing lærði íslensku með því að nota gervigreind og málþjálfun.

Krummi í lagi en alls ekki Kisa
Nýr úrskurður mannanafnanefndar, sem hafnaði nafninu Kisa, styrkir þingmann Sjálfstæðisflokksins enn frekar í þeirri trú sinni að leggja eigi nefndina niður. Við kynntum okkur hinn umdeilda úrskurð og íslensk dýranöfn, sem þykja mishentug á menn.

Lesfimipróf barna – af hverju leggjum við þau fyrir?
Lestur er grunnur að frekara námi og eitt það mikilvægasta fyrir skólagöngu barns er að ná góðum tökum á lestri. Það er því mikilvægt fyrir kennara og forsjáraðila að vita hvernig barni gengur að læra að lesa, en til þess eru lesfimiprófin.

Gervigreind samdi kynningu fyrir Ísland í dag
Fyrir forvitnissakir var gervigreind fengin til að semja stutta kynningu á miðvikudagsþætti Íslands í dag í vikunni. Forritið ChatGPT á vegum bandaríska fyrirtækisins OpenAI hefur vakið mikla athygli notenda, einkum fyrir glettilega færni þess við að setja saman texta.

Uppruni Íslendinga sé flóknari en áður var talið
Prófessor hjá stofnun Árna Magnússonar segir uppruna Íslendinga flóknari en áður hefur verið talið. Við skoðun heimilda þurfi að hafa í huga að um sé að ræða minningar fólks á tólftu og þrettándu öld, sem jafnvel hafði einhverra hagsmuna að gæta. Ólíklegt sé að allir hafi komið frá norrænum konungum.

Innrás er orð síðasta árs hjá Árnastofnun
Innrás er orð ársins 2022 hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Lesendur Rúv völdu þriðju vaktina hins vegar orð ársins.

„Ég held það sé ekki mikið slor á höndunum á þeim“
Fyrrverandi formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins sáluga furðar sig á umdeildri orðalagsbreytingu í lögum um áhafnir skipa, sem skiptir „fiskimanni“ út fyrir „fiskara“ í nafni kynhlutleysis. Hann telur ólíklegt að fólkið að baki breytingunni hafi migið í saltan sjó.

Tungutak
Málfræðingar trana sér yfirleitt ekki fram, og reyndar finnst mér að okkar virtustu málvísindamenn mættu láta meira í sér heyra á opinberum vettvangi.

Að rota jólin
Ekkert okkar fer varhluta af jólakveðjum. Þær eru orðaðar á ýmsan hátt, en þó er orðalagið GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR sú kveðja sem við heyrum og sjáum oftast, þetta er kveðjan sem við höfum flest alist upp við og mörg notað óspart og af alhug í gegnum tíðina.

Aðventuflóra
Í aðdraganda jóla sprettur fram sérstök flóra á heimilum landsmanna sem kalla mætti aðventuflóru. Öll er hún aðflutt enda býður húsnæði okkar ekki upp á búsvæði þar sem sjálfsprottin flóra fær þrifist (nema við þær óæskilegu kringumstæður þegar raki býður myglusveppum aðstæður til vaxtar, reyndar er þar um fungu að ræða.

Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“
„Mig óraði aldrei fyrir því að ég myndi búa í Danmörku. En maður veit aldrei hvert lífið leiðir mann. Því nú er ég hér og hefur aldrei liðið betur. Það sem maður vill fyrir alla er að öllum líði vel,“ segir Richard Scobie, sem ásamt eiginkonu sinni Kristínu Einarsdóttur Scobie rekur fyrirtækið Nordic Trailblazers á eyjunni Mön í Danmörku.

Telur stjórnmálamenn misnota hugtakið „pólitísk ábyrgð“
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, er þeirrar skoðunar að stjórnmálamenn séu mjög duglegir að teygja hugtök og toga til að verja mistök sín og afglöp.

Áhrifavaldur með stóran fylgjendahóp furðar sig á dularfullri orðanotkun Íslendinga
Myndband bandaríska áhrifavaldsins Kyana Sue, sem fjallar um alls kyns þætti íslenskrar menningar á TikTok-síðu sinni, varpar ljósi á sífellt útbreiddari ofnotkun orðsins „gaur“ í íslensku máli nú um mundir.

Snorri Helga, Systur og Fóstbræður á Degi íslenskrar tónlistar
Dagur íslenskrar tónlistar er haldinn hátíðlegur í dag. Íslensk tónlist sem og tónlistarfólk í forgrunni og íslenskir tónar fá þá vonandi að heyrast sem víðast.

Íslenska í Ísafjarðarbæ
Háskólasetur Vestfjarða hvað er nú það? Eitthvert súkkulaði? Ekki er ólíklegt að landslýður hafi ekki hugmynd um tilvist téðrar menntastofnunar. Það ber ekki að undrast. Háskólasetur Vestfjarða berar ekki bossann á Instagramm og Vestfirðir eru ekki heldur beinlínis í alfaraleið í hugum margra.

Skilur þú skilaboðin?: Nenna ekki að skrifa nenna
Í Íslandi í dag á miðvikudag var fjallað um stöðu tungumálsins í ýmsu tilliti. Á meðal dagskrárliða voru skammstafanir í smáskilaboðum ungmenna sem grafnar höfðu verið upp á TikTok.

Kári um íslenskuna: „Mér þykir vænt um hana en ég hef ekki áhyggjur af henni“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var til viðtals í Íslandi í dag á degi íslenskrar tungu, en enn á þessu stigi eru landsmenn staddir í því sem nú er orðið vika íslenskrar tungu.

Vonar að rangt sé haft eftir Katrínu og Lilju því viðbrögð þeirra eru óskiljanleg
Svo virðist vera sem skilningur á merkingu hugtaksins „pólitísk ábyrgð“ sé út og suður. Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, segir það alvarlegt mál þegar ráðamenn vísi til hugtaksins án þess að nokkur skilningur á merkingu þess sé fyrir hendi.

Hefði íslenskan lifað af á kálfskinni?
Til hamingju með dag íslenskrar tungu, kæru lesendur. Við hjá Blindrafélagi Íslands viljum nota daginn til að koma á framfæri óskum okkar um að íslensk stjórnvöld að tryggi að blindu og sjónskertu fólki verði gert kleift að nota íslensku í daglegum störfum sínum.

Spjallmennið og póstmeistarinn
Hér áður fyrr heyrðust oftar orð eins og póstmeistari, póststofa, póstþjónn, póstvagn, póstlúður, póstávísun og bögglapóstur.

Dúndurdiskó Bragi Valdimar hlaut verðlaun Jónasar
Bragi Valdimar Skúlason hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í dag á degi íslenskrar tungu. Verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar.

Íslenskuperrinn Bragi örvar íslenska tungu með Gerði
„Þetta byrjaði eiginlega allt út frá því að bakarar landsins voru ekki sáttir við orðið múffa yfir kynlífstæki,“ segir Gerður Arinbjarnardóttir eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush í samtali við Makamál.

„Það er ekki móðurmál neins að segja öll velkomin“
Undanfarið hafa kröfur um aukið kynhlutleysi íslenskrar tungu orðið meira áberandi í samfélaginu. Æ fleiri hafa tamið sér að segja „öll“ í stað „allir“, „sum“ í stað „sumir“, „mörg“ í stað „margir“ og þar fram eftir götunum.

Embla komin með nýjar raddir frá Microsoft
Raddstýrða snjallforritið Embla fék nýjar raddir í dag. Embla er radd-snjallforrit frá máltæknifyrirtækinu Miðeind sem skilur og talar íslensku. Embla getur svarað hinum ýmsu spurningum, til dæmis um ferðir Strætó, reiknað stærðfræðidæmi, stafsett orð, umbreytt mælieiningum og gjaldmiðlum og ýmislegt fleira.

Íslenskan er okkar allra
Íslensk tunga er dýrmæt auðlind sem á stóran þátt í að móta okkar sterka samfélag. Tungumálið er tenging við söguna og mikilvægur hluti af menningarlegu fullveldi þjóðarinnar. Upp er runnin dagur íslenskrar tungu þar sem við minnum okkur á það grundvallarhlutverk sem tungumálið okkar gegnir fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar.