Rúta með 21 barn út af þjóðveginum nærri Varmahlíð Óhapp varð á hringveginum nærri Silfrastöðum um tíu til fimmtán kílómetra suðaustur af Varmahlíð um fjögurleytið í dag þegar rúta fór útaf veginum í hálku. 10.1.2020 16:58
Sluppu með skrekkinn í Djúpagili Telja má mildi að enginn hafi slasast alvarlega þegar bílaleigubíll fór útaf hringveginum í Skjónugili um einn kílómetra fyrir norðan Vík í Mýrdal síðdegis í gær. Þrír erlendir ferðamenn voru í bílnum og sluppu allir ómeiddir samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vík. 10.1.2020 14:30
Flugferð frá helvíti sem endaði á sama stað og hún byrjaði Unnur Arndísardóttir lýsir ferðalagi sínu frá Alicante á Spáni til Ísland í gærkvöldi sem ferðalagi helvítis. Tólf tímum eftir brottför frá Alicante, hringsól yfir Reykjanesi og millilendingu í Edinborg er Unnur komin aftur til Alicante og ætlar ekki að gera aðra tilraun til að fljúga heim fyrr en í mars. 10.1.2020 13:30
Trans Ísland fær styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen Trans Ísland fékk afhentan styrk upp á 500 þúsund króna úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Þetta er í 33. sinn sem veittur er styrkur úr sjóðnum. 10.1.2020 12:05
Framboð verkalýðsins yrði ráðandi afl á Alþingi samkvæmt nýrri könnun Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að niðurstaða könnunar sem stjórn VR fékk til að vinna fyrir sig um áhuga almennings á nýju stjórnmálaafli úr verkalýðshreyfingunni gefi byr undir báða vængi. 10.1.2020 11:56
Börn í Eyjum fá ekki að mæta ókembd í skólann Foreldrar barna í grunnskólum þekkja vel að fá lúsapósta þegar kennsla hefst á haustin og eftir áramót. Er þar minnt á lúsina og mikilvægi þess að foreldrar barna kembi hár þeirra. 9.1.2020 15:23
Þvertók fyrir nauðgun en trúði samt ekki hvað hann hafði gert vinkonu sinni Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga vinkonu sinni aðfaranótt sunnudagsins 21. janúar 2018. Vinkonan hafði farið heim með fyrrverandi pari að loknu þorrablóti og voru þau öll undir áhrifum. 9.1.2020 15:04
Reykjanesbær laus undan sérstöku eftirliti Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur tilkynnt Reykjanesbæ að aðlögunaráætlun bæjarins hvað varðar fjárhagsmál sé fallin úr gildi og bæjarstjórn sé ekki lengur skylt að bera ákvarðanir undir nefndina. Þetta kemur fram á heimasíðu bæjarins og er vísað í bréf sem nefndin sendi bænum. 9.1.2020 13:43
Laus á aðfangadag eftir tíu vikur í gæsluvarðhaldi grunaður um gróf brot gegn börnum Karlmaður sem grunaður er um gróf kynferðisbrot gegn börnum á suðvesturhorninu og sat í gæsluvarðhaldi í tíu vikur vegna þeirra var látinn laus úr varðhaldi á aðfangadag. 9.1.2020 07:00
Mountaineers of Iceland viðurkennir afdrifarík mistök Haukur Herbertsson, rekstrarstjóri hjá Mountaineers of Iceland, segir að sleðaferðum fyrirtækisins í gær hafi verið aflýst fyrir utan þá sem tíu leiðsögumenn fóru með 39 manns á Langjökul í gær. Undir eðlilegum kringumstæðum hefði ferðin ekki átt að taka lengri tíma en klukkutíma og korter. 8.1.2020 16:49