„Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 2. október 2026 21:40 Einar Guðnason, þjálfari Víkings Reykjavíkur sem spilar í Lengjudeildinni á næsta tímabili vísir Einar Guðnason þjálfari Víkings sagðist bera stærstan hluta ábyrgðarinnar á falli liðsins úr Bestu deild kvenna eftir tveggja marka tap gegn Þór/KA í lokaumferðinni. Hann sagði mistök á undirbúningstímabilinu og í gegnum mótið hafa reynst Víkingum dýrkeypt. „
Bara hörmulegt. Það er það eina sem ég get sagt. Hræðilegt,“ sagði Einar þegar hann var spurður út í tilfinningarnar eftir leik. Hann taldi margt hafa farið úrskeiðis á tímabilinu og horfði meðal annars til eigin ákvarðana. „Ég stillti kannski vitlaust upp í mörgum leikjum, gerði lélegar skiptingar. Þannig að ég þarf bara að taka þetta mest á sjálfan mig. Það er bara svoleiðis.“ Einar sagði bæði eigin mistök og atvik sem féllu Víkingum í óhag hafa haft áhrif á gengi liðsins. „Við gerum mistök á mörgum stöðum í mótinu. En hlutirnir falla líka ekki með okkur.“ Hann taldi dómaramistök hafa kostað Víking stig í nokkrum leikjum á tímabilinu og sagði liðið hafa fengið afsökunarbeiðnir frá dómurum. „Ef það væri VAR á Íslandi þá værum við með tíu stigum meira. En það er ekki VAR á Íslandi,“ sagði Einar. Hann lagði þó áherslu á að Víkingar hefðu fengið tækifæri til að vinna þá leiki þrátt fyrir það. Betri færanýting og færri mistök í vörninni hefðu getað breytt niðurstöðunni. Liðið hefði líka fengið tækifæri til að bjarga sér gegn Þór/KA en ekki nýtt þau. „Það er ódýrt ef ég ætla að fara að benda á dómarann. Það er svo margt í þessu. Dómarinn er frábær í dag. Hann dæmdi frábærlega í síðasta leik. Við unnum hvorugan.“ Þrátt fyrir vonbrigðin hafði Einar trú á að Víkingur gæti snúið aftur í Bestu deildina strax á næsta tímabili. „Já, ég geri það að sjálfsögðu.“ Það voru 1100 áhorfendur á leiknum í Víkinni í kvöld og hrósaði Einar stuðningnum og umgjörðinni í Víkinni og sagði sárt að sjá félagið falla. „Þetta er að mínu mati langflottasta félagið í þessari deild og það er alveg hræðilegt fyrir deildina og náttúrulega líka fyrir okkur að við séum að falla.“ Einar sagði einnig sorglegt að Valur félli og benti á að liðið hefði gefið ungum leikmönnum tækifæri. Hann velti jafnframt fyrir sér hvort Víkingur hefði þurft að fá fleiri erlenda leikmenn til liðsins frá upphafi tímabilsins og taldi ákvörðunina um að fara ekki þá leið mögulega hafa átt þátt í fallinu. „Það er sorglegt fyrir íslenskan fótbolta að þessi tvö lið séu að fara niður.“
Besta deild kvenna Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Fótbolti „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Íslenski boltinn „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ Fótbolti Fleiri fréttir Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjá meira