Ferðaðist til Íslands frá Kína með 170 kíló af hundraðköllum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. febrúar 2020 06:34 Þessir hundraðkallar og fimmtíukallar mega muna sinn fífil fegurri.
Kínverski ferðamaðurinn Wei Li er í ákveðinni pattstöðu á Íslandi eftir að hafa ferðast hingað til lands með 170 kíló af hundrað krónu og fimmtíu krónu mynt andvirði 1,6 milljóna króna. Li ætlaði að skipta myntinni í handhægari seðla í Seðlabanka Íslands, eins og hann segist hafa gert tvisvar áður, en fékk neitun. Ekki voru móttökurnar betri í Arion banka þar sem átta lögreglumenn mættu og spurðu Li spjörunum úr. Greint er frá veseni Li í Fréttablaðinu í dag. Li segist fá myntina frá braskara í Kína og viti ekki nákvæmlega hvaðan myntin kemur. Að hluta frá endurvinnslufyrirtæki sem kaupi samanpressaða bíla frá Íslandi þar sem leynist klink. Li borgar ekkert fyrir myntina nema ef honum tekst að skipta henni. Þá fær braskarinn hluta af ágóðanum. Wei Li greiddi eðlilega yfirvigt í fluginu með sín 170 kíló af hundraðköllum. Hann framvísar kvittun þess efnis að hann hafi greint tollayfirvöldum frá sérstökum farangri sínum. Seðlabankinn vill ekki skipta myntinni.vísir/vilhelm Li segist hafa fengið upplýsingar í síðustu Íslandsheimsókn að til stæði að breyta reglum hjá Seðlabankanum. Því hafi hann kannað það sérstaklega fyrir ferðalagið hingað til lands en komist að því að reglurnar væru óbreyttar. Hann klórar sér því í hausnum yfir neituninni. Ástand hundraðkallanna er misjafnt, sumir heilir en aðrir talsvert skemmdir. Hann segist opinn fyrir því að gefa skemmdu myntina til góðgerðamála enda hafi hann lítið við hana að gera fáist henni ekki skipt.
Ferðamennska á Íslandi Íslandsvinir Seðlabankinn Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira