Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Fura Ösp Jóhannesdóttir hefur tekið sæti í stjórn hjá sköpunarstofunni Brandenburg og mun þar fara með stöðu formanns stjórnar. Viðskipti innlent 23. september 2024 12:22
Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Margrét Helga Jóhannsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustu hjá Reitum. Viðskipti innlent 23. september 2024 11:31
Ráðin markaðsstjóri Sensa Eydís Eyland hefur verið ráðin markaðsstjóri Sensa. Viðskipti innlent 23. september 2024 10:51
Hjalti Már tekur við af Hreiðari Þór hjá Datera Hjalti Már Einarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Datera. Hann tekur við keflinu af Hreiðari Þór Jónssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá 2020. Viðskipti innlent 19. september 2024 13:11
Skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Innlent 18. september 2024 14:00
Hafa auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar Sveitarfélagið Múlaþing hefur auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar og gert gert ráð fyrir að nýr sveitarstjóri muni taka við um næstu áramót. Innlent 18. september 2024 12:08
Fer frá Marel yfir í hlutabréfagreiningar hjá Fossum Einn af fjárfestatenglum Marels, sem stefnir að því að klára samruna við JBT á næstu mánuðum, hefur látið af störfum hjá íslenska félaginu og er að ganga til liðs við Fossa fjárfestingabanka. Innherji 18. september 2024 10:39
Forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar úr stóriðjunni Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústsdóttur í embætti forstjóra Náttúruverndarstofnunar og Gest Pétursson í embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar. Innlent 18. september 2024 10:06
Bjørn Richard til liðs við Athygli Norðmaðurinn Bjørn Richard Johansen hefur gengið til liðs við Athygli sem tengdur ráðgjafi og tekur jafnframt sæti í stjórn félagsins. Viðskipti innlent 17. september 2024 15:56
Sjálfbærnisviðið lagt niður og Erla Ósk hættir Nokkuð viðamiklar breytingar á skipuriti Símans hafa tekið gildi. Breytingin felur í sér að tvö ný svið verða til og eitt svið er lagt niður. Erla Ósk Ásgeirsdóttir, sem var yfir sviðinu sjálfbærni og menning, hefur látið af störfum hjá félaginu. Viðskipti innlent 16. september 2024 15:22
Hafsteinn Dan nýr lagaprófessor við HR Hafsteinn Dan Kristjánsson hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við Lagadeild Háskólans í Reykjavík, að undangengnu formlegu mati á hæfi. Viðskipti innlent 16. september 2024 13:59
Ráðin nýr yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar Brynhildur Pálmarsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur hjá Hugverkastofunni. Viðskipti innlent 16. september 2024 13:08
Ráðinn fjárfestatengill Icelandair Kristófer Númi Hlynsson hefur verið ráðinn sem fjárfestatengill Icelandair. Viðskipti innlent 12. september 2024 09:50
Yfirmaður einkabankaþjónustu Arion hættir eftir sameiningu sviða bankans Forstöðumaður einkabankaþjónustu Arion til margra ára hefur látið af störfum samhliða því að sviðið sameinast við Premíu, þjónustuleið sem er ætluð viðskiptavinum í umfangsmiklum viðskiptum við bankann. Samstæða Arion er með leiðandi stöðu á eignastýringarmarkaði á Íslandi og mun stækka enn frekar með boðuðum kaupum á Arngrimsson Advisors. Innherji 11. september 2024 11:17
Ráðin framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu Lilja G. Karlsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjá VSB verkfræðistofu. Í tilkynningu segir að hún hafi tekið við 15. júlí síðastliðinn en hún hafi hafið störf hjá fyrirtækinu árið 2021 sem sviðsstjóri Byggðatæknisviðs. Viðskipti innlent 11. september 2024 10:17
Kveður ostasnakkið fyrir Wolt Jóhann Már Helgason hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá heimsendingaþjónustunni Wolt á Íslandi. Hann hefur undanfarin fimm ár starfað sem fjármálastjóri Lava cheese. Viðskipti innlent 10. september 2024 17:10
Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Árni Hjörvar Árnason hefur verið ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar. Menning 10. september 2024 10:50
Eyrún og Þorgils til SI Eyrún Arnarsdóttir og Þorgils Helgason hafa verið ráðin til Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 10. september 2024 10:15
Vistaskipti hjá fangelsismálastjóra Páll E. Winkel mun taka ársleyfi frá embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar frá 1. október næstkomandi og taka að sér störf á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, verður settur forstöðumaður Fangelsismálastofnunar í fjarveru hans. Innlent 9. september 2024 17:03
Kristrún Lilja stýrir nýju sviði hjá Orkuveitunni Kristrún Lilja Júlíusdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður nýrrar einingar, stafrænnar stefnumiðaðrar umbreytingar hjá Orkuveitunni. Kristrún kemur frá Íslandsbanka, þar sem hún hefur gegnt lykilhlutverki sem forstöðumaður daglegra bankaviðskipta. Viðskipti innlent 9. september 2024 11:38
Nýliðun í framkvæmdastjórn Pírata Kosið var til framkvæmdastjórnar Pírata á aðalfundi flokksins í Hörpu í dag. Umtalsverð nýliðun varð í framkvæmdastjórn flokksins sem og stefnu- og málefnanefnd. Innlent 7. september 2024 19:25
Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital Hekla Arnardóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital. Viðskipti innlent 6. september 2024 12:49
Pipar/TBWA eflir samskiptateymið Pipar\TBWA auglýsingastofa hefur ráðið Margréti Stefánsdóttur almannatengil og Silju Björk Björnsdóttur, sérfræðing í samfélagsmiðlum í samskipta- og almannatengslateymi stofunnar, sem Lára Zulima Ómarsdóttir leiðir. Viðskipti innlent 6. september 2024 12:31
Tómas hættir hjá Símanum og Höddi tekur við enska boltanum Tómas Þór Þórðarson, sem hefur síðustu fimm ár stýrt umfjöllun Símans sport um enska boltann, er hættur. Hörður Magnússon tekur við ritstjórnartaumunum, en þetta er síðasta tímabilið í enska boltanum sem Síminn sýnir í bili. Viðskipti innlent 5. september 2024 12:00
Frá Viðskiptaráði til BBA//Fjeldco Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur gengið til liðs við lögmannsstofuna BBA//Fjeldco. Agla Eir starfaði áður sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Viðskipti innlent 4. september 2024 15:11
Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Innlent 3. september 2024 10:58
Hrafnhildur gengur til liðs við ADVEL lögmenn frá ESA Hrafnhildur Kristinsdóttir, sem hefur síðustu ár starfað sem lögfræðingur hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), hefur gengið til liðs við ADVEL lögmenn. Þar mun hún starfa sem ráðgjafi samhliða kennslu við Háskólann í Reykjavík. Klinkið 2. september 2024 20:21
Sara Lind ráðin framkvæmdastjóri Climeworks á Íslandi Sara Lind Guðbergsdóttir, sem hefur meðal annars gegnt stöðu setts forstjóra Ríkiskaupa og Orkustofnunar, mun á næstunni taka við sem framkvæmdastjóri Climeworks hér á landi. Svissneska félagið starfrækir stærsta lofthreinsiver á heimsvísu á Hellisheiði í samstarfi við Carbfix og Orku náttúrunnar. Klinkið 2. september 2024 18:07
Vilborg til Iðunnar frá Sýn Vilborg Helga Harðardóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Iðunnar fræðsluseturs. Viðskipti innlent 2. september 2024 15:41
Aðstoðarmaður ráðherra í baráttu við settan skrifstofustjóra Alls sóttu 22 um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í innviðaráðuneytinu sem auglýst var um miðjan júlí. Umsóknarfrestur rann út þann 12. ágúst. Viðskipti innlent 2. september 2024 12:19