Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 9. apríl 2026 11:02 Ragnar Freyr Ingvarsson er læknir. Vísir/Ívar Fannar Framkvæmdastjóri á Landspítalanum segir að rík aðhaldskrafa stjórnvalda á spítalann hafi valdið því að fækka þurfi stöðugildum. Ákveðið hafi verið að segja frekar upp fólki sem er með minni stöðugildi og því hafi staða Ragnars Freys Ingvarssonar læknis verið lögð niður. Ragnari verði hins vegar boðið hærra starfshlutfall. Ragnar Freyr er undrandi á uppsögninni.
Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir á Landspítalanum, vakti athygli á Facebook í gær á því að honum hefði verið tilkynnt símleiðis í gær að staða hans hefði verið lögð niður á spítalanum. Færslan vakti mikla athygli enda hefur verið fjallað mikið um læknaskort á spítalanum. Ragnar hefur verið í þrjátíu prósenta starfi og var í launalausu leyfi. Hann gagnrýnir skýringar um að ástæðan sé aðhaldskröfur. „Það kom mér spánskt fyrir sjónir verandi að ég er í launalausu leyfi fram að hausti þannig það er ljóst að það sparast ekki miklir peningar á þessari aðgerð,“ segir Ragnar. „Þetta kom mér verulega á óvart. Ég bjóst við þegar hann kynnti sig í símanum að hann væri að biðja mig um að koma úr launalausu leyfi í vinnu miðað við það ástand sem hefur verið lengi og versnað. Mönnun á almennum lyflækningum er slæm og það vantar á margar vaktir og það hefur versnað mikið núna eftir brotthvarf eins vinnufélaga úr störfum.“ Munt þú fara fram á frekari skýringar frá stjórnendum spítalans? „Já, ég ræddi við forstjóra í morgun og bað hann um að mér yrði sent uppsagnarbréfið mitt svo ég hefði það skriflegt það sem sagt var við mig símleiðis í gær. Ég mun að sjálfsögðu óska eftir frekari rökstuðningi og leita réttar míns,“ segir hann. Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans sem sá um uppsögnina, segir að Ragnari Frey hafi verið sagt upp störfum vegna ríkrar aðhaldskröfu á Landspítalann. „Það felst þá meðal annars í því að verja þjónustuna og nýta ónotuð stöðugildi og hreinlega að fækka stöðugildum sem eru lág eða lítið hlutfall og eru ekki nýtt. Því miður lendir það á einhverjum einstaklingum eins og hér,“ segir Rafn. Er þá von á fleiri uppsögnum á deildinni? „Já, þær hafa farið fram og eru væntanlegar.“ Hversu miklar eru þær? „Þetta eru bara örfáir einstaklingar í raun og veru.“ Hann segir að Ragnari Frey bjóðist að koma í aukið starfshlutfall þar sem það sé best ef fólk starfaði á spítalanum í áttatíu til hundrað prósenta hlutfalli. Taki Ragnar Freyr því boði, sem hann viti að standi til boða, sé hann velkominn aftur til starfa. Í færslu á Facebook neitar Ragnar Freyr því að rætt hafi verið við hann um aukið starfshlutfall. Þá hafi enginn fundur verið boðaður. Sjá nánar: Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall „Það fer fram í viðtalinu sem við vonandi náum að hafa í dag, þá verður talað um þetta og það er búið að nefna þetta við hann,“ segir Rafn. Þá segir hann uppsagnirnar ekki vera persónulegar og ákvörðunin tengist ekki því að Ragnar Freyr hafi verið áberandi í baráttunni fyrir betra starfsumhverfi á spítalanum. Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Ragnars Freys.
Landspítalinn Vistaskipti Heilbrigðismál Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira