Viðskipti innlent

Jóhann Ingi til Securitas

Atli Ísleifsson skrifar
Jóhann Ingi Magnússon.
Jóhann Ingi Magnússon.

Jóhann Ingi Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og þjónustu Securitas.

Í tilkynningu segir að hann komi til Securitas frá Orku náttúrunnar (ON) þar sem hann hafi starfað sem forstöðumaður einstaklings og fyrirtækjalausna og setið í framkvæmdarstjórn ON. 

„Þar áður starfaði hann m.a. hjá bílaumboðinu Heklu, sem forstöðumaður vörumerkja. Jóhann er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands.

Í hinu nýja starfi mun Jóhann Ingi leiða sölu, þjónustu og markaðsteymi Securitas og leggja áherslu á áframhaldandi uppbyggingu og þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×