

Tíska og hönnun
Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.

Adidas og Ye sættast
Þýski íþróttavoruframleiðandinn Adidas og rapparinn Ye, áður Kanye West, hafa náð sáttum eftir að hafa staðið í málaferlum síðan Adidas sleit samstarfi við rapparann árið 2022.

Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“
„Mamma sagði nú bara við mig þá: Sif mín, viltu ekki bara koma heim?“ segir Sif Jakobs skartgripahönnuður og hlær. Sem þó tók það ekki í mál, hélt áfram að banka upp á dyrnar hjá skartgripaverslunum í Kaupmannahöfn þar til hún fékk loksins vinnu í skartgripaverslun.

„Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið
„Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið. Og þar gildir það sem almennt gildir um hörðustu samningana: Við tökum eitt ár í einu,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir stofnandi fyrirtækisins FÓLK og hlær.

Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna
Hrekkjavökuhátíðin hefur fest sig í sessi hérlendis á undanförnum árum og bætist stöðugt í hóp þeirra sem kjósa að klæða sig í búning 31. október. Sumir vilja fara alla leið í herlegheitunum og ákvað Lífið á Vísi því að veita lesendum innblástur þegar það kemur að hrekkjavökubúningum.

Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður
Glamúrinn var sannarlega í fyrirrúmi á laugardagskvöld þegar stórstjörnur heimsins komu saman í sínu fínasta pússi á galakvöldi Academy Museum í Los Angeles.

Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni
Ofurskvísurnar Aníta Björt og Sigrún Guðný lifa fyrir tískuna og reka nytjaverslunina Mamma Mia Vintage í miðbæ Reykjavíkur. Þær stóðu fyrir tískuteiti á dögunum þar sem skvísur bæjarins mættu í sínu fínasta pússi.

Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok
Tískustraumar í förðunarheiminum eru eins misjafnir og þeir eru margir en í nýjasta þætti Fagurfræði tekur Rakel fyrir hausttrendin sem slegið hafa í gegn á samfélagsmiðlinum Tik-Tok.

Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé
Nærfatamódel á vegum Victoria's Secret sneru aftur á svið í gærkvöldi eftir sex ára hlé. Tískusýningin var því sérstaklega vegleg í þetta skiptið og fluttu einungis kvenkyns tónlistarmenn tónlistaratriði á hátíðinni. Allar helstu stjörnur fyrirsætuheimsins létu sig ekki vanta.

Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós
Raunveruleikastjarnan og dansarinn Ástrós Traustadóttir fagnaði nýrri fatalínu sinni með heitustu skvísum landsins síðastliðið sunnudagskvöld. Fatalínan er samstarfsverkefni Ástrósar og hönnuðarins Andreu en meðal gesta voru Sunneva Einars, Birgitta Líf, Magnea Björg, Manúela Ósk og Elísabet Gunnars.

Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu
Menningarlífið iðar á Baldursgötu 36 þar sem nýtt listrænt rými var að opna. Þar má finna ýmis konar handverk, bókabúð með sérvöldum bókum hvaðan af úr heiminum og myndlistar-og hönnunarstofu. Opnuninni var fagnað með stæl síðastliðinn fimmtudag.

Vegleg afmælistilboð á gæðavörum í eldhús og baðherbergi
Fjölskyldufyrirtækið Orgus heldur upp á 25 ára afmæli sitt um þessar mundir en það sérhæfir sig í vönduðum vörum fyrir baðherbergi og eldhús. Af því tilefni býður verslunin upp á 15-25% afslátt af fjölda vara fram á næsta þriðjudag.

Hvað ef þú gætir breytt framtíð húðar þinnar?
Á 4 sekúndna fresti selst flaska af gullelixírnum sem hefur haldið vinsældum sínum á milli kynslóða í 4 áratugi. Double Serum frá Clarins hefur ávallt verið dáð fyrir einstaka formúlu sína sem nýtir ofurkrafta náttúrunnar og sameinar þá nýjustu tækni í heimi húðumhirðu.

Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki
Halla Tómasdóttir forseti Íslands klæddist gylltum síðkjól eftir breska hönnuðinn Jenny Packham í hátíðarkvöldverði sem haldinn var í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Hönnuðurinn virðist vinsæll meðal konungsfólks.

Fyrsta fatalínan í sögu Ikea mætt til landsins
Forsvarsmenn Ikea á Íslandi hafa sett fyrstu fatalínuna í sögu húsgagnarisans í sölu hér á landi. Þannig er í fyrsta skipti hægt að versla sér Ikea peysur, Ikea hatt og Ikea regnhlíf svo eitthvað sé nefnt en þó einungis á meðan birgðir endast.

Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman er nýkomin heim úr ævintýralegri ferð til Parísar þar sem hún þræddi tískusýningar franskra tískuhúsa, skellti sér í rússíbana með stórstjörnum, hitti Kylie Jenner og tók púlsinn á helstu straumum tískunnar um þessar mundir.

Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni
Íslenskar prjónavörur hafa sjaldan eða aldrei verið eins vinsælar og nú, enda rjúka vörurnar út eins og heitar lummur hjá prjónakonum og hönnuðum varanna. Geitaskinnsvesti eru líka að slá í gegn, svo ekki sé minnst á lopabuxur.

Byltingarkennd nýjung fyrir blondínur frá JOHN FRIEDA
Njóttu þess að vera ljóska án þess að hafa áhyggjur af skemmdum! Blonde+ Repair er fyrir ljóskur alls staðar, hvort sem þú elskar balayage eða babylights, strípur eða aflitun.

Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum?
„Í þættinum í dag ætla ég að fara með ykkur í gegnum skyggingar. Skyggingar vefjast oft fyrir mörgum og við erum oft pínu hrædd við þær,“ segir förðunarfræðingurinn og hársnyrtinn Rakel María í nýjasta þætti Fagurfræða. Þar fer Rakel yfir það hvernig best er að skyggja andlitið svo andlitsdrættir njóti sín sem best.

„Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“
Hönnunarþing, hátíð hönnunar og nýsköpunar, fer fram á Húsavík í dag og á morgun. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá en forvígismaður hátíðarinnar segir hönnun vera allt í kringum okkur á hverjum degi og að hátíðin eigi því erindi við alla.

Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi
Skíðastökk er heiti vetrarlínu Moomin Arabia árið 2024. Línan sýnir Múmínsnáða á harðastökki á skíðum og inniheldur krús og skál auk fleiri fallegra muna t.d. sængurföt og handklæði í stíl. Línan verður aðeins fáanleg í takmörkuðu upplagi á Íslandi frá föstudeginum 11. október 2024.

Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra
Rammagerðin ehf., sem rekur samnefndar gjafavöruverslanir, hagnaðist um 76 milljónir króna í fyrra. Tekjur ársins voru 41 prósenti meiri en árið áður, alls 2,2 milljarðar króna.

Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn
Peter Opsvik, norskur hönnuður, lést á mánudaginn 85 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hönnun sína á Tripp Trapp-stólnum fyrir börn sem hefur lengi vel verið gífurlega vinsæll á Íslandi og víðar.

Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París
„Þetta er algjör draumur að rætast,“ segir Lilja Birgisdóttir, einn af stofnendum ilmverslunarinnar Fischersunds. Hún og hennar teymi fögnuðu tískuvikunni í París á dögunum í virtu versluninni Dover Street parfums market þar sem ilmvötn Fischersunds fóru í sölu.

„Mér leið eins og alvöru prinsessu“
Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner kom tískusýningargestum á óvart í gær þegar hún lokaði sýningu franska tískuhússins Coperni með stæl. Kylie gekk tískupallinn síðust allra, rokkaði svartan galakjól og minnti á illgjarna Disney drottningu.

Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar
Vísindakonan og ofurskvísan Áshildur Friðriksdóttir er 28 ára gömul og stundar doktorsnám í hinum eftirsótta og virta háskóla Stanford í Kaliforníu. Hún sér framtíðina fyrst og fremst fyrir sér á rannsóknarstofunni að skoða kristalbyggingar í smásjánni. Samhliða því hefur hún mikla ástríðu fyrir tísku og hætti í listaháskólanum Parsons í New York til þess að færa sig yfir í verkfræðina.

Laufey og Júnía í fremstu röð í París
Ofurtvíburarnir Laufey Lin og Júnía Lin eru miklir heimsborgarar og stöðugt á faraldsfæti. Laufey kláraði nýverið langt tónleikaferðalag með síðasta stoppi á stórri tónlistarhátíð í Maryland og fagnaði með því að fljúga til höfuðborgar hátískunnar og hitta systur sína á tískuviku í París.

„Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“
Helga Guðrún Hrannarsdóttir verður í desember fyrsti Íslendingurinn til að ljúka námi í tískumarkaðsfræði og -samskiptum frá ESMOD, elsta tískuháskóla Frakklands. Undanfarin þrjú ár hefur hún upplifað drauminn í hátískuborginni París.

Steldu stílnum af heimili Laufeyjar
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hefur búið sér til fallegt heimili í Los Angeles, þar sem klassísk skandinavísk hönnun mætir hlýlegum og sjarmerandi stíl. Laufey deildi nýverið myndum úr dúkkuhúsinu sínu, eins og hún orðaði það, með fylgjendum sínum á Instagram.

Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki
„Kerfið okkar nýtist öllum aðilum sem eru að selja fatnað á netinu. Það nýtist líka þeim sem nú þegar bjóða upp á að fólk geti „séð“ hvernig það mátast í flíkina,“ segir Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir og vísar þar til „virtual fitting,“ sem sífellt fleiri eru að taka upp.

Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt
Prófessor í grafískri hönnun segir nýtt merki Alþingis mjög vel heppnað. Eðlilegt sé að merki taki breytingum og í hans huga hafi Alþingismerkið aldrei verið heilagt.