Stjarnan

Stjarnan

Fréttir af Ungmennafélaginu Stjörnunni frá Garðabæ.

Fréttamynd

„Stjörnufólk er pirrað“

Hlynur Bæringsson segir stuðningsmenn Stjörnunnar pirraða yfir skiptum þjálfarans Baldurs Þórs Ragnarssonar innan Garðabæjar frá Stjörnunni yfir til Álftaness í Bónus deildinni í körfubolta. 

Körfubolti
Fréttamynd

Dagur snýr heim úr at­vinnu­mennsku

Örvhenta skyttan Dagur Sverrir Kristjánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna og mun spila með liðinu í Olís deild karla á næsta tímabili. Hann snýr því heim til Íslands úr atvinnumennskunni.

Handbolti
Fréttamynd

„Þú þarft raun­veru­lega að þjást“

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segir að það hafi verið extra sætt að slá KR úr leik í Mjólkurbikar karla í kvöld, eftir að hafa tapað fyrir KR-ingum í Bestu-deildinni fyrir aðeins fimm dögum síðan.

Fótbolti
Fréttamynd

Röð á­falla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“

Baldur Þór Ragnars­son, þjálfari ríkjandi Ís­lands­meistara Stjörnunar, segir trúnna enn til staðar innan liðsins gagn­vart því að hafa betur gegn Tindastól í odda­leik í undanúr­slitum Bónus deildarinnar í kvöld þrátt fyrir að hvert áfallið á fætur öðru hafi dunið á liðinu.

Körfubolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum

Stjarnan og ÍA áttust við í fimmtu umferð Bestu deildar karla á Samsung-vellinum í dag. Skagamenn voru sterkari aðilinn og uppskáru verðskuldaðan sigur. Stjarnan braut ísinn með marki frá Benedikt Warén og leiddi í hálfleik en Markús Páll Ellertsson jafnaði metin í síðari hálfleik og skömmu fyrir leikslok bætti Viktor Jónsson öðru marki Skagamanna við. Lokastaðan 1-2 fyrir ÍA og fyrsti sigur þeirra gulklæddu staðreynd.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Stjörnu­fólk stendur í ströngu á sunnu­daginn

Það stefnir allt í afar spennandi sunnudag fyrir stuðningsfólk Stjörnunnar. Karlalið félagsins tekur á móti ÍA í Bestu deild karla og stuttu seinna getur Stjarnan tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta.

Körfubolti
Fréttamynd

Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heima­leik

Stjarnan og Valur áttust við í annarri umferð Bestu deildar kvenna á Samsung-vellinum í kvöld. Stjarnan var sterkari aðilinn allan leikinn og uppskar verðskuldaðan sigur. Birna Jóhannsdóttir skoraði fyrra mark Stjörnunnar en Jana Sól Valdimarsdóttir það síðara. Lokastaðan 2-0.

Íslenski boltinn