Óskarstilnefningar 2024: Oppenheimer í aðalhlutverki en Volaða land úr leik Framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna, Volaða land í leikstjórn Hlyns Pálmasonar, er ekki á meðal þeirra erlendu mynda sem tilnefndar eru til Óskarsverðlauna í ár. Lífið 23. janúar 2024 14:23
Myndaveisla: Túbering, glingur og 80's múndering Annar þáttur af Idol var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 síðastliðinn föstudag. Sjö keppendur stigu þar á svið en aðeins sex komust áfram í lok kvölds. Lífið 23. janúar 2024 12:01
Tilnefningar til Óskarsverðlauna í beinni á Vísi Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin með pomp og prakt 10. mars næstkomandi þar sem helstu stjörnur leiklistarheimsins keppast um gullstyttuna eftirsóttu. Tilnefningarnar verða tilkynntar á eftir í beinu streymi, hér á Vísi og Stöð 2 Vísi. Bíó og sjónvarp 23. janúar 2024 10:01
Leikstjórinn Norman Jewison er fallinn frá Kanadíski leikstjórinn og framleiðandinn Norman Jewison er látinn, 97 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt myndum á borð við Moonstruck, In The Heat Of The Night og Fiðlaranum á þakinu. Lífið 23. janúar 2024 09:02
Sextán ára snillingur á Selfossi í andlitsmyndum Sextán ára stelpa á Selfossi kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að mála andlitsmyndir af fólki því hún hefur náð svo flottum árangri með myndirnar sína. Lífið 22. janúar 2024 20:30
Myndaveisla: Troðfullt hús þrátt fyrir leikinn Franska kvikmyndahátíðin opnaði með pompi og prakt í Bíó Paradís á fimmtudagskvöldið og fjöldi fólks lagði leið sína á Hverfisgötuna til að horfa á kvikmyndina L’Innocent (Hinn Saklausi) eftir Louis Garrell. Bíó og sjónvarp 22. janúar 2024 18:01
„Rosalegt áfall að sjá hann berja mömmu“ Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir áföll í æsku hafa litað líf hans að miklu leyti. Faðir hans var mikill drykkjumaður sem átti það til að breytast í skrímsli en frá móður sinni fékk hann ást og umhyggju. Lífið 22. janúar 2024 15:38
Myndaveisla: Stjörnum prýdd frumsýning Lúnu Það var líf og fjör í Borgarleikhúsinu síðastliðinn föstudaginn þegar sýningin Lúna var frumsýnd fyrir fullu húsi. Lífið 22. janúar 2024 14:01
Verbúðarstemning hjá Pálma Gunnarssyni Tónlist er eins og tímavél. Ótrúlegt er hve lag sem maður hlustaði á á ákveðnu skeiði, og heyrir svo aftur að einhverjum tíma liðnum, getur kallað fram sterkar tilfinningar sem tengjast þessu tímabili. Það er eins og ormagöng opnist og sogi mann aftur í tímann. Gagnrýni 22. janúar 2024 09:50
Leikarinn David Gail látinn Bandaríski leikarinn David Gail, sem var þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills, 90210 og Port Charles, er látinn 58 ára að aldri. Ekki er vitað hvernig andlát hans bar að. Lífið 21. janúar 2024 23:08
Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2024 fyrir ljóðið Verk að finna. Ljóðstafurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag. Menning 21. janúar 2024 21:13
Fallegustu bækur í heimi til sýnis í Garðabæ Fallegustu bækur í heimi eru nú til sýnis á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ. Grafískur hönnuður segir að í bókverkunum sé hugsað út í minnstu smáatriði, allt frá staðsetningu blaðsíðutalsins og því hvernig titlar séu settir upp. Menning 21. janúar 2024 15:45
Hámhorfið: Hvað eru handboltastrákarnir að horfa á? Strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu hafa staðið í ströngu í Þýskalandi síðustu daga og hafa margir landsmenn fylgst vel með. Blaðamaður náði tali af nokkrum leikmönnum þegar þeir áttu stund milli stríða og fékk að forvitnast um hvort þeir væru að horfa á eitthvað skemmtilegt sjónvarpsefni á milli æfinga. Lífið 21. janúar 2024 13:00
Gefur út nýja tónlist í fyrsta sinn í sex ár Tónlistarmaðurinn Justin Timberlake frumflutti á dögunum nýtt lag og stefnir í að gefa út fyrstu nýju plötuna í sex ár. Lagið heitir Selfish og flutti hann það á tónleikum í Memphis í Bandaríkjunum á föstudagskvöldið. Tónlist 21. janúar 2024 13:00
The Iron Claw: Endurtekningarsöm bræðrabylta Titill The Iron Claw vísar í auðkennisbragð fjölbragðaglímukappans Fritz Von Erich, sem var mikill sigurvegari í þeirri „íþrótt“ um miðja síðustu öld. Kvikmyndin fjallar að mestu leyti um syni hans fjóra sem fetuðu í fótspor hans og voru áberandi í glímheiminum á 9. og 10. áratugnum og alla þá harmleiki sem á þeim dundu. Gagnrýni 21. janúar 2024 08:16
Vinnuvélar og dráttarvélar til sýnis í Borgarnesi Traktorar og vinnuvélar eiga allan hug manns í Borgarnesi, sem er nú með sýningu á módelum sínum í Safnahúsi Borgarfjarðar. Sjón er sögu ríkari. Lífið 20. janúar 2024 19:12
Fólk aðframkomið af siðferðisþreki haldi sig heima Leikskáldið Tyrfingur Tyrfingsson segist skilja gagnrýni sem leikritið Lúna hefur fengið en er ósammála því að það eigi að taka verkið af dagskrá þó fólk sé ósátt. Syndaselirnir verði líka að eiga sitt leikhús í friði. Menning 20. janúar 2024 18:44
Unnið með vitund en ekki sátt fjölskyldunnar Troels Uhrbrand Rasmussen dagskrárstjóri Pipeline, kvikmyndafyrirtækisins sem framleiddi þættina A Dangerous Boy, eða Hættulegur strákur, þar sem fjallað er um Sigga hakkara svokallaðan, segir margt skjóta skökku við í gagnrýni sem fram hefur komið á þættina og verklagið. Innlent 20. janúar 2024 08:00
Þessi keppandi var sendur heim úr Idolinu Annar þáttur Idolsins í beinni útsendingu fór fram í Idolhöllinni í kvöld. Þátturinn var æsispennandi, sjö keppendur mættu til leiks en aðeins sex komust áfram í lok kvölds. Lífið 19. janúar 2024 22:32
Það verður gott að sakna Auðar Haralds og muna hana Í dag kvöddu ættingjar og vinir Auði Haralds í einstaklega fallegri athöfn í Hallgrímskirkju. Tónlistin í höndum karlakórsins Voces Masculorum með frábærum einsöng Þorsteins Freys Sigurðssonar við píanóundirleik Sveins Arnars Sæmundssonar. Karl V. Matthíasson þjónaði fyrir altari og gerði það fallega og einlæglega og lýsti Auði vel og af virðingu í minningarorðum. Lífið 19. janúar 2024 16:42
Kosning er hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Storytel Awards 2024 Búið er að opna fyrir almenning að kjósa sína eftirlætis hljóðbók í forvali fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Storytel Awards 2024. Verðlaunin eru uppskeruhátíð þar sem höfundar, lesarar og útgefendur fagna saman útgáfu vönduðustu íslensku hljóðbóka liðins árs. Lífið samstarf 19. janúar 2024 16:01
„Þetta var bara brjálað!“ Fyrsti þáttur í fjórðu seríu spennuþáttanna True Detective fór í loftið á Stöð 2 síðasta mánudagskvöld en hún var tekin upp hér á landi á síðasta ári. Fjöldi Íslendinga kom að gerð þáttanna sem verða sýndir samtímis í Bandaríkjunum á sjónvarpsstöðinni HBO og á Stöð 2. Lífið samstarf 19. janúar 2024 13:53
„Það er svo mikil pressa í nútíma samfélagi“ Tónlistarkonan Elísabet Eyþórsdóttir, betur þekkt sem Beta Ey, segist þakklát fyrir að samfélagsmiðlar hafi ekki verið hluti af lífi hennar sem óöruggur unglingur. Hún segir tilkomu miðlanna ýta undir óraunhæfar kröfur og samanburð meðal ungmenna. Lífið 19. janúar 2024 12:08
„Hvaða sögu viltu fá?“ Idol-stjarnan Saga Matthildur Árnadóttir gaf út lagið Hvaða sögu viltu fá? á miðnætti sem er fyrsta smáskífa hennar af væntanlegri stuttskífu plötu. Frumflutningur lagsins verður í beinni útsendingu í Idol á Stöð 2 í kvöld. Lífið 19. janúar 2024 07:00
„Enginn íslenskur listamaður þvingaður til þátttöku í Eurovision“ Það verður enginn íslenskur tónlistarmaður þvingaður til þátttöku í Eurovision. Þetta sagði útvarpsstjóri eftir mótmæli tónlistarfólks við Ríkisútvarpið í dag. Minnst 550 tónlistarmenn vilja að RÚV beiti sér fyrir því að Ísraelum verði meinuð þátttaka í keppninni ellegar dragi Íslendingar sig úr henni. Innlent 19. janúar 2024 00:27
„Þar sem óttaslegin dómharkan ríkir“ Runólfur Ágústsson athafnaskáld skrifar sérstaka færslu á Facebook þar sem hann lýsir yfir fullum stuðningi við Tyrfing Tyrfingsson leikskáld og uppfærslu á verki hans Lúnu. Innlent 17. janúar 2024 15:49
Myndaveisla: Listrænt fjör í Marshallhúsinu Margt var um manninn á sýningaropnun hjá Þulu Gallery í Marshallhúsinu síðastliðinn laugardag. Sýningin, sem ber heitið Árfarvegur, býður gestum að stíga inn í heim þar sem hið stóra og smáa mætist og er samsýning Kristins E. Hrafnssonar, Önnu Maggýjar, Hrafnkels Sigurðssonar og Vikram Pradhan. Menning 17. janúar 2024 09:54
„Mér varð hreinlega óglatt" „Þetta er alrangt. Og það get ég sagt það með góðri samvisku,“ segir Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður. Innlent 17. janúar 2024 07:01
„Eins og ég sé að dansa sársaukann frá mér“ „Ég verð eiginlega ótrúlega lítið stressuð fyrir gigg og er meira bara spennt,“ segir tónlistarkonan Guðlaug Sóley, betur þekkt sem Gugusar. Hún er að fara að spila á bransahátíðinni Eurosonic í Groningen, Hollandi í vikunni ásamt því að troða upp á háhýsaklúbbi í Amsterdam. Blaðamaður ræddi við Gugusar, sem var sömuleiðis að senda frá sér lagið Ekkert gerðist. Tónlist 16. janúar 2024 11:31
Segir Borgarleikhúsið ekki virða óskir þolenda Heiðars Talskona Stígamóta segir leikstjóra og leikskáld verksins Lúnu, áður Kvöldstund með Heiðari snyrti, og Borgarleikhúsið ekki fara með rétt mál hvað varðar viðhorf og aðkomu þolenda Heiðars að sýningunni og innihaldi hennar. Innlent 16. janúar 2024 10:41