Komu Svavari Erni á óvart í beinni Nokkrar af bestu söngkonum landsins mættu í stúdíó Bylgjunnar á Suðurlandsbraut og sungu til heiðurs Svavari Erni útvarpsmanni í Bakaríinu sem varð fimmtugur á dögunum. Lífið 9. mars 2024 13:17
Sultuslakur eftir grín Gísla Marteins Það fauk í Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing að sjá grín gert að kollega hans í stéttinni í Vikunni í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi. Hrafn Guðmundsson, skotspónn grínsins, er aftur á móti sultuslakur. Lífið 9. mars 2024 11:29
Tárin runnu niður kinnar Ég sit við hringborð á veitingastað í Hörpu. Staðurinn heitir víst Hnoss. Ég var að læra það. Það er hlegið og grínast. En ég get ekki hugsað um neitt nema tónleikana sem ég var á. Mér finnst við vera að brjóta lög með því að kryfja ekki upplifunina sem við urðum öll vitni að. Við skálum einu sinni, fyrir mögnuðum tónleikum. Mér finnst ég verða að segja öllum frá. Komast í tölvu. Skrifa. Það er ekki á hverjum degi sem maður tárast á tónleikum. Lífið 9. mars 2024 09:19
„Ég var í mörg ár að fá sjálfa mig til baka“ „Það er baráttukona í mér en það kom mér rosalega á óvart hvað ég var hugrökk í þessu ferli,“ segir tónlistarkonan Jóna Margrét sem hafnaði nýverið öðru sæti í Idolinu. Blaðamaður ræddi við Jónu um tónlistina, taugaáfall í æsku, að byggja sig upp, hafa trú á sér, tileinka sér jákvætt og kraftmikið hugarfar og taka framtíðinni opnum örmum. Tónlist 9. mars 2024 07:00
Mynd um Megas frumsýnd Önnur heimildamynd ljósmyndarans Spessa, Afsakiði meðanað ég æli – heimildamynd um Megas, verður frumsýnd í Bíó Paradís þann 14. mars, á fimmtudaginn, og kvikmyndagerðarmaðurinn er frekar stressaður. Lífið 9. mars 2024 07:00
Frumsýning: Rándýr í aðalhlutverki í nýju tónlistarmyndbandi Tónlistarmennirnir Prettyboitjokkó og Daniil gáfu nýverið út lagið Sama um. Þeir voru nú að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið sem var tekið upp í Dúbaí og frumsýnt hér að neðan. Tónlist 9. mars 2024 07:00
Stubbasólin eignast eigið barn Barnið í sólinni í þáttunum um Stubbana Tinky-Winky, Dipsy, Laa-Laa og Po (reynið að lesa þetta án þess að raula lagið í hausnum á ykkur) er eitthvað sem flestir Íslendingar kannast vel við. Enda hafa Stubbarnir í gegnum árin verið tíðir gestir á heimilum hér á landi. Lífið 8. mars 2024 14:16
Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024 Grindavíkurbær verður heiðursgestur Menningarnætur Reykjavíkurborgar þann 24. ágúst 2024. Tilefnið er vinatengsl bæjarfélaganna og fimmtíu ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar í ár. Menning 8. mars 2024 12:23
„Ábyrgðin mikil“ Frost er komið á svið í Þjóðleikhúsinu og hitti Sindri Sindrason leikkonurnar Hildi Völu Baldursdóttur og Völu Kristínu Eiríksdóttur og leikstjórann Gísla Örn í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. Lífið 8. mars 2024 11:00
Skapari Dragon Ball látinn Japanski teiknarinn Akira Toriyama, skapari hinnar vinsælu teiknimyndaseríu og sjónvarpsþátta Dragon Ball, er látinn. Hann lést síðastliðinn föstudag, 68 ára að aldri. Lífið 8. mars 2024 08:27
Rúrik þakkar Miley Cyrus fyrir kynnin Þúsundþjalasmiðurinn Rúrik Gíslason þakkar poppstjörnunni Miley Cyrus fyrir kynni þeirra. Lífið 7. mars 2024 21:57
Fyrsta stikla Fallout lítur dagsins ljós Amazon hefur birt fyrstu almennilegu stikluna fyrir þættina Fallout sem byggja á samnefndum tölvuleikjum sem notið hafa gífurlegra vinsælda í marga árátugi. Þar má sjá þau Bíó og sjónvarp 7. mars 2024 15:11
Kristín Ómarsdóttir meðal þeirra sem hlaut Fjöruverðlaunin Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag í átjánda sinn. Verðlaunin voru afhent í þremur flokkum. Menning 7. mars 2024 14:45
Síðasta verk Nóbelsverðlaunahafans gefið út gegn hans eigin óskum Síðasta skáldsaga kolumbíska Nóbelsverðlaunahafans, Gabriel García Márquez, Until August, sem mætti útleggja sem Þangað til í ágúst, verður gefin út að honum látnum og gegn óskum hans. Menning 6. mars 2024 23:54
Með alls konar í bakpokanum eftir að hún varð móðir Sara Linneth, förðunarfræðingur og meistaranemi, segir að það hafi haft ýmsar áskoranir í för með sér að vera móðir, meðal annars á edrúlífið. Sara ræðir málin á einlægan hátt í hlaðvarpsþættinum Mömmulífið með þeim Ástrósu Trausta og Guðrúnu Sørtveit. Lífið 6. mars 2024 13:50
Listræn og lífleg starfsemi í gömlu Áburðarverksmiðjunni Í Gufunesi, þar sem Áburðarverksmiðja ríkisins var áður, má nú finna fjölbreytta starfsemi. Í einni byggingunni hafa listamenn tekið sér bólfestu. Listamaðurinn Narfi Þorsteinsson og kvikmyndagerðamaðurinn Sindri Steinarsson gerðu myndband um starfsemina sem má sjá hér í pistlinum. Menning 6. mars 2024 12:07
Björgvin Gíslason látinn Björgvin Gíslason, einhver snjallasti gítarleikari landsins, varð bráðkvaddur í gær. Fráfall hans má heita áfall fyrir íslenska tónlistarbransann. Auk þess að vera gítarleikari í fremstu röð var hann einstaklega vel liðinn af öllum sem hann þekktu, síbrosandi og sendi frá sér góða strauma. Innlent 6. mars 2024 11:07
Forstjórinn tekur fram kjuðana á ný Birgir Jónsson forstjóri Play hefur ákveðið að rífa fram kjuðana á ný og hefja leik með sínum fornu félögum í þungarokkssveitinni Dimmu. Lífið 6. mars 2024 10:28
Dauðvona maður horfði á Dune 2 í fartölvu leikstjórans Kvikmyndin Dune Part 2 eftir Denis Villeneuve hefur vakið mikla lukku í kvikmyndahúsum um heiminn allan eftir að hún var frumsýnd á dögunum. Tveir menn fengu að horfa á myndina í fartölvu leikstjórans á sjúkrahúsi í Quebec í Kanada, sex vikum á undan öðrum. Bíó og sjónvarp 6. mars 2024 10:08
Myndaveisla: Yfir þúsund manns í listrænu fjöri í Hveragerði Menningarlífið iðaði í Hveragerði síðastliðinn laugardag þar sem yfir þúsund manns lögðu leið sína á sýningaropnun Listasafns Árnesinga. Var um að ræða sýningu fimm listamanna sem öll hafa verið áberandi í sýningarhaldi undanfarin ár, bæði erlendis og hérlendis. Menning 6. mars 2024 09:01
Adda Rúna nýr skrifstofustjóri menningarborgar Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, Adda Rúna, hefur verið ráðin í starf skrifstofustjóra menningarborgar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Starfið var auglýst í október síðastliðnum og sóttu þrjátíu manns um starfið. Innlent 6. mars 2024 09:00
True Detective: Draugagangur á Dalvík Fjórða þáttaröð True Detective hefur nú runnið sitt skeið og allir sex þættirnir komnir í spilara Stöðvar 2+. Skoðanir hafa verið skiptar um þetta True Detective innlegg mexíkóska leikstjórans Issa López, svo mikið að legið hefur við netóeirðum á Twitter (X) og Instagram. Gagnrýni 6. mars 2024 07:48
Vill hafa nærbuxurnar sínar víðar Víðar nærbuxur, íslenskur snúður með karamelluglassúr og minningarkassi eru meðal hluta sem tónlistarmaðurinn Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps gæti vart lifað án. Hann segist eiga erfitt með að henda ólíklegasta dóti, jafnvel skrám í tölvum. Lífið 5. mars 2024 15:44
Myndaveisla: Þotulið hönnunarbransans fagnaði með stæl Það var margt um manninn á efri hæð Priksins síðastliðinn föstudag við opnunarteiti Strik Stúdíó. Þotulið úr hönnunarbransanum lét sig ekki vanta og gestir skemmtu sér vel. Menning 5. mars 2024 12:21
Hebbi sat inni með sakborningum í Geirfinnsmálinu Herbert Guðmundsson – Hebbi – er gestur í nýjasta hlaðvarpi Einars Bárðarsonar, Einmitt og ræðir þar meðal annars þá tíma þegar hann sat í fangelsi. Þetta var tími sem breytti öllu. Lífið 5. mars 2024 09:00
Viðurkenna að hafa greitt Swift fyrir að koma bara fram í Singapore Forsætisráðherra Singapore hefur viðurkennt að hafa niðurgreitt kostnað við tónleika Taylor Swift, gegn því að tónlistarkonan héldi ekki tónleika annars staðar í suðausturhluta Asíu. Erlent 5. mars 2024 07:09
Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum uppselt fyrir opnun Það var margt um manninn í opnun á nýju rými Gallery Ports síðastliðinn laugardag. Nokkrar stórstjörnur íslenskrar myndlistar stóðu þar á samsýningunni Lost Track en gestir biðu í röð eftir að komast inn og fullt var út úr dyrum. Menning 4. mars 2024 20:00
„Óþekka barnið“ í íslenskri myndlist fer nýjar leiðir „Ég hef auðvitað upplifað ýmis konar atburði og tráma eins og margir,“ segir myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson og bætir við að mikil heilun eigi sér stað þegar hann máli. Hann opnar sýninguna Rex Spirituum næstkomandi laugardag í VEST. Menning 4. mars 2024 17:00
Langar að breyta senunni og koma inn með jákvæðnina „Ég hef aldrei staðið jafn hratt upp til að segja pabba að ég væri kominn í fyrsta sæti,“ segir tónlistarmaðurinn Daníel Dagur Hermannsson, jafnan þekktur sem Danjel. Daníel er sautján ára gamall og stefnir langt í tónlistarbransanum en lagið hans SWAGGED OUT skaust á toppinn á streymisveitunni Spotify í síðustu viku. Tónlist 4. mars 2024 13:38
Myndaveisla: Rafmögnuð stemning á Söngvakeppninni Úrslit Söngvakeppninnar fóru fram á laugardag í Laugardalshöll þar sem Íslendingar völdu framlag landsins til Eurovision 2024. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari með laginu Scared of Heights. Lífið 4. mars 2024 11:53