Iniesta í skammarkrókinn hjá UEFA og fær eins leiks bann Andres Iniesta var á dögunum úrskurðaður í eins leiks bann í Meistaradeild Evrópu þar sem að eftirlitsmenn UEFA telja að Barcelonaleikmaðurinn hafi vísvitandi fengið gult spjald í fyrri leiknum gegn Shakhtar Donetsk frá Úkraínu. Iniesta tók út leikbann í síðari leiknum í Úkraínu en UEFA hefur ákveðið að ákveðið að Iniesta verði einnig í leikbanni í fyrri leiknum gegn Real Madrid í undanúrslitum keppninnar og þeim úrskurði hafa forráðamenn Barcelona áfrýjað. Sport 19. apríl 2011 09:39
Ronaldo dreymir um að mæta Man. Utd í Meistaradeildinni Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, dreymir um að mæta sínu gamla félagi, Man. Utd, í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 15. apríl 2011 10:45
Mourinho fyrir Barcelona-leikina: Æfir liðið í að spila manni færri Það kunna fáir betur að vinna sálfræðistríð fótboltans en einmitt Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, og nú er kappinn byrjaður að undirbúa sig, liðið sitt og ekki síst knattspyrnuheiminn fyrir leikina á móti Barcelona. Real og Barcelona mætast fjórum sinnum á næstu vikum og þar af eru tveir leikir í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 14. apríl 2011 13:00
Van Der Sar hljóp 64 metrum meira en Torres Það var ekki nóg með að Fernando Torres tækist ekki að skora í ellefta leiknum í röð í Chelsea-búningnum þá var ákefð hans ekki mikil í leiknum mikilvæga á móti Manchester United í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöldið. Fótbolti 14. apríl 2011 12:15
Redknapp vildi ekki gera Gomes að blóraböggli Harry Redknapp, stjóri Tottenham, neitaði að gagnrýna brasilíska markvörðinn Heurelho Gomes, þrátt fyrir að hann hafi fengið á sig mikið klaufamark í 0-1 tapi Tottenham á móti Real Madrid í gær í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 14. apríl 2011 11:45
Mourinho ver liðsval sitt Jose Mourinho segir að það hafi verið rétt hjá sér að stilla upp sínu sterkasta liði gegn Tottenham í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 13. apríl 2011 21:30
Redknapp: Verðum að vera aftur með á næsta ári Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hvatti sína menn til að sýna hvað í þeim býr og tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu aftur fyrir næsta tímabil. Fótbolti 13. apríl 2011 21:21
El Clásico fjórum sinnum á átján dögum Spænsku stórliðin Real Madrid og Barcelona munu á næstunni eigast við fjórum sinnum á aðeins átján daga tímabili. Óhætt er að segja um að veislu sé að ræða fyrir knattspyrnuunnendur víða um heim. Fótbolti 13. apríl 2011 18:45
Schalke sendi skýr skilaboð til Manchester Schalke komst áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með miklum stæl í kvöld. Liðið lagði Evrópumeistara Inter á heimavelli, 2-1, og 7-3 samanlagt. Fótbolti 13. apríl 2011 18:15
Meistaradeildarævintýri Tottenham á enda Real Madrid vann í kvöld 1-0 sigur á Tottenham og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Real vann samanlagðan 5-0 sigur en Cristiano Ronaldo skoraði eina mark leiksins í kvöld, þökk sé skelfilegra mistaka Huerelho Gomes í marki heimamanna. Fótbolti 13. apríl 2011 17:54
Mourinho: Tottenham verður að skora sex mörk til að slá út Real „Ég er mjög stoltur af því að við erum enn taplausir í Meistaradeildinni," sagði José Mourinho, þjálfari Real Madrid á blaðamannafundi fyrir seinni leik liðsins á móti Tottenham í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Real Madrid vann fyrri leikinn 4-0 og aðeins stórslys kemur í veg fyrir að liðið komist í undanúrslitin á móti erkifjendum sínum í Barcelona. Fótbolti 13. apríl 2011 14:45
Harry Redknapp: Kraftaverkin gerast Harry Redknapp, stjóri Tottenham, neitar að gefa upp vonina að Tottenham komist áfram í Meistaradeildinni þrátt fyrir að liðið hafi tapað 0-4 í fyrri leiknum á móti Real Madrid. Seinni leikur liðanna fer fram á White Hart Lane í kvöld. Fótbolti 13. apríl 2011 14:15
Ferguson flýgur til Þýskalands í dag Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, vill ekkert staðfesta það að félagið sé búið að ganga frá kaupum á David de Gea, markverði Atletico Madrid. Edwin van der Sar leggur skóna á hilluna í vor og margir bíða spenntir eftir því hver verði eftirmaður hans í marki félagsins. Enski boltinn 13. apríl 2011 13:30
Sir Alex: Sá ekki hvernig þeir gátu byrjað með Torres á bekknum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagðist hafa verið nokkuð viss um það að Fernando Torres yrði í byrjunarliði Chelsea í seinni leiknum á móti United í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. United tryggði sér sæti í undanúrslitunum með 2-1 sigri á Old Trafford í gær þar sem Torres var tekinn útaf í hálfleik. Fótbolti 13. apríl 2011 10:45
Giggs: Seinna markið kom á hárréttum tíma Ryan Giggs átti stóran þátt í því að Manchester United sló Chelsea út úr átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og komst í undanúrslitin. Giggs lagði upp öll þrjú mörk United í leikjum þremur, sigurmarkið fyrir Wayne Rooney í fyrri leiknum og svo mörkin þeirra Javier Hernandez og Ji-Sung Park í gærkvöldi. Fótbolti 13. apríl 2011 10:15
Messi jafnaði 60 ára gamalt met Lionel Messi skoraði í gær sitt 48. mark á tímabilinu og jafnaði þar með 60 ára gamalt met á Spáni. Fótbolti 13. apríl 2011 06:00
Ancelotti: Þurfum að bíða eftir Torres Carlo Ancelotti segir að Manchester United hafi átt skilið að fara áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu en United vann í kvöld 2-1 sigur á Chelsea í fjórðungsúrslitum keppninnar og 3-1 samanlagt. Fótbolti 12. apríl 2011 22:38
Giggs: Áttum þetta skilið Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, átti góðan leik í kvöld en hann lagði upp bæði mörk sinna manna í 2-1 sigri á Chelsea í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 12. apríl 2011 21:15
Barcelona kláraði skylduverkið Barcelona er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með 1-0 sigri á Shakhtar Donetsk á útivelli og því samanlagt, 6-1. Fótbolti 12. apríl 2011 18:15
Meistaradeildarmartröð Chelsea heldur áfram - United áfram Manchester United er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 sigur á Chelsea á heimavelli og 3-1 samanlagt. Javier Hernandez og Ji-Sung Park skoruðu mörk United í kvöld en Didier Drogba fyrir Chelsea. Fótbolti 12. apríl 2011 16:19
Tottenham bannar níðsöng um Adebayor Stuðningsmenn Tottenham verða undir ströngu eftirliti á morgun þegar liðið leikur gegn spænska liðinu Real Madrid í síðari leiknum í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Tottenham tapaði fyrri leiknum 4-0 og þar skoraði Emmanuel Adebayor fyrrum leikmaður Arsenal tvívegis og það kunnu stuðningsmenn Tottenham ekki að meta. Fótbolti 12. apríl 2011 15:30
Berlusconi: Ætla að kaupa Ronaldo ef AC Milan verður meistari Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan og forsætisráðherra Ítalíu, hefur mjög háleit markmið fyrir sumarið fari svo að AC Milan vinni ítalska meistaratitilinn í vor. Fótbolti 12. apríl 2011 14:15
Ancelotti: Sigur hjá Chelsea er mikilvægari en mark hjá Torres Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, ætlar að reyna að brydda upp á einhverjum nýungum í kvöld þegar Chelsea sækir Manchester United heim í seinni leik liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. United vann fyrri leikinn 1-0 á Brúnni. Fótbolti 12. apríl 2011 13:15
Ferguson ekki að hugsa um þrennuna Man. Utd og Chelsea mætast í kvöld í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn fer fram á Old Trafford en Man. Utd gerði sér lítið fyrir í fyrri leiknum á Stamford Bridge og vann, 0-1. Fótbolti 12. apríl 2011 07:00
Ancelotti: Unnum á Old Trafford þegar við þurftum þess í fyrra Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, þurfti að horfa upp á sína menn tapa 0-1 á heimavelli fyrir Manchester United í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 6. apríl 2011 21:32
Petr Cech: Það sáu allir að þetta var víti Petr Cech, markvörður Chelsea, var allt annað en sáttur með það að Chelsea skyldi ekki fá vítaspyrnu í lokin þegar liðið tapaði 0-1 á móti Manchester United í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 6. apríl 2011 21:22
Ferguson: Wayne sýndi hugrekki sitt í kvöld Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var ánægður með 1-0 útisigur á Chelsea í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Wayne Rooney skoraði eina mark leiksins en United gat þakkað frábærri markvörslu Edwin van der Sar fyrir sigurinn sem og því að Alberto Undiano Mallenco dæmdi ekki víti þegar Patrice Evra felldi Ramires undir lok leiksins. Fótbolti 6. apríl 2011 21:14
Ferdinand: Kominn tími á að við fengjum lukkuna í lið með okkur Manchester United vann 1-0 sigur á Chelsea í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Waye Rooney skoraði sigurmarkið á 24. mínútu en undir lokins átti Cheslea að fá víti þegar Patrice Evra felldi Ramires. Fótbolti 6. apríl 2011 20:59
Barcelona fór illa með Shakhtar Donetsk og vann 5-1 sigur Það virðist fátt ætla að koma í veg fyrir að Barcelona og Real Madrid mætist í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Real Madrid vann 4-0 heimasigur á Tottenham í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitunum í gærkvöldi og í kvöld vann Barcelona síðan 5-1 sigur á úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk. Fótbolti 6. apríl 2011 18:11
Wayne Rooney tryggði Manchester United sigur á Brúnni Wayne Rooney tryggði Mancehster United 1-0 sigur á Chelsea í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en United er því í mjög góðri stöðu fyrir síðari leikinn á Old Trafford. Rooney skoraði eina mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik eftir frábæran undirbúning Ryan Giggs en þetta var fyrsti sigur United-liðsins á Stamford Bridge í níu ár. Fótbolti 6. apríl 2011 17:57