Að taka til í orkumálum Það efast engin um að við mannkynið verðum að hætta sem allra fyrst að nota jarðefnaeldsneyti og nota þess í stað endurnýjanlega orkugjafa eins og vatnsafl, jarðvarma, vind- og sólarorku. Við hér á Íslandi getum verið þakklát fyrir að 99,9% raforkuframleiðslu hérlendis er endurnýjanleg orka. Skoðun 16.9.2025 08:02
Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Töluverðir möguleikar eru til að endurheimta votlendi á ríkisjörðum þar sem ríkið situr á þúsundum hektara framræsts lands. Ekkert votlendi hefur verið endurheimt síðustu ár þrátt fyrir að framræst land sé stærsta einstaka uppspretta gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Innlent 16.9.2025 07:02
Bein útsending: Umhverfisþing 2025 Umhverfisþing 2025 fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag og á morgun en þingið er það fjórtánda í röðinni. Meginþemu þingsins verða hafið, líffræðileg fjölbreytni og loftslagsmál. Innlent 15.9.2025 12:30
Ísland gæti þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða til að standa við skuldbindingar Innlent 12.9.2025 11:54
Samstarf um loftslagsmál og grænar lausnir Á sama tíma og heimurinn glímir við óstöðugleika í alþjóðamálum, orkumörkuðum og viðskiptum, vex þörfin fyrir raunverulegar loftslagsaðgerðir. Við höfum mikil tækifæri til að ná árangri. Reynslan sýnir að þegar við hér á landi höfum haft hugrekki til að horfa lengra og ráðast í djörf skref, hefur það skapað okkur forskot sem enginn efast um í dag. Skoðun 3. september 2025 08:46
Ísland standi frammi fyrir hamfarakólnun verði ekkert gert Breytingar í veltihringrás Atlantshafsins af sökum loftslagsbreytinga gætu valdið því að hringrás Golfstraumsins rofni og verulega kólni á Íslandi. Fagstjóri loftslagsmála hjá Veðurstofu Íslands segir Ísland standa frammi fyrir hamfarakólnun. Innlent 31. ágúst 2025 11:32
Ósammála því að jarðvarmavirkjanir séu í losunarbókhaldinu Forsvarsmenn HS orku eru ósammála því að losun frá jarðvarmavirkjunum ætti að falla undir losunarbókhald Íslands á gróðurhúsalofttegundum. Eldvirknin á Reykjanesi sé ástæða þess að losun virkjunarinnar í Svartsengi hafi aukist um meira en sextíu prósent á milli ára. Innlent 31. ágúst 2025 07:02
Skoða að endurheimta votlendi til að stöðva loftslagsbreytingar og Rússa Yfirvöld í Eistlandi kanna nú möguleikann á að endurheimta framræstar mómýrar og slá með því tvær flugur í einu höggi. Annars vegar til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hins vegar til þess að efla varnir landsins gegn mögulegri innrás Rússa. Erlent 29. ágúst 2025 13:49
Ekki lengur fjarlægur möguleiki að hringrás í Atlantshafi stöðvist Hættan á því að lykilhringrás í Norður-Atlantshafi gæti stöðvast vegna loftslagsbreytingar hefur verið verulega vanmetin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Allt að fjórðungslíkur gætu verið á hruni hringrásarinnar jafnvel þótt menn drægju verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Erlent 29. ágúst 2025 09:35
Loftslagsverkfræði: Verkefni sem borgar sig ekki að láta bíða Hrafnhildur Bragadóttir og Birna Sigrún Hallsdóttir hafa á undanförnum vikum greint frábærlega frá stöðu loftslagsmála á Íslandi miðað við núverandi stefnu, stjórnsýslu og ábyrgðir stjórnvalda í málaflokknum (Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? - Vísir og Nýtt landsframlag – og hvað svo? - Vísir). Skoðun 28. ágúst 2025 09:33
Faðir plokksins kenndi ráðherra að plokka Maðurinn á bak við plokk hreyfinguna er kominn hingað til lands til að hvetja Íslendinga til að taka upp rusl á göngu og hlaupum. Hann skellti sér í kajaksiglingu með umhverfisráðherra í tilefni þessa og minnti á að þeir plokka sem róa. Innlent 27. ágúst 2025 19:36
Losun Íslands jókst á öllum sviðum og langt í land með skuldbindingar Íslenskt samfélag, stóriðja og land losaði meira magn gróðurhúsalofttegunda í fyrra en árið 2023. Stóraukin losun frá jarðvarmavirkjuninni í Svartsengi átti meðal annars þátt í aukningunni. Horfur á að Ísland nái loftslagsskuldbindingum sínum fara versnandi ef eitthvað er. Innlent 27. ágúst 2025 12:02
Fundu steinaldarbyggð í Árósaflóa sem fór undir sjó eftir ísöld Steinverkfæri, örvaroddar og dýrabein eru á meðal þess sem kafarar hafa fundið í leifum steinaldarbyggðar á botni Árósaflóa í Danmörku í sumar. Byggðin fór á kaf þegar sjávarstaða hækkaði hratt eftir síðustu ísöld. Erlent 27. ágúst 2025 09:17
Metaregn í hlýindum á Íslandi Óvenjuleg hlýindi hafa einkennt það sem af er ári. Vorið var það hlýjasta sem sögur fara af og maí og júlí voru þeir hlýjustu á landsvísu frá upphafi mælinga. Ný landsmet voru einnig slegin fyrir bæði maí og ágúst. Innlent 26. ágúst 2025 10:07
Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Íslensk stjórnvöld þurfa að setja sér sitt eigið losunarmarkmið gagnvart Parísarsamkomulaginu eftir að í ljós kom að þau gátu ekki látið duga að vísa til samstarfs síns við Evrópusambandið. Þau nýta sér jafnframt ýtrasta frest til þess að uppfæra markmiðið sem átti að skila síðasta vetur. Innlent 26. ágúst 2025 08:51
Fótboltastelpan sem fór í verkfræði: „Höfum eiginlega verið saman að eilífu“ Pind nafnið vekur forvitni. Eruð þið Lóa Pind – hin fræga - þá skyldar? „Já,“ svarar Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix. „Við erum systkinabörn,“ útskýrir hún svo en Edda er dóttir hjónanna Ara Skúlasonar og Jönu Pind, sem er dönsk en var þó sjálf uppalin á Íslandi. Atvinnulíf 25. ágúst 2025 07:01
Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Lögreglumenn báru hóp loftslagsmótmælenda, þar á meðal Gretu Thunberg, út úr norska seðlabankanum í morgun. Hópurinn hefur mótmælt á ýmsum stöðum í vikunni, þar á meðal við stærstu olíuhreinsistöð Noregs. Erlent 22. ágúst 2025 08:44
Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Mikill vöxtur í framleiðslu sólarorku átti þátt í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í Kína um eitt prósent á milli ára á fyrri helmingi ársins. Ný vind og sólarorkuver sem bætast við í ár gætu annað allri orkuþörf Þýskalands og Bretlands samanlagt ef áætlanir ganga eftir. Erlent 21. ágúst 2025 11:55
Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Ísland stendur á tímamótum í umhverfismálum og það er kominn tími til að grípa til aðgerða. Á tímum óvissu í alþjóðamálum, aukins þrýstings á orkumarkaði og hnattrænna áskorana í loftslagsmálum höfum við ekki efni á að bíða. Skoðun 21. ágúst 2025 08:30
Nýtt landsframlag – og hvað svo? Innan fárra vikna þarf Ísland að skila inn nýju landsframlagi gagnvart Parísarsamningnum og gera grein fyrir stefnu sinni í loftslagsmálum fram til ársins 2035. Skoðun 19. ágúst 2025 14:31
Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Fyrrverandi innflytjendamálaráðherra Noregs og leiðtogi Framfaraflokksins vill vísa Gretu Thunberg, sænska aðgerðasinnanum, úr landi vegna þess að hún tók þátt í mótmælum við norska olíuhreinsistöð. Forsætisráðherrann hafnar því. Erlent 19. ágúst 2025 09:00
Hvaða framtíð bíður barna okkar árið 2050? Árið er 2050.Dóttir mín, sem nú er að fara í 10. bekk, verður þá orðin fertug – í blóma lífsins, rétt að komast á miðjan aldur. Ég hugsa oft til framtíðar hennar. Hvernig mun daglegt líf hennar líta út? Skoðun 18. ágúst 2025 07:32
Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Öldur gætu náð alla leið að styttunum frægu á Páskaeyju fyrir árið 2080 vegna hækkandi yfirborðs sjávar sem er ein af afleiðingum loftslagsbreytinga af völdum manna. Stytturnar laða tugi þúsunda ferðamanna að eyjunni árlega en ferðaþjónusta er undirstöðuatvinnugrein þar. Erlent 14. ágúst 2025 09:21
Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Hitamet falla nú hvert af öðru í Evrópu, meðal annars í suðurhluta Frakklands og Króatíu. Á sama tíma geisa gróðureldar víða um álfuna og hafa farið yfir 4.000 ferkílómetra. Erlent 13. ágúst 2025 09:03
Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Á næstu vikum rennur út lokafrestur sem ríki hafa til að uppfæra landsframlag sitt gagnvart Parísarsamningnum. Skoðun 13. ágúst 2025 07:01