Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Árni Sæberg skrifar 6. október 2026 13:56 Bjartsýni ríkti á Reyðarfirði haustið 2015 þegar rannsóknarskipið Oceanic Challenger hélt á Drekasvæðið. Á bryggjunni hittust fulltrúar Eykons, CNOOC og Petoro, sem stóðu saman að einu sérleyfanna til olíuleitar. Vísir/Egill Niðurstaða ítarlegrar skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar um olíuleit á Drekasvæðinu er að hverfandi líkur séu á að kolvetni finnist þar í vinnanlegu magni. Miðað við núverandi aðstæður og þekkingu telur Umhverfis- og orkustofnun ekki vera forsendur fyrir auglýsingu eftir umsækjendum um leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni.
Skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar var birt á vef stofnunarinnar í dag en hún byggir á rannsóknum og niðurstöðum leyfishafa sem tóku þátt í síðustu rannsóknum á Drekasvæðinu. Þeim rannsóknum lauk árið 2018, þegar Orkustofnun felldi niður síðasta rannsóknarleyfið. Fjarðabyggð, Viðskiptaráð og Heiðar hófu umræðuna á ný Umræða um hugsanlega olíuleit á Drekasvæðinu, sem er sá hluti Jan Mayen-hryggsins sem er innan lögsögu Íslands, hófst á ný fyrir alvöru í fyrra, eftir að hafa legið í dvala frá árinu 2021, þegar því var lýst yfir í stjórnarsáttmála síðari ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að ekki yrðu gefin út ný rannsóknarleyfi á Drekasvæðinu. Í mars í fyrra samþykkti bæjarráð Fjarðabyggðar að beina því til stjórnvalda að endurmeta hagkvæmni olíuleitar á Drekasvæðinu þar sem lítið miðaði í orkuskiptum á landinu. Í september sama ár birti Viðskiptaráð Íslands úttekt þar sem stjórnvöld voru hvött til að bjóða út sérleyfi til olíuleitar og vinnslu á Drekasvæðinu. Þar kom fram að olíufundur gæti haft í för með sér ríkulegan ávinning og að skatttekjur gætu numið 51 til 102 milljónum á hvern íslenskan ríkisborgara. Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar, sagði af því tilefni að best væri að stofnunin kláraði að yfirfara gögn frá því að síðast var leitað að olíu á Drekasvæðinu áður en ákvarðanir yrðu teknar um frekari leit. „Okkar hlutverk er í sjálfu sér að leggja mat á faglegu gögnin sem liggja til grundvallar. Hitt er meira svona skoðun hagsmunaaðila,“ sagði hann meðal annars. Heiðar ósáttur með ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, hafði áður talað á svipuðum nótum og bætt í með því að segja að stór og stöndug fyrirtæki sem tóku þátt í olíuleit við Drekasvæðið hefðu skilað inn rannsóknarleyfum vegna þess að þau hefðu ekki séð fram á að það væri arðbært að vinna olíu á svæðinu. Heiðar Guðjónsson, sem var stjórnarformaður olíuleitarfélagsins Eykon Energy, gagnrýndi þau orð Jóhanns Páls harðlega og sakaði hann um að dylgja um að íslenskt fyrirtæki hefði farið á hausinn í síðustu olíuleit hér við land. Í nóvember síðastliðnum greindi fréttastofa svo frá því að nýtt félag, Dreki Kolvetni, hefði verið stofnað um olíuleit og að sami Heiðar Guðjónsson færi fyrir félaginu. Ríkulegar olíulindir í næsta nágrenni Umhverfis- og orkustofnun hefur nú lokið við að yfirfara gögn frá því að síðast var leitað að olíu á Drekasvæðinu og birt skýrsluna Olíuleit á Drekasvæði: Samantekt á niðurstöðum sérleyfishafa og stöðu þekkingar. Í samantekt skýrslunnar segir að Jan Mayen-hryggur liggi til suðurs frá Jan Mayen og inn fyrir lögsögu Íslands. Svæðið innan íslenskrar lögsögu sé nefnt Drekasvæðið. Rannsóknir hafi sýnt að hryggurinn er að hluta til úr léttara efni heldur en almennt á við um berg hafsbotnsins og kenningin sé sú að fyrir opnun Atlantshafsins hafi Jan Mayen-svæðið legið sem flís á milli núverandi austurstrandar Grænlands og landgrunnsins vestur af núverandi Noregi, sem hafi færst út á mitt Norður-Atlantshafið í tengslum við opnun þess með myndun Ægishryggs og síðan færslu rekbeltis frá Ægishrygg á Reykjaneshrygg. „Ríkulegar olíu- og gaslindir eru á norska landgrunninu og sambærileg olíumyndandi jarðlög er einnig að finna á austurströnd Grænlands. Út frá þessari vitneskju liggur grunnhugmyndin um að slík jarðlög sé einnig að finna á Jan Mayen-svæðinu og því væri möguleiki á að olíu eða gas væri þar að finna í vinnanlegu magni. Fjöldi rannsókna hefur verið framkvæmdur á Drekasvæðinu og Jan Mayen-hryggnum um áratugaskeið,“ segir í skýrslunni. Á grundvelli þeirra rannsókna hafi verið skipuð samráðsnefnd um landgrunns- og olíuleitarmál árið 1999 og Alþingi samþykkt lög um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis árið 2001. Veitt hafi verið stök leyfi til olíuleitar árin 2001 og 2002. Árið 2005 hafi ríkisstjórn Íslands samþykkt að hefja skyldi undirbúning að útgáfu leyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á íslensku yfirráðasvæði. Í mars 2007 hafi verið kynnt tillaga að áætlun um hugsanlega útgáfu sérleyfa á Drekasvæðinu í samræmi við lög um umhverfismat áætlana. Fyrsta útboð á sérleyfum hafi farið fram árið 2009. Tvær umsóknir hafi borist en síðar verið dregnar til baka. Í kjölfar lagabreytinga, breytinga á reglum um framkvæmd leitar, rannsókna og vinnslu kolvetnis og frekari rannsókna á svæðinu hafi útboð verið auglýst að nýju 3. október 2011. Í kjölfarið hafi leyfi verið veitt eftirfarandi aðilum: Faroe Petroleum AS og Íslensku kolvetni ehf., Valiant Petroleum1 og Kolvetni ehf. og CNOOC International og Eykon ehf. Í samræmi við ákvæði samkomulags Noregs og Íslands frá 1981 um landgrunnið milli Íslands og Jan Mayen hafi norska ríkinu verið boðin þátttaka í leyfunum. Norðmenn hafi þekkst boðið og tekið þátt að fjórðungshlut í öllum leyfunum í gegnum Petoro, olíufélag norska ríkisins Fyrsta leyfið lagt inn 2014 Í skýrslunni eru rannsóknir rannsóknarleyfishafa raktar. Í tilfelli Faroe Petroleum hafi engar sjálfstæðar mælingar farið fram á leyfissvæðinu en fyrri rannsóknir hafi verið endurmetnar ásamt nánari greiningu á völdum gögnum. Niðurstaða leyfishafa hafi verið að vegna að minnsta kosti þriggja kílómetra þykkrar basaltþekju á yfirborði leyfissvæðisins væri ólíklegt að frekari endurvarpsrannsóknir myndu gefa svör varðandi tilvist kolvetnis og að óvissa og áhætta væru of mikil til að forsvaranlegt væri að ráðast í rannsóknarboranir. Leyfið hafi verið lagt inn 12. desember 2014. Félagið Ithaca, sem keypti leyfishafann Valiant, hafi framkvæmt endurvarpsmælingar á samtals 1.004 kílómetra löngum sniðum á leyfissvæðinu. Niðurstaða leyfishafa hafi verið að jarðfræði svæðisins væri mun flóknari en áður hefði verið talið, mælingar bentu til þess að hugsanleg móðurbergsjarðlög væru á umtalsvert meira dýpi en æskilegt sé til myndunar kolvetnis, ástand mögulegs geymslubergs væri óvíst meðal annars vegna greftrunar og þjöppunar með hugsanlegri ummyndun, og að líkur væru taldar á því að jarðlög hefðu orðið fyrir umtalsverðum áhrifum af tektónískum hreyfingum vegna uppbrots meginlandsskorpu. Samandregið hafi það verið mat leyfishafa að niðurstöður mælinga og greininga gæfu ekki tilefni til þess að fara í frekari rannsóknir. Leyfið hafi verið lagt inn 3. janúar 2017. CNOOC hafi ráðist í umfangsmiklar endurgreiningar á 3.700 kílómetrum af fyrirliggjandi mæligögnum, mælt samanlagt 2.647 kílómetra af nýjum endurvarpsmælingum ásamt 2.671 kílómetrum af þyngdarmælingum. Segulmælingar hafi farið fram á 2.639 kílómetrum og kortlagðir hafi verið 35.000 ferkílómetrar af hafsbotni á leyfissvæðinu. Eftir ítarlegar greiningar hafi það verið niðurstaða leyfishafa að þykkar basaltþekjur og ummerki brotahreyfinga og eldvirkni gerðu alla túlkun á dýpri hluta skorpunnar flókna og erfiða. Með vísan til tæknilegra örðugleika við að greina lögin, vegna lágs olíuverðs og með hliðsjón af breyttri stefnu fyrirtækisins hafi félagið lagt til við samstarfsaðila að leyfinu yrði skilað inn. Petoro hafi samþykkt tillöguna en Eykon óskað eftir því að finna nýja samstarfsaðila. Orkustofnun hafi ekki fallist á beiðni félagsins þar sem það uppfyllti ekki lögbundin viðmið um tæknilega getu og fjárhagslega burði og leyfið hafi verið fellt niður 7. mars 2018. ÍSOR fór yfir niðurstöður leyfishafa Þá segir í skýrslunni að Orkustofnun hafi falið ÍSOR, óháðu rannsókna- og ráðgjafarfyrirtæki á sviði jarðhita, jarðfræði og sjálfbærrar auðlindanýtingar á Íslandi og erlendis, að fara yfir greiningar leyfishafa og gefa stofnuninni sjálfstætt mat á mælingum, greiningum og túlkunum leyfishafa. ÍSOR bendi á að jarðfræði og jarðsaga Jan Mayen-svæðisins, og Drekasvæðisins sérstaklega, sé mun flóknari en áður var talið. Þar fari ekki síst að rekbeltaflutningurinn hafi haft í för með sér nokkur stutt virknitímabil þar sem kvikuhlaup og innskotavirkni hafi þrengt sér inn í hin fornu meginlandsjarðlög við flutninginn vestur. Stór hluti eldri jarðlaga frá því fyrir opnun Atlantshafsins sé undir einni eða fleiri hraunlagasyrpum auk þess sem víðtæk innskot og jarðskorpuhreyfingar hafi brotið upp eldri og yngri jarðlög. Þetta takmarki mjög notkun hljóðendurvarps til greininga á dýpri jarðlögum og við leit að vænlegum stöðum fyrir söfnun kolvetnis. Gróft mat á dýpi olíu- og gasmyndunarglugga í jarðlögum á Drekasvæði sé tilgreint á bilinu 900 til 1.600 metrar fyrir olíu og 1.850 til 3.500 metrar fyrir gas. Hraunlög og/eða síðari tíma setmyndun hefur hins vegar fært olíumyndandi jarðlög vel niður fyrir þau mörk. „Að mati ÍSOR er stór hluti áhugaverðra svæða sem litið var til í upphafi rannsókna tengdur innskotum sem hafi ýtt upp jarðlögum fyrir ofan sig en jafnframt hitað og brotið upp fyrirliggjandi olíumyndandi og olíusöfnunarjarðlög og því litlar líkur á að kolvetni finnist þar í vinnanlegum mæli. Í skýrslum ÍSOR er jafnframt bent á að nyrðri hluti Jan Mayen-svæðisins hafi orðið fyrir minni áhrifum af rekbeltaflutningnum og út frá fyrirliggjandi gögnum eru meiri líkur taldar á að kolvetni geti hafa varðveist í jarðlögum á Jan Mayen-hryggnum norður af Drekasvæðinu.“ Hvað varðar Drekasvæðið í heild sé það niðurstaða ÍSOR að frekar beri að líta á svæðið sem afmarkaða hryggi af meginlandsbergi innan í flóknu eldvirku umhverfi. Svæðið hafi orðið fyrir umtalsverðum áhrifum af rekferlum, brotahreyfingum, eldvirkni og innskotum. Hafi kolvetni myndast áður en móðurberg hefur grafist niður á núverandi dýpi sé umtalsverð hætta á að tektónískar hreyfingar á seinni stigum hafi opnað því leið út úr staflanum. Ekki útilokað en litlar líkur Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að Umhverfis- og orkustofnun hafi farið ítarlega yfir rannsóknir, túlkun og niðurstöður leyfishafa, farið yfir greiningar ÍSOR á þeim og kynnt sér margvíslegar aðrar greiningar og greinar varðandi túlkun og mat á því hvort og hvar kolvetni í vinnanlegum mæli geti verið að finna á Drekasvæðinu. Vegna þeirra aðstæðna sem séu á svæðinu og með hliðsjón af þeim ferlum og atburðum sem talið sé að hafi orðið þar sé enn þá ríkjandi mikil óvissa um tilvist, gerð og ástand hugsanlegra jarðlaga sem gætu staðið undir myndun, flutningi og varðveislu kolvetnis. „Samantekið eru taldar hverfandi líkur á að kolvetni finnist á Drekasvæðinu í vinnanlegu magni, en hafa ber í huga að ekki hefur verið sýnt fram á að ekkert kolvetni sé að finna á Drekasvæðinu eða Jan Mayen-hryggnum í heild.“ Þá segir að það virðist vera samhljóða álit leyfishafa og ÍSOR að eina leiðin til að draga úr þeirri óvissu sem sé á túlkun rannsakenda sé að bora rannsóknarholu sem nái niður í jarðlög, sem talið sé að séu frá því fyrir uppbrot og myndun Atlantshafsins. Með því móti megi betur kanna ástand jarðlaga, líkur á olíumyndun, tilvist geymslubergs og þakbergs, og til að bæta tengingar við hljóðendurvarpsmælingar. Út frá greiningum ÍSOR og leyfishafa á mælingum og túlkunum á jarðfræði svæðisins telji Umhverfis- og orkustofnun vænlegast að slík hola yrði boruð á nyrðri hluta Drekasvæðisins, eða í lögsögu Noregs á Jan Mayen-hrygg. Miðað við mat á þykkt yngri jarðlaga þyrfti að minnsta kosti að gera ráð fyrir þriggja til sex kílómetra djúpri borholu. Auglýsa ekki eftir umsækjendum Loks segir í kaflanum Næstu skref að Umhverfis- og orkustofnun bendi á að þau gögn sem nú liggja fyrir séu verðmæt fyrir vísindasamfélagið til rannsókna á hafsbotninum og jarðfræðilega sögu Íslands. Þá telji stofnunin mikilvægt að aðilar og stjórnvöld sem hafi hug á frekari greiningum á tækifærum á Drekasvæðinu hafi möguleika á að leggja sjálfstætt mat á þær niðurstöður sem fram hafa komið. Stofnunin hyggi því á eftirfarandi tvær aðgerðir: Unninn verði gagnapakki sem verði gerður aðgengilegur fyrir vísindasamfélagið og almenning með gagnsæi að leiðarljósi, í samræmi við heimildir stofnunarinnar. Unnar verði tillögur að reglum og viðmiðum varðandi afhendingu frum- og mæligagna, þar með talið varðandi gjaldtöku á slíkri þjónustu, samhliða framlagningu gagnapakkans. „Miðað við núverandi aðstæður og þekkingu telur Umhverfis- og orkustofnun ekki vera forsendur fyrir auglýsingu eftir umsækjendum um leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni, sbr. 1. mgr. 8. gr. kolvetnislaga.“ Í tilvitnuðu lagaákvæði segir að að jafnaði skuli auglýsa eftir umsækjendum áður en leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni er veitt.
Jarðefnaeldsneyti Bensín og olía Olíuleit á Drekasvæði Orkumál Loftslagsmál Umhverfismál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Sjá meira