Mun minni hækkun fasteignamats en í fyrra Fasteignamat á Íslandi hækkar að jafnaði um 11,7 prósent milli ára, þar af hækkar mat íbúðarhúsnæðis um 13,7 prósent. Í Vesturbyggð hækkar fasteignamatið um meira en fjórðung. Innlent 31. maí 2023 11:34
Bein útsending: Fasteignamat 2024 kynnt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mun kynna nýtt fasteignamat á opnum fundi sem hefst klukkan 10:30. Farið verður yfir verðþróun, framboð fasteigna og húsnæðisþörf. Viðskipti innlent 31. maí 2023 09:45
Kristrún vill að launahækkanir æðstu embættismanna fylgi markaðnum Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að laun æðstu embættismanna hækki ekki meira en laun á almennum markaði, enda væri það markmið laga um laun þeirra að þeir leiddu ekki launahækkanir í landinu. Hún og aðrir viðmælendur í Pallborðinu í dag voru sammála um að þörf væri á víðtæku samstarfi um vinnumarkaðinn en á mjög ólíkum forsendum. Innlent 30. maí 2023 19:20
Evrópumet í vaxtahækkunum Áhugaverðasta hliðin á starfi stjórnmálamannsins er að hitta fólk og hlusta á það sem það hefur að segja. Fyrir um ári síðan heyrði ég sögu margra sem lýstu stöðu sinni á húsnæðismarkaði. Áhyggjur þessa fólks hafa bara vaxið síðan þá. Skoðun 30. maí 2023 16:31
Hefur búið í bílnum sínum nánast allt skiptinámið Hollenskur skiptinemi ákvað að gera sér heimili í bílnum sínum. Þannig getur hann ferðast um Ísland, fengið innblástur og sleppt því að leigja íbúð til að spara sér pening. Lífið 27. maí 2023 21:00
Fjögur hundruð umsóknir um litla stúdíóíbúð Svo virðist sem alger örvænting ríki meðal leigjenda. Halldóra Jónasdóttir auglýsti litla stúdíóíbúð á dögunum og áður en hún vissi af voru komnar 200 umsóknir – samdægurs. Þær fóru í að verða 400 þegar upp var staðið. Innlent 26. maí 2023 11:50
Baráttan við verðbólguna Ákvörðun Seðlabankans um stýrivaxtahækkun kom ef til vill ekki mjög á óvart miðað við undangengnar ákvarðanir hans. Eina ráð hans virðist vera að ráðast á kaupmátt launafólks til að reyna að hafa áhrif á kauphegðun þeirra sem hafa meira á milli handanna enda hafa hinir tekjulægri ekki borið uppi mikinn vöxt neyslunnar. Skoðun 26. maí 2023 11:31
Íhugar að flytja úr landi vegna hækkananna Formaður VR segir galið að Seðlabankastjóri skuli skella skuldinni á verkalýðshreyfinguna þegar kemur að verðbólgu í landinu. Hann segir endalausar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar vera óskiljanlegar. Öryrki íhugar að flytja úr landi vegna stýrivaxtahækkana. Innlent 25. maí 2023 23:39
Bein útsending: Nýsköpun í mannvirkjaiðnaði Fundur um nýsköpun í mannvirkjaiðnaði verður haldinn hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, í Borgartúni 21, milli 9 og 12:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér á Vísi. Viðskipti innlent 25. maí 2023 09:29
Rödd íbúa sé algjörlega hunsuð Íbúasamtök Skerjafjarðar boðuðu til fundar í kvöld vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Skerjafirði. Gert er ráð fyrir fjórtán hundruð íbúðum sem rúma um 3500 manns í nýju deiliskipulagi og gæti íbúafjöldi hverfisins því sexfaldast. Innlent 24. maí 2023 21:36
Segir nauðsynlegt að gera hófsama kjarasamninga til langs tíma Seðlabankastjóri segir nauðsynlegt að gerðir verði hóflegir langtíma kjarasamningar og aðhald aukið í ríkisfjármálum til að ná verðbólgunni niður. Ef Seðlabankinn eigi einn að ná niður verðbólgu þurfi að hækka vexti enn frekar. Innlent 24. maí 2023 12:12
Rússíbaninn á húsnæðismarkaði Í mars síðastliðnum varaði ég við samdrætti í íbúðabyggingu, sjá m.a. hér. Nú eru fleiri að benda á sama vandamál bæði á Íslandi sem og annars staðar í Evrópu. Sjá t.d. hér, hér og hér. Víða er vandamálið að ekki má byggja vegna reglna um nýtingu lands ("zoning laws") sem hindra að t.d. illa nýttum skrifstofubyggingum eða bílastæðum sé breytt í íbúðarhúsnæði að hluta eða heild. Skoðun 18. maí 2023 11:01
Vilja kaupa 1.700 íbúðir og leigja út á kostnaðarverði Samtök leigjenda hafa óskað eftir viðræðum við stjórn Heimstaden um kaup á 1.700 íbúðum félagsins. Hugmynd samtakanna er að nýtt samvinnufélag kaupi íbúðirnar og að þær verði leigðar út á kostnaðarverði. Samvinnufélagið myndi tryggja leigjendum öryggi og langtímasamninga. Viðskipti innlent 17. maí 2023 13:35
Rýnt í leiguverð Umræða um leiguverð á íbúðarmarkaði hefur verið nokkuð hávær að undanförnu. Í þeirri umræðu hefur verið fullyrt að verðhækkanir á þessum markaði hafi verið úr öllu hófi og ekki í samræmi við almenna verðlagsþróun í landinu. Skoðun 17. maí 2023 13:31
Segir yfirlýsingu um boðaða hækkun á leiguverði minna á vísindaskáldskap Formaður samtaka leigjenda er hræddur um að mörgum hafi brugðið þegar stjórnarformaður leigufélagsins Ölmu boðaði hækkun á leiguverði í dag. Yfirlýsing stjórnarformannsins um að leiguverð sé of lágt minni á vísindaskáldskap. Innlent 14. maí 2023 19:30
Telur leiguverð of lágt og boðar hækkun Stjórnarformaður Ölmu leigufélags segir umræðu um félagið hafa verið mjög harða og ekki í samræmi við staðreyndir um leigumarkaðinn. Húsnæði sé einfaldlega dýrt, sama hvort fólk eigi húsnæðið sjálft eða leigi það. Hann segir leiguverð of lágt og boðar hækkun. Viðskipti innlent 14. maí 2023 13:22
Helsjúkur leigumarkaður í Reykjavík Við í Flokki fólksins viljum ræða leigumarkaðinn í Reykjavík á næsta borgarstjórnarfundi sem er 16. maí næstkomandi. Leiga er að sliga fjölmarga leigjendur sem eiga ekki krónu afgangs þegar búið er að greiða leigu og aðrar nauðsynjar. Grunnvandinn er húsnæðisskortur sem er mikill í Reykjavík. Það sárvantar húsnæði af öllu stærðum og gerðum. Skoðun 14. maí 2023 07:00
Eignasöluferli Heimstaden gæti tekið fimm ár Leigufélagið Heimstaden er ekki á leiðinni af íslenskum fasteignamarkaði strax heldur er félagið einungis að skoða hvernig það eigi að minnka við sig. Að sögn tilvonandi framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi er það eina sem hægt er að staðfesta að félagið muni ekki stækka við sig hér á landi. Viðskipti innlent 11. maí 2023 17:27
Leigufélög enn spennandi fjárfesting þrátt fyrir brotthvarf Heimstaden Leigufélagið Heimstaden mun á næstu mánuðum minnka íbúðasafn sitt á Íslandi. Ástæðan mun vera sú að lífeyrissjóðir vildu ekki fjárfesta í félaginu. Að sögn framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs þýðir þetta ekki að leigufélög þyki minna spennandi vara fyrir fjárfesta. Viðskipti innlent 11. maí 2023 11:52
Hartnær áttatíu prósent leigjenda ná ekki endum saman Sjötíu prósent íslenskumælandi leigjenda og áttatíu prósent enskumælandi eiga erfitt með að ná endum saman. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum við spurningum glænýrrar könnunar sem Samtök leigjenda standa að. Niðurstöðurnar sýna kolsvarta stöðu leigjenda á Íslandi. Innlent 11. maí 2023 11:20
Hvað verður loftlagssektin há vegna 35.000 íbúða? 800 milljónum af fjárlögum íslenska ríkisins ársins 2023 er ráðstafað til sektar vegna þess að við Íslendingar höfum sofið á verðinum og ekki staðið við skuldbindingar okkar vegna Kyoto loftlagsbókunarinnar. Parísarsamningurinn sem við höfum líkt og aðrar ábyrgðafullar þjóðir undirgengist, er mun viðameiri og skilyrði hans koma til kasta fjárlaga innan skamms eða 2030. Skoðun 11. maí 2023 09:30
„Það er Alma sem slær tóninn og hinir elta“ Formaður Samtaka leigjenda segir ekki rétt að Alma leigufélag sé ekki verðleiðandi á leigumarkaði hér á landi. Alma slái tóninn með hækkunum og almennir leigusalar elti. Hann hvetur leigjendur hjá Ölmu til að hafna hækkunum félagsins. Innlent 10. maí 2023 23:30
„Ómögulegt með nokkurri sanngirni að kalla slíka hækkun leiguokur“ Stjórnarformaður Ölmu íbúðafélags hf. segir félagið ekki vera hluta af húsnæðisvandanum, það sé frekar hluti af lausninni. Hann segir ósanngjarnt að ætla að einstök dæmi um miklar hækkanir á leiguverði eigi við um allan markaðinn. Viðskipti innlent 10. maí 2023 11:11
Málsvörn leigusala Málefni Ölmu íbúðafélags hf. hafa nokkuð verið til umræðu síðustu mánuði og þá sérstaklega vangaveltur um verðlagningu á leigusamningum félagsins. Skoðun 10. maí 2023 11:01
Ekki í boði að gefast upp Þann 12. júlí 2022 blés ríkisstjórn Íslands til blaðamannafundar og undirritaði rammasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga um að stefnt verði að byggingu 35 þúsund íbúða á næstu 10 árum. Skoðun 9. maí 2023 09:02
Væri slæmt að enda með 35 þúsund íbúðir sem uppfylli ekki skilyrði um dagsbirtu Arkitektar fagna því að yfirvöld stefni á uppbyggingu 35 þúsund íbúða á næstu tíu árum. Ekki megi þó gefa afslátt af gæðum húsnæðis. Nauðsynlegt sé að því verði stýrt hvernig uppbygging fari fram og verktakar eigi ekki að sjá um það einir. Innlent 7. maí 2023 15:46
Þrjú ný íbúðahverfi í byggingu á Selfossi Íbúum í Árborg hefur fjölgað um tæplega þrjátíu prósent á síðustu sjö árum og ekkert útlit er fyrir að það muni hægja á þessari fjölgun á næstu árum. Í dag eru þrjú íbúðahverfi í byggingu á Selfossi og eitt til viðbótar í samþykktarferli í sveitarfélaginu. Innlent 7. maí 2023 15:05
Rekin úr íbúðinni vegna smáhunds fósturdóttur sinnar Monika Macowska leigjandi er afar ósátt við hvernig staðið var að riftun leigusamnings hennar og á hvaða forsendum. Smáhundur sem hún fékk fyrir fósturdóttur sína sem er að eiga við áfallastreituröskun eftir alvarlegt áfall er uppgefin ástæða uppsagnarinnar. Innlent 7. maí 2023 09:04
Framkvæmdastjóri Ölmu segir útburð allra síðasta úrræði leigusala Framkvæmdastjóri Ölmu leigufélags segir útburðarferli allra síðasta úrræðið sem leigusalar leiti til. Félagið geri allt sem í sínu valdi stendur til að koma til móts við leigutaka í greiðsluvanda. Af og frá sé að tveggja mánaða skuld verði til þess að fólk sé borið út. Umboðsmaður skuldara segir rétt kröfuhafa mikinn. Innlent 6. maí 2023 12:27
„Ætli ég sofi ekki bara í bílnum“ Áttræður maður var á þriðjudaginn borinn út úr íbúð sinni sem hann hafði á leigu hjá Ölmu leigufélagi. Þar bjó hann ásamt hreyfihömluðum syni sínum en þeir eru nú á götunni að eigin sögn og vita ekki hvað tekur við. Innlent 4. maí 2023 19:41