Innlent

Leggja til að rífa skólann því úr­bætur yrðu of á­hættu­samar

Jón Þór Stefánsson skrifar
Leikskólinn Laugasól. Myndin er úr safni.
Leikskólinn Laugasól. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Foreldrum barna í leikskólanum Laugasól var tilkynnt í gær að járnbending húsnæðis leikskólans væri ekki góð. Verkfræðistofur leggja til að húsið verði rifið.

„Þegar byrjað var að grafa frá húsinu, sem byggt var árið 1965, kom í ljós að það stendur ekki á sökklum og jarðvegurinn er sendinn sem þýðir að hann er ekki hæfur til burðar miðað við þær endurbætur sem áætlaðar voru,“ segir í tölvupósti sem foreldrar fengu frá Valborgu Hlín Guðlaugsdóttur.

Þar segir að tvær verkfræðistofur hafi verið fengnar til sem álitsgjafar og þeirra álit verið að besti kosturinn í stöðunni væri að rífa húsið. Úrbætur við styrkingu hússins yrðu bæði dýrar og áhættusamar.

Þá kom fram að staða húsnæðis skólans hefði verið kynnt á fundi skóla- og frístundaráðs. Málið muni fara fyrir borgarráð í desember, en þar verði ákveðið hvaða leið verði farin.

„Þau börn sem annars hefðu verið í húsinu eru í Safamýri í dag og verður nánar farið yfir framhaldið í samráði við stjórnendur leikskólans. Þegar ákvörðun borgarráðs liggur fyrir verður unnið áfram með áætlanir og stjórnendur áfram upplýstir um framgang mála,“ segir í póstinum.

Þar segir einnig að skilningur sé fyrir hendi vegna þess að þetta geti valdið áhyggjum og óþægindum, en að borgin muni gera allt sem í hennar valdi stendur til að tryggja öryggi og vellíðan barnanna.

„Því miður liggja ekki fyrir nánari upplýsingar sem stendur en okkur þótti mikilvægt að upplýsa ykkur um stöðuna eins og hún er á þessari stundu.“

Rúv hefur eftir Ámunda Brynjólfssyni, skrifstofustjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, að bráðabirgðahúsnæði skólans verði áfram í Safamýri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×