Útlit fyrir hægari uppbyggingu þegar fólksfjölgun nær nýjum hæðum Útlit er fyrir að nýjar íbúðir rísi nú með álíka hraða hérlendis og sást árin 2022 og 2021. Á sama tíma fjölgar íbúðum á fyrsta byggingastigi ekki líkt og síðustu ár og eru merki um að fleiri íbúðir í byggingu standi ókláraðar en áður. Vísbendingar eru um að hægja eigi eftir á uppbyggingunni nú þegar stefnir í að mannfjölgun nái nýjum hæðum. Viðskipti innlent 11. ágúst 2023 12:22
Ráðstefna um húsnæðismál - Opið bréf til Alþingis og sveitarstjórna Bréf þetta er til kjörinna fulltrúa á Alþingi, sveitarstjórna, verkalýðsfélaga, lífeyrissjóða og þeirra sem láta sig húsnæðismál varða. Húsnæðismál á Íslandi hafa lengi verið í ólestri. Fyrir því eru margar ástæður og eru ólíkar skoðanir uppi um hvernig tryggja má öllum öruggt húsnæði í samræmi við nútímakröfur. Skoðun 11. ágúst 2023 07:31
Öryrkinn borinn út Það vakti athygli þegar Sýslumaðurinn í Keflavík seldi lítið einbýlishús öryrkja í Reykjanesbæ á uppboði fyrir 3 milljónir. Húsið var metið á 57 milljónir. Öryrkinn talar ekki íslensku og á við vanheilsu að stríða vegna höfuðáverka af völdum slyss. Tap öryrkjans nemur um 54 milljónum vegna aðgerða sýslumanns. Skoðun 10. ágúst 2023 17:31
Fyrsta skóflustungan að íbúðum VR í Úlfarsárdal Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum fjölbýlishúsum VR á lóð félagsins í Úlfarsárdal í dag. Byggðar verða 36 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum sem verða leigðar til félagsfólks VR. Innlent 10. ágúst 2023 14:25
Fyrsta skóflustungan að sérhönnuðu húsi fyrir fatlað fólk í Brekknaási Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og væntanlegir íbúar Sólveig Ragnarsdóttir, Aníta Sól Sveinsdóttir, Garðar Reynisson og Björn Eggert Gústafsson tóku í dag fyrstu skóflustungu að byggingu sex íbúða húss við Brekknaás 6. Innlent 9. ágúst 2023 15:22
Kuba borinn út og ÖBÍ undirbýr skaðabótamál Jakub Polkowski, 23 ára gamall öryrki í Reykjanesbæ, var í síðustu viku borinn út úr húsi sínu ásamt fjölskyldu af sýslumanninum á Suðurnesjum. Jakub og fjölskylda hans fluttu í félagslegt húsnæði á vegum sveitarfélagsins. Lögmaður Öryrkjabandalags Íslands kannar nú skaðabótarétt fjölskyldunnar vegna vinnubragða sýslumanns sem seldi húsið á nauðungaruppboði á þrjár milljónir króna. Innlent 8. ágúst 2023 16:42
Byggingarstig hússins hafi legið fyrir við kaup Fullyrðingar kaupanda húss í Hafnarfirði, um að logið hafi verið að honum að húsið hafi verið fulltilbúið, virðast ekki halda vatni. Í dómi frá árinu 2013 vegna meintra galla á húsinu segir að óumdeilt sé að fasteignin hafi verið skráð fokheld við kaupin og að það hafi komið fram í sölugögnum. Innlent 1. ágúst 2023 13:57
Kaupin frábær tíðindi fyrir þá sem tilheyra félaginu Leigufélag Búseta hefur fest kaup á 42 íbúðum leigufélagsins Heimstaden. Auk þess hafa félögin tvö undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 90 íbúðum til viðbótar. Viðskipti innlent 1. ágúst 2023 11:53
Formaður Leigjendasamtakanna gagnrýnir fyrirhugaðar lagabreytingar „Mér líst illa á þetta, enda gengur frumvarpið þvert á allar okkar athugasemdir varðandi breytingar á leigufjárhæð,“ segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, um drög að frumvarpi um breytingar á lögum um húsaleigu. Innlent 20. júlí 2023 06:43
Íbúum í Múlaþingi fjölgað um þrjú hundruð á síðustu tveimur árum Íbúum í Múlaþingi hefur fjölgað um þrjú hundruð á síðustu tveimur árum að sögn sveitarstjórans sem segir ungt fólk sækja í að flytja Austur á land. Þar spili möguleikar á fjarvinnu frá höfuðborginni stóran þátt. Innlent 19. júlí 2023 23:00
Kólnun á húsnæðismarkaði dragi verðbólgu niður fyrir spár Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að samdráttur í íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu geti orðið til þess að verðbólga hjaðni hraðar en spár gerðu ráð fyrir. Þó megi búast við því að Seðlabankinn hækki stýrivexti í næsta mánuði. Neytendur 19. júlí 2023 11:54
Verð húsnæðis lækkaði á höfuðborgarsvæðinu Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,1 prósent milli maí og júní. Vísitalan hækkaði um 0,7 prósent í mánuðinum á undan og hafði þá farið upp fjóra mánuði í röð. Tölfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) segir að heilt yfir sé íbúðaverð tiltölulega stöðugt. Viðskipti innlent 18. júlí 2023 16:31
Ráðist í lagabreytingar í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg Innviðaráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna brunavarna í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu til að tryggja að sem réttastar upplýsingar liggi fyrir á hverjum tíma um búsetu fólks. Innlent 18. júlí 2023 06:35
Nýtt íbúðahverfi muni rísa á Veðurstofuhæð Nýtt deiliskipulag sem mun heimila byggingu íbúða á fimmtán til þrjátíu þúsund fermetrum á Veðurstofureitnum er í bígerð samkvæmt nýlegri skipulagslýsingu Reykjavíkurborgar. Með deiliskipulaginu mun að auki nýtt húsnæði Veðurstofu Íslands og Veitna rísa. Innlent 13. júlí 2023 13:21
Leigan mun tvöfaldast eftir viðgerðir Geðræktarstöðin Grófin á Akureyri er í erfiðri stöðu í húsnæðismálum. Gera þarf framkvæmdir á húsnæðinu sem verða þó ekki gerðar nema með 110 prósenta hækkun leiguverðs. Innlent 12. júlí 2023 07:46
Nokkrir boðið fram milljónir til að færa fjölskyldunni húsið aftur Einstaklingar hafa sett sig í samband við bæjarráð Reykjanesbæjar og boðist til að leggja fram fjármuni til kaupa á húsi ungs öryrkja sem missti heimili sitt á nauðungaruppboði. Nýr eigandi hefur ekki sýnt boðinu áhuga. Innlent 5. júlí 2023 14:01
Spá samdrætti í komu nýrra íbúða á markaðinn Vænta má þess að að samdráttur verði í nýjum fullbúnum íbúðum hér á landi á næstu árum, samkvæmt nýrri spá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 8.971 íbúð á landsvísu sem er fjölgun milli mælinga. Viðskipti innlent 3. júlí 2023 16:01
Nýr miðbær á Egilsstöðum muni laða fólk að Uppbygging á nýjum miðbæ á Egilsstöðum er hafin. Sveitarstjóri Múlaþings segir að á næstu þremur árum verði hægt að sjá móta fyrir 160 nýjum íbúðum í bland við græn svæði í hjarta bæjarins. Innlent 2. júlí 2023 08:00
Borgin riftir samningi um uppbyggingu 176 íbúða Reykjavíkurborg hefur rift samningi sínum við Vesturbugt ehf. um uppbyggingu í Vesturbugt við gömlu höfnina í Reykjavík. Reykjavíkurborg ber fyrir sig vanefndir vegna tafa en Vesturbugt ehf. telur riftunina ólögmæta, meðal annars vegna þess að deiliskipulag fyrir svæðið hefur ekki enn verið samþykkt. Viðskipti innlent 30. júní 2023 19:53
Ekki síðasti dagurinn til að sækja um framlengingu Búið er að framlengja almenna heimild til að nýta séreignarsparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól láns sem tekið var vegna kaupanna. Heimildin var framlengd til og með 31. desember 2024 en sækja þarf um hana fyrir lok september. Innlent 30. júní 2023 13:18
Útburði fjölskyldunnar frestað þar til í ágúst Útburði pólskrar fjölskyldu sem missti heimili sitt á nauðungaruppboði hefur verið frestað um rúman mánuð. Til stóð að útburðurinn færi fram í fyrramálið en frestunin er í samráði við nýjan eiganda. Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir þetta mjög jákvætt þar sem tími gefist nú til að finna mögulegar lausnir á málinu. Innlent 29. júní 2023 10:13
Framboð íbúða eykst enn og sölutíminn lengist Framboð íbúða hefur haldið áfram að aukast, aðallega vegna lengri sölutíma, og þá hefur þeim íbúðum fjölgað hlutfallslega sem seljast undir ásettu verði. Íbúðum til sölu hefur fjölgað um 300 á þremur mánuðum og eru nú 1.800 talsins. Viðskipti innlent 29. júní 2023 09:01
Ofbýður umræðan um bróður sinn: „Mynduð þið gefa lífið ykkar fyrir eitt hús?“ Bróðir hins 23 ára gamla Jakubs Polkowski sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á nauðungaruppboði segir erfitt að fylgjast með umræðunni um bróður sinn sem hafi ungur þurft að þola mikla erfiðleika í kjölfar læknamistaka. Innlent 28. júní 2023 22:10
Útgerðarmaðurinn hyggst ekki draga kaupin til baka Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segist óska þess að sýslumaður hefði upplýst sig um stöðu ungs manns sem borinn verður út úr skuldlausi húsi sínu á föstudag. Útgerðarmaður sem keypti húsið á þrjár milljónir á nauðungaruppboði ætlar ekki að endurskoða kaupin. Innlent 28. júní 2023 20:12
Skora á kaupandann að hætta við kaupin Öryrkjabandalag Íslands skorar á sýslumannsembættið á Suðurnesjum og sveitarfélagið Reykjanesbæ að endurskoða ákvörðun sem leiddi til þess að einbýlishús ungs öryrkja var selt tugmilljónum undir markaðsverði á nauðungaruppboði. Þá skora samtökin á kaupanda hússins að hætta við kaupin. Innlent 28. júní 2023 11:40
„Mér er bara svo misboðið“ Þingmenn og fleiri eru afar ósátt með að bera eigi ungan öryrkja í Keflavík úr einbýlishúsi sínu næstkomandi föstudag vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum er harðlega gagnrýndur fyrir sinn hlut í málinu. Innlent 28. júní 2023 10:05
Húsnæðisaðgerðir sveitarfélaga fá slæma útreið Einungis ellefu prósent telja Reykjavíkurborg hafa staðið sig vel þegar kemur að uppbyggingu húsnæðis en 63,4 prósent fremur eða mjög illa. Þegar sjónum er beint að öðrum sveitarfélögum segja 9,4 prósent þau hafa staðið sig vel í húsnæðismálum en 45,5 prósent illa. Innlent 26. júní 2023 10:42
Hvað kostar bygging 39.080 íbúða á næstu 10 árum hið opinbera? Húsnæðisskortur er í landinu. Húsnæðis og mannvirkjastofnun (HMS) gefur það út að þörfin sé 39.080 íbúðir á næstu 10 árum. Til að bregðast við húsnæðisvandanum hafa stjórnvöld og ýmsir hagsmunaaðilar rætt og kynnt ýmsar lausnir á því hvernig mæta skuli húsnæðisþörfinni. Skoðun 26. júní 2023 07:31
Fyrstu íbúðir í yfir þrjátíu ár byggðar á Kópaskeri Á morgun verður fyrsta skóflustungan að nýju parhúsi á Kópaskeri stungin. Um er að ræða mikil tímamót en íbúðarhúsnæði hefur ekki verið byggt í kauptúninu í um þrjátíu ár. Innlent 23. júní 2023 15:46
Stórfelld uppbygging hagkvæmra íbúða Miklar áskoranir hafa verið á húsnæðismarkaði síðustu misseri meðal annars vegna mikillar fólksfjölgunar og nú síðast vegna samdráttar á markaði vegna verðbólgu. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, kynnti fyrr í vikunni áætlun um stórfellda uppbyggingu hagkvæmra íbúða fyrir tekju- og eignaminni. Um er að ræða aðgerðir sem hafa það að markmiði að bregðast við krefjandi stöðu sem skapast hafa vegna verðbólgu. Skoðun 23. júní 2023 07:18