Svíar í átta liða úrslit með fullt hús stiga Svíþjóð vann Portúgal í síðasta leik milliriðils tvö og er þar með komið í átta liða úrslit HM í handbolta með fullt hús stiga. Handbolti 22. janúar 2023 21:10
„Hundfúlir að fara ekki lengra“ „Fyrir leikinn vissum við að við værum úr leik þannig að auðvitað vildum við enda þetta með sigri. Sérstaklega fyrir fólkið okkar í stúkunni sem er mætt að horfa á, og hvetja, okkur. Það er stuðningurinn sem stendur upp úr á þessu móti,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir sigur Íslands í síðasta leik milliriðils á HM í handbolta. Handbolti 22. janúar 2023 20:15
„Ef og hefði, sá og mundi og allur sá pakki“ Gísli Þorgeir Kristjánsson var ánægður með síðari hálfleik íslenska landsliðsins í dag þegar það sneri leiknum gegn Brasilíu við. Hann er hins vegar á því að liðið hafi hent frá sér möguleikanum að fara lengra í síðari hálfleik á móti Ungverjum. Handbolti 22. janúar 2023 20:00
„Alltaf auðvelt að vera vitur eftir á“ Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var ánægður með sigurinn en ekki árangur Íslands á HM enda hefur liðið lokið keppni. Handbolti 22. janúar 2023 19:47
Einkunnir strákanna okkar á móti Brasilíu: Gísli og Kristján bestir Íslenska handboltalandsliðið vann fjögurra marka endurkomusigur á Brasilíu, 41-37, í síðasta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta í Svíþjóð og Póllandi. Handbolti 22. janúar 2023 19:32
Twitter yfir kaflaskiptum leik gegn Brasilíu: „Donni var utan hóps í fyrstu þremur leikjum mótsins“ Ísland vann Brasilíu með fjögurra marka mun í síðasta leik liðsins á HM í handbolta. Eftir skelfilegan fyrri hálfleik sýndi íslenska liðið sitt rétta andlit í síðari hálfleik og vann leikinn 41-37. Handbolti 22. janúar 2023 19:20
Topparnir í tölfræðinni á móti Brasilíu: Karakterviðsnúningur í seinni hálfleik Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann fjögurra marka sigur á Brasilíu, 41-37, í lokaleik sínum á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Póllandi. Handbolti 22. janúar 2023 19:00
Umfjöllun: Brasilía - Ísland 37-41 | Eftirminnilegur viðsnúningur í 78 marka leik Íslenska karlalandsliðið í handbolta sigraði Brasilíu, 37-41, í lokaleik sínum á HM í Svíþjóð og Póllandi í dag. Brassar voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 22-18, en Íslendingar sneru dæminu sér í vil í seinni hálfleik sem þeir unnu, 23-15. Handbolti 22. janúar 2023 18:50
Slóvenar tryggðu sér þriðja sætið Slóvenar tryggðu sér þriðja sæti milliriðils I er liðið vann öruggan átta marka sigur gegn Svartfjallalandi í dag, 31-23. Handbolti 22. janúar 2023 16:15
Umfjöllun: Grænhöfðaeyjar - Ungverjaland 30-42 | Vonir Íslands úr sögunni Ísland á ekki lengur möguleika á að komast í átta liða úrslit heimsmeistaramótsins í handbolta karla. Þetta var ljóst eftir stórsigur Ungverjalands á Grænhöfðaeyjum, 30-42, í fyrsta leik dagsins í milliriðli II. Handbolti 22. janúar 2023 16:00
Myndasyrpa: Stuð í síðasta teitinu í Gautaborg Ísland spilar sinn síðasta leik á HM á eftir er strákarnir okkar mæta Brasilíu. Þeir munu fá góðan stuðning úr stúkunni. Handbolti 22. janúar 2023 15:42
Þetta er það sem þarf að ganga upp svo Ísland komist í átta liða úrslit Eftir tap íslenska karlalandsliðsins gegn Svíum síðastliðinn föstudag er draumur liðsins um sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins nánast úr sögunni. Þó er enn vonarglæta og hér fyrir neðan verður farið yfir það sem þarf að ganga upp svo liðið komist áfram. Handbolti 22. janúar 2023 12:28
„Stundum gott að hætta að hugsa um handbolta“ „Það er virkilega þung stemning og menn gríðarlega svekktir,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson á liðshóteli Íslands í gær en þá voru drengirnir að sleikja sárin eftir tapið gegn Svíum. Handbolti 22. janúar 2023 12:01
HM í dag: Síðasti dansinn í Gautaborg Lokadagur milliriðilsins í Gautaborg fer fram í dag og líkurnar á áframhaldandi þátttöku strákanna okkar á mótinu eru litlar sem engar. Handbolti 22. janúar 2023 11:00
„Vonbrigði að komast ekki lengra en þetta“ „Það var bara mjög gaman að koma inn í liðið og gott að fá sénsinn og traustið og mér fannst ég standa mig ágætlega,“ segir Kristján Örn Kristjánsson, leikmaður landsliðsins í handbolta, í viðtali við Vísi og Stöð 2 á hóteli landsliðsins í Gautaborg í gær. Sport 22. janúar 2023 10:00
„Ég hef ekki upplifað svona stemningu áður“ Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var boginn en ekki brotinn eftir tapið sára gegn Svíum. Handbolti 22. janúar 2023 09:01
Þýskaland í átta liða úrslit Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu í handbolta eru komnir í 8-liða úrslit á HM í handbolta. Danmörk er hársbreidd frá sæti í 8-liða úrslitum en Danir unnu þægilegan sigur á Bandaríkjunum í kvöld. Handbolti 21. janúar 2023 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Stjarnan 25-31 | Gestirnir unnu grannaslaginn á Ásvöllum Eftir að hafa náð í aðeins eitt stig í síðustu tveimur leikjum vann Stjarnan góðan sigur á nágrönnum sínum frá Hafnafirði. Lokatölur á Ásvöllum 25-31 og Stjarnan fór með stigin tvö heim í Garðabæ. Handbolti 21. janúar 2023 20:40
Norðmenn örugglega í átta liða úrslit Noregur er komið í 8-liða úrslit HM í handbolta þökk sé mjög svo öruggum sigri á Katar í milliriðli þrjú. Þá vann Króatía þægilegan sigur á Belgíu í milliriðli fjögur. Handbolti 21. janúar 2023 19:32
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - KA/Þór 30-24 | Íslandsmeistararnir stöðvuðu sigurgöngu norðankvenna Fram lagði KA/Þór með sex mörkum 30 - 24 á heimavelli í Olís-deild kvenna í dag. Sigurinn var afar sannfærandi hjá Fram sem hefur ekki tapað í síðustu fimm leikjum og líta út fyrir að vera til alls líklegar eins og staðan er núna. Handbolti 21. janúar 2023 18:45
Ótrúlegur sigur ÍBV í Suðurlandsslagnum Segja má að ferð ÍBV á meginlandið hafi verið til fjár en liðið rúllaði yfir Selfyssinga á þeirra heimavelli í Olís deild kvenna í handbolta í dag, lokatölur 19-40. Handbolti 21. janúar 2023 18:00
Egyptar tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum og vonir Arons orðnar að engu Egyptaland tryggði sér sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handbolta eftir fjögurra marka sigur gegn Aroni Kristjánssyni og lærisveinum hans í bareinska landsliðinu í dag, 26-22. Egyptar eru því á leið í hreinan úrslitaleik gegn Dönum um efsta sæti milliriðils fjögur. Handbolti 21. janúar 2023 16:07
Valskonur völtuðu yfir botnliðið Topplið Vals lenti ekki í neinum vandræðum er liðið tók á móti botnliði HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Valskonur tóku forystuna strax í upphafi leiks og unnu að lokum 16 marka sigur, 41-25. Handbolti 21. janúar 2023 14:55
„Er bara eitt stórt spurningamerki“ „Það var ömurleg tilfinning að sitja upp í stúku og horfa á leikinn. Það er ekkert verra að vera ekki í handboltaskónum og búningnum og geta ekki hjálpað liðinu,“ segir Aron Pálmarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í viðtali við Vísi og Stöð 2 á hóteli landsliðsins í Gautaborg í dag. Handbolti 21. janúar 2023 14:43
Ómar Ingi tognaði í þríhöfða og gat ekki kastað Ómar Ingi Magnússon gat lítið spilað gegn Svíum í gær vegna meiðsla og hann verður ekki með í leiknum gegn Brasilíu á morgun. Handbolti 21. janúar 2023 14:02
„Mætti halda að þjálfarateymið hafi verið í brandarakeppni á bekknum“ Arnar Daði Arnarsson, stjórnandi Handkastsins, var vægast sagt ósáttur eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Svíum á HM í gær. Tapið þýðir að vonir Íslands um sæti í átta liða úrslitum eru nánast úr sögunni og Arnar vandaði þjálfarateymi liðsins ekki kveðjurnar. Handbolti 21. janúar 2023 13:30
HM í dag: Eigum skilið að fara heim Það var ekki hátt risið á Henry Birgi og Stefáni Árna eftir tapið gegn Svíum í Scandinavium. Handbolti 21. janúar 2023 11:00
Myndasyrpa frá tapinu súra gegn Svíum Vonir íslenska karlalandsliðsins í handbolta um að komast í átta liða úrslit á HM eru nánast orðnar að engu eftir súrt tap liðsins gegn heimamönnum í Svíþjóð í gær. Handbolti 21. janúar 2023 09:31
Skýrsla Henrys: Séra Palicka sá um útför íslenska liðsins Draumur íslenska liðsins á HM varð að martröð í kvöld. Tap gegn Svíum og ballinu í raun lokið í Svíþjóð. Það eru gríðarleg vonbrigði. Svíagrýlan er víst ekki alveg dauð eftir allt saman. Handbolti 20. janúar 2023 23:01
„Ég hef enn sömu trú á liðinu“ Bjarki Már Elísson átti fínan leik fyrir íslenska handboltalandsliðið í kvöld, en það dugði ekki til og liðið mátti þola fimm marka tap gegn Svíum, 35-30. Bjarki var eðlilega sár þegar hann mætti í viðtal að leik loknum. Handbolti 20. janúar 2023 22:39