Keppni hætt vegna veðurs Keppni á PGA-Meistaramótinu í golfi var frestað um klukkan ellefu í kvöld vegna þrumuveðurs á Baltusrol-vellinum í New Jersey og hefur verið ákveðið að hefja leik aftur á morgun. Sjónvarpsstöðin Sýn mun vera með beina útsendigu á morgun og hefst útsending klukkan 14:00. Þegar leik var hætt var Phil Mickelson frá Bandaríkjunum með forsytu. Sport 14. ágúst 2005 00:01
Phi Mickelson efstur - Tiger slapp Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson lék á 65 höggum í dag og er efstur eftir tvo hringi á PGA-Meistaramótinu í golfi. Hann er samtals á 8 höggum undir pari og hefur þriggja högga forskot á Jerry Kelly sem er í öðru sæti. Þrír kylfingar deila þriðja sætinu, þeir Rory Sabbatini, Davis Love III og Lee Westwood, á 4 höggum undir pari. Sport 13. ágúst 2005 00:01
Woods byrjar illa á PGA Tiger Woods, stigahæsti kylfingur heims, byrjaði ekki vel á PGA-meistaramótinu í golfi sem hófst á Baltusrol-vellinum í New Jersey í gærkvöld. Tiger lék fyrsta hringinn á fimm höggum yfir pari og er í 113. sæti, en 97 af hundrað stigahæstu kylfingum heims taka þátt í mótinu. Sport 12. ágúst 2005 00:01
Ragnhildur og Ottó Íslandsmeistar Kylfingurinn Ragnhildur Sigurðardóttir sigraði Þórdísi Geirsdóttur í úrslitaleik Íslandsmótsins í holukeppni í dag og varði þar með titil sinn. Í karlaflokki sigraði Ottó Sigurðsson GKG Pétur Óskar Sigurðsson. Sport 8. ágúst 2005 00:01
Holukeppnin hófst í morgun Undanúrslitaleikirnir um Íslandsmeistaratitil karla og kvenna í holukeppni í golfi hófust á Hvaleyrarvelli í morgun. Í gær varð að fresta keppni vegna veðurs. Í undanúrslitum í karlaflokki mætast Stefán Már Stefánsson og Pétur Óskar Sigurðsson úr GR og þá eigast við Magnús Lárusson úr GKJ og Óttó Sigurðsson úr GKG. Sport 8. ágúst 2005 00:01
Holukeppni frestað vegna roks Vegna hvassviðris var undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni í golfi frestað í morgun. Ávörðun verður tekin í hádeginu um framhaldið. Pétur Óskar Sigurðsson og Stefán Már Stefánsson, báðir úr GR, og Magnús Lárusson, GKJ, og Ottó Sigurðsson, GKG, keppa í undanúrslitum í karlaflokki. Í kvennaflokki mætir Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, Nínu Björku Geirsdóttur, GKJ, og Þórdís Geirsdóttir, Keili, keppir við Önnu Lísu Jóhannsdóttur. Sport 7. ágúst 2005 00:01
Ólöfu Maríu gengu illa í dag Ólöf María Jónsdóttir er í 34.-39. sæti á oOpna norræna mótinu í golfi í Barsebäck í Svíþjóð. Eftir 13 holur í dag er Ólöf María á sjö höggum yfir pari og því samtals á 16 höggum yfir pari. Annika Sörenstam hefur forystu, er á pari eftir 6 holur í dag og samtals á fjórum höggum undir pari. Sport 7. ágúst 2005 00:01
Ólöf lék á 20 yfir pari Ólöf María Jónsdóttir hafnaði í 45.-49. sæti á Opna norræna mótinu í golfi í Barsebäck í Svíþjóð. Ólöfu gekk afar illa í dag og lék samtals á á 20 höggum yfir pari og því samtals á 308 höggum. Hins sænska Annika Sörenstam sigraði mótið á 4 höggum undir pari og Natalie Gulbis frá Bandaríkjunum varð önnur á 3 undir pari. Sport 7. ágúst 2005 00:01
Beckman með forystu í Colorado Bandaríkjamaðurinn Cameron Beckman hefur forystu á Internacional-mótinu í golfi í Castle Rock í Colorado. Spilað er eftir Stableford-fyrirkomulagi og er Beckman með 23 punkta en jafnir einum punkti á eftir eru landar hans Billy Mayfair, Charles Howell og Brand Jobe. Spilaðar verða 36 holur í dag. Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn í kvöld. Sport 7. ágúst 2005 00:01
Ólöf meðal efstu kvenna í Svíþjóð Ólöf María Jónsdóttir er í 9.-12. sæti á Opna norræna mótinu í golfi í Barsebäck í Svíþjóð. Hún lék sjö fyrstu holurnar í morgun á einu yfir pari og er samtals á þremur yfir pari. Suzann Petterson Noregi og Gladys Nocera Frakklandi hafa forystu, eru á tveimur undir pari. Sport 6. ágúst 2005 00:01
Mayfair með forystu í Colorado Bandaríkjamaðurinn Billy Mayfair hefur forystu á Internacional-mótinu í golfi í Castle Rock í Colorado. Keppt er eftir Stableford-fyrirkomulaginu en þetta er eina mótið í PGA-röðinni sem það er gert. Billy Maifair er með 15 punkta og annar er Brand Jobe með 13 punkta. Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn annað kvöld. Sport 6. ágúst 2005 00:01
Móti enn frestað vegna rigningar Fresta varð keppni í gær á Internacional-mótinu í golfi í Castle Rock í Colorado vegna ausandi rigningar. Enn eina ferðina gripu veðurguðirnir í taumana en þetta er tuttugasta árið í röð sem ekki er hægt að hefja keppni á þessu móti á réttum tíma. Sport 5. ágúst 2005 00:01
Ólöf María á einu undir Ólöf María Jónsdóttir úr Keili lék vel á fyrsta degi Evrópumótsins á Barsebake-vellinum við Malmö í dag en hún var á einu höggi undir pari á 71 höggi. Annika Sörenstam, sem er gestgjafi mótsins, var tveimur höggum undir pari eftir 15 holur. Sport 4. ágúst 2005 00:01
88 ára á 88 höggum 88 ára gamall Íslendingur, Stefán Þorleifsson, náði þeim ótrúlega árangri um síðustu helgi að leika 18 holu golfhring á jafnmörgum höggum og árin hans, eða 88 höggum. Afar fáheyrt er að maður á þessum aldri leiki golf svo vel eins og Stefán sem afrekaði þetta á golfmóti Golfklúbbs Norðfirðinga. Sport 4. ágúst 2005 00:01
Unglingar valdir í golflandsliðið Staffan Johansson, landsliðsþjálfari Íslands í golfi hefur valið fjóra kylfinga til að keppa á Evrópumóti karla sem fram fer í Belgíu dagana 17. - 20. ágúst n.k. Keppt verður á Antwerpen "Rinkven" golfvellinum. Íslensku keppendurnir eru Heiðar Davíð Bragason GKJ, Kristján Þór Einarsson GKJ, Magnús Lárusson GKJ og Ólafur B. Loftsson NK. Sport 3. ágúst 2005 00:01
Magnús Lárusson vann Einvígið Magnús Lárusson úr golfklúbbnum Kili sigraði í Einvíginu á Nesvelli annað árið í röð í gær þar sem tíu bestu kylfingar landssins öttu kappi í árlegu góðgerðarmóti. Magnús vann félaga sinn Sigurpál Geir Sveinsson úr Kili á síðustu holu. Íslandsmeistarinn , Heiðar Davíð Bragason , sem einnig er úr Kili féll úr leik á holunni á undan. 250.000 krónur runnu að þessu sinni til Barnaspítala Hringsins. Sport 2. ágúst 2005 00:01
Magnús Lárusson sigraði á Nesinu <div class="Text194214">Magnús Lárusson kylfingur úr Golfklúbbnum Kili hrósaði sigri í Einvíginu á Seltjarnarnesi annað árið í röð í gær. Hann bar sigurorð af Sigurpáli Geir Sveinssyni á lokaholunni Einvígið á Nesinu var haldið í 9.sinn í gær en það er góðgerðarmót og rann ágóðinn, 250.000 krónur, til styrktar Barnaspítala Hringsins.</div> Sport 2. ágúst 2005 00:01
Els frá í 4 mánuði Suður-afríski kylfingurinn, Ernie Els, verður frá keppni í allt að 4-5 mánuði en hann slasaðist illa á hné fyrir hálfum mánuði þegar hann var í siglingu með fjölskyldu sinni. Hann missir því af síðasta stórmóti ársins, USPGA-meistaramótinu sem og keppninni um Forsetabikarinn og í heimsmótinu í holukeppni. Sport 2. ágúst 2005 00:01
Vijay Singh vann Buick mótið Vijay Singh sigraði á opna Buick mótinu sem var haldið í Michigan sem var sýndur á Sýn. Vijay fór hringinn í gær á 70 höggum og endaði á samtals 24 undir pari. Tiger Woods og Zach Johnson urðu jafnir í öðru sæti 4 höggum á eftir. Sport 1. ágúst 2005 00:01
Singh að spila frábært golf Vijay Singh spilaði frábært golf á Opna Buick mótinu í nótt og fór hringinn á 63 höggum. Hann hefur fimm högga forustu á Zach Johnson. Chris DiMarco er í 3. sæti og Tiger Woods því fjórða, átta höggum á eftir Singh. Sport 31. júlí 2005 00:01
Tiger jafnaði vallarmetið Tiger Woods, besti kylfingur heims, jafnaði vallarmet Billy´s Mayfair á Warwich Hills vellinum í Michigan í gær þegar hann fór holurnar 18 á 61 höggi eða 11 undir pari. Tiger jafnaði þar með besta árangur sinn á PGA-mótaröðinni en hann fór einnig á 61 höggi árið 1999 á Byron Classic mótinu sem og árið 2000 á NEC-Invitantional. Sport 30. júlí 2005 00:01
Ótrúlegur golfhringur Tigers Það er óhætt að segja að Tiger Woods hafi sýnt snilli sína á öðrum degi Opna-Buick golfmótinu sem fer fram í Bandaríkjunum um helgina. Tiger lék hringinn á 11 höggum undir pari og hér fyrir neðan má sjá nánari upplýsingar um þessa mögnuðu spilamennsku sem er að sjálfsögðu vallarmet á Warwick Hills golfvellinum. Sport 30. júlí 2005 00:01
Ernie Els meiddur Suður Afríkumaðurinn Ernie Els, þriðji stigahæsti kylfingur heims, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hann meiddist á hné við siglingar í síðustu viku. Els gekkst undir aðgerð í gær og hefur sagt sig úr keppni á Meistaramóti PGA mótaraðarinnar í ágúst. Sport 29. júlí 2005 00:01
Umspil hjá konunum Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR og Ólöf María Jónsdóttir úr GK luku báðar 72 holum á 20 höggum yfir pari og þurfa því að fara í þriggja holu umspil um Íslandsmeistaratitilinn. Þórdís Geirsdóttir hafnaði í þriðja sæti, einu höggi á eftir, en hún lék á 81 höggi eða 9 höggum yfir pari í dag. Sport 24. júlí 2005 00:01
Heiðar Davíð Íslandsmeistari Heiðar Davíð Bragason úr Kili Mosfellsbæ sigraði í dag á Íslandsmótinu í höggleik í golfi sem fram fór í Leiru í Keflavík og er þetta í fyrsta sinn sem Heiðar Davíð fagnar þeim titli. Heiðar leiddi keppnina frá frá fyrsta degi. Sport 24. júlí 2005 00:01
Ragnhildur sigraði Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR varð Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2005. Hún sigraði Ólöfu Maríu Jónsdóttur úr GK í umspili um titilinn. Þetta er fjórði Íslandsmeistaratitill Ragnhildar og í annað sinn sem hún fagnar Íslandsmeistaratitli á Hólmsvelli, en það gerði hún þegar síðasta Íslandsmót var haldið í Leirunni, árið 1998. Sport 24. júlí 2005 00:01
Þrír ernir í Leiru í dag Nú er verið að leika þriðja hring á Íslandsmótinu í golfi í Leiru. Þórdís Geirsdóttir er efst í kvennaflokki á 8 höggum yfir pari en Heiðar Davíð Bragason er efstur í karlaflokki á 4 höggum undir pari. Sport 23. júlí 2005 00:01
Heiðar Davíð missir forystuna Gríðarleg spenna er í karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer í Leiru og er Ólafur Már Sigurðsson úr GR kominn einn í forystu. Heiðar Davíð Bragason úr GKJ sem var með forystuna fyrr í dag er samtals á 2 höggum undir pari og hefur leikið á einu höggi yfir pari í dag, en hann fékk skolla á 5. og 6. holu. Sport 23. júlí 2005 00:01
Þórdís með forystu Þórdís Geirsdóttir er með góða stöðu á Íslandsmótinu í golfi eftir tvo hringi, hefur 6 högga forustu á Tinnu Jóhannsdóttur og 7 högg á Ragnhildi Sigurðardóttur og Nínu Björk Geirsdóttir. Sport 23. júlí 2005 00:01
Æsispennandi í Leirunni Spennan er mögnuð í karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer í Leiru. Heiðar Davíð Bragason vann efsta sætið aftur eftir að hafa misst það til Ólafs Más Sigurðssonar á 8. braut. Þórdís Geirsdóttir úr GKJ er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn í kvennaflokki. Sport 23. júlí 2005 00:01