Langur forleikur Varla var dauður punktur í sýningunni og hefur Valdimari Flygenring farnast það vel úr hendi að ná góðu samspili hópsins en leikritið er ekki uppá marga fiska. Gagnrýni 12. janúar 2012 12:00
Framsækin og blæbrigðarík Guðmundur Pétursson gítarleikari fer um víðan völl á frábærri sólóplötu. Gagnrýni 11. janúar 2012 18:00
Spennandi klækjaflækja Njósnaheimur Tinker Tailor Soldier Spy er virkilega heillandi og ég held ég myndi jafnvel njóta hennar betur í annað sinn. Spennandi mynd eftir gamalli uppskrift "paranojumynda" 8. áratugarins. Handrit dregur þó á köflum niður góða sögu. Gagnrýni 10. janúar 2012 16:00
Fuglahræða á ferð og flugi This Must Be the Place er ekki fyrir alla en áhugaverð og falleg mynd. Ég get mælt með henni fyrir þá forvitnu og víðsýnu en myndin er full af frábærri tónlist, skemmtilega skrýtnum senum og kvikmyndatakan er upp á tíu. Gagnrýni 9. janúar 2012 16:00
Hverjir verða skáld? Heimsljós eftir Halldór Laxness er sagan um Íslendinga eins og þeir margir hverjir vilja sjá sig. Skáldið stendur fyrir utan lífið, horfir á, er ekki með og tekur ekki afstöðu en getur engu að síður heillað kvenfólkið og jafnvel ráðamenn upp úr skónum þó það sé fátækt og umkomulaust í hinum veraldlega heimi. Gagnrýni 2. janúar 2012 20:00
Kafað í sálarlíf skálds Stórmerkileg ævisaga, samin af heiðarleika og djúpri sannleiksþrá. Landnám er einstaklega góð greining á verkum Gunnars Gunnarssonar, sem og lífsskoðunum hans og persónuleika. Lesandi skilur ekki einungis höfundarverk skáldsins betur eftir að hafa lesið þessa bók, heldur er hann einnig nokkurs vísari um mannlegt eðli – og fyrir það má þakka. Gagnrýni 2. janúar 2012 15:00
Oftar, takk Falleg lög, fallegur söngur og píanóleikur. Þetta er glæsileg útgáfa sem verður vonandi til þess að lög Sigursveins D. Kristinssonar hljóti þann sess sem þau verðskulda. Gagnrýni 2. janúar 2012 08:00
Þéttofið, litríkt og yfirleitt áhugavert Söngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson er kynntur til sögunnar á þessari sjöundu hljóðversplötu Todmobile. Eins og búast mátti við fær hann að njóta sín í kraftmeiri lögunum og stimplar sig þar vel inn á meðan Andrea Gylfa syngur yfirleitt þau rólegri. Gagnrýni 25. desember 2011 10:00
Fram og aftur blindgötuna Mögnuð saga af flakki unglings um Spán og Marokkó og hvernig hann þokast áfram á þroskaferlinum. Götumálarinn er stórgóð bók og vel skrifuð. Listilega spunninn þráður um heim sem flestum er hulinn, margir sjá í hillingum en höfundur sýnir eins og er. Gagnrýni 23. desember 2011 22:00
Öll fallegu orðin Undurfalleg saga, sem ilmar af sól og seltu og mannlegri þrá. Það er hollt að lesa um Lífið með öllum þess gæðum og göllum. Þegar sagt er af brothættum manneskjum eru fáir höfundar sem sýna meiri nærgætni en Guðmundur Andri Thorsson. Og þeir eru mjög fáir sem kunna að skrifa svona fallegan texta. Gagnrýni 23. desember 2011 14:00
Frá Írak á Akranes Ríkisfang: Ekkert er ekki hnökralaus bók en á heildina litið er hún góð og þarft innlegg í umræðu um flóttafólk á Íslandi og hlutskipti þess. Áhugaverð saga kvenna sem hafa lifað tímana tvenna. Gagnrýni 23. desember 2011 12:00
Korn stekkur á dubstep-vagninn. Fín plata, ekki mikið meira en það. Nokkur fín lög er að finna á plötunni, fullt af grípandi viðlögum, en manni finnst þó alltaf eins og hér sé um endurgerð Korn-lög að ræða, en ekki nýtt efni frá hljómsveitinni. Gagnrýni 23. desember 2011 11:00
Farðu úr úlpunni! Breska hasarhetjan Jason Statham getur látið til sín taka þegar sá gállinn er á honum. Í myndinni Blitz er hann hins vegar á sjálfstýringu og gefur lítið af sér. Hann klæðist úlpu stóran hluta myndarinnar og ég fékk það á tilfinninguna að það væri ekki ákvörðun búningadeildarinnar heldur bara það að Statham hefði mætt á tökustað og hreinlega ekki nennt að fara úr úlpunni. Gagnrýni 22. desember 2011 20:00
Stílhreint, rökrétt, glæsilegt Metnaðarfullur þverskurður á verkum Kjartans Ólafssonar. Glæsileg tónlist sem lætur vel í eyrum, þrátt fyrir framandi yfirbragð. Gagnrýni 22. desember 2011 20:00
Minna er meira Söngurinn er vissulega fagmannlegur og glæsilegur. Túlkunin er heildstæð og fókuseruð. Og það er rétta stemningin í söngnum. Vandamálið er annað. Það eru útsetningarnar. Þær stílast á Karl Olgeirsson, og í minna mæli á Harald Vigni Sveinbjörnsson. Gagnrýni 22. desember 2011 15:00
Fínn frumburður Hljómsveitin Úlfur úlfur var stofnuð fyrr á árinu upp úr rústum Bróður Svartúlfs sem vann Músíktilraunir 2009. Gagnrýni 22. desember 2011 10:15
Vel lukkað samstarf Ben Frost og Daníel Bjarnason rugla saman reytum í áhrifaríku verki. Á heildina litið er það sérstakt og áhrifaríkt og ætti allt áhugafólk um framsækna tónlist að gefa því gaum. Gagnrýni 21. desember 2011 18:00
Larsson að hætti Hollywood Skandinavíski krimminn fer Fincher nokkuð vel. Hann stenst prófið með ágætum. Daniel Craig stendur sig ágætlega sem Blomkvist en það er hin unga Rooney Mara sem dregur að sér mesta athygli hér. Hún er frábær í hlutverki Salander og er í senn aðlaðandi og fráhrindandi. Mann langar að faðma hana en hún myndi eflaust launa faðmlagið með pungsparki. Gagnrýni 21. desember 2011 11:00
Snjókorn falla Krúttleg mynd sem gefur yl í kroppinn eftir langan dag á Laugaveginum. Gagnrýni 20. desember 2011 22:00
Fagmennskan í fyrirrúmi Gullvagninn er sérstaklega glæsilegur safnpakki. Einn af þeim flottustu sem hafa komið út hér á landi. Bo vandar til verka eins og fyrri daginn. Gagnrýni 20. desember 2011 16:00
Tímalaus stemning Það var gaman í Kristskirkju á mánudagskvöldið. Þar voru jólatónleikar Ríkisútvarpsins haldnir. Á efnisskránni voru trúarleg lög úr íslenskum sönghandritum frá 15., 16. og 17. öld. Kammerhópurinn Carmina, undir stjórn Árna Heimis Ingólfssonar, söng en einnig lék Karl Nyhlin á bassalútu. Ég hef sjaldan heyrt jafn sjarmerandi tónlistarflutning. Gagnrýni 16. desember 2011 11:00
Ágætar veiðisögur Bók sem veiðimenn munu vafalítið hafa gaman af því að lesa. Nauðsynlegt hefði verið að leggja meiri vinnu í útlit og nostra eilítið meira við textann. Gagnrýni 16. desember 2011 11:00
Hörkumynd Niðurstaða: Fjörugri en forverar hennar og alls ekki fyrir lofthrædda. Gagnrýni 16. desember 2011 06:00
Annað sjónarhorn Niðurstaða: Gömul Megasarlög í gjörbreyttum útgáfum. Gagnrýni 14. desember 2011 06:00
Helgi tekur stóra stökkið Gríðarlega heillandi plata frá Helga Hrafni, sem verður bara betri og betri. Mikil synd ef hún nær ekki eyrum eins margra og hún á skilið. Gagnrýni 13. desember 2011 06:00
Spennusaga úr norðlenskum veruleika Niðurstaða: Sannferðug saga úr samtímanum. Ragnar hefur náð góðum tökum á spennusögunni. Gagnrýni 13. desember 2011 06:00
Hart og hrátt hjá Gímaldin Gímaldin verður seint sakaður um að reyna að þóknast fjöldanum. Þessi nýja plata hans og hljómsveitar er að mörgu leyti mjög „hardkor". Umslagið er t.d. ekki notendavænt – jafnvel fráhrindandi. Nafn flytjanda er hvergi sjáanlegt og upplýsingar ólæsilegar. Tónlistin sjálf er líka hrá og hörð. Gagnrýni 11. desember 2011 10:00
Draugagangur í sálinni Kýr Stalíns er sláandi saga sem hristir upp í lesendum og veitir nýja sýn, en er ofurlítið langdregin á köflum. Gagnrýni 9. desember 2011 11:00
Óhuggulegasta mynd ársins We Need to Talk About Kevin er óhuggulegasta mynd ársins. Drungalegt drama um viðkvæmt málefni. Hér er vandað til verka og útkoman er frábær. Gagnrýni 9. desember 2011 08:00
Svalasta rokkdúóið í bransanum The Black Keys er orðið tíu ára gamalt band og El Camino er sjöunda plata sveitarinnar. Hraðsoðin og melódísk blúsrokkplata sem rúllar örugglega í gegn. Gagnrýni 8. desember 2011 20:00