Vill losna við heimsmeistarann sem hagaði sér eins og fífl Unai Emery, knattspyrnustjóri Aston Villa, er sagður vilja losna við markvörðinn Emiliano Martínez úr herbúðum liðsins. Fótbolti 26. desember 2022 06:01
Suárez á leið til Brasilíu Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Luis Suárez er á leið til Gremio í brasilísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Suárez lék seinast með Nacional í heimalandinu. Fótbolti 25. desember 2022 22:00
Hefur engar áhyggjur af Kane eftir vítaklúðrið: „Erum að tala um heimsklassa framherja“ Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur engar áhyggjur af framherja liðsins, Harry Kane, eftir að hann misnotaði vítaspyrnu gegn Frökkum í átta liða úrslitum HM í Katar. Vítaklúðrið þýddi að Englendingar féllu úr leik, en Conte segist hafa fylgst vel með framherjanum eftir að hann kom aftur til æfinga. Fótbolti 25. desember 2022 18:00
Liverpool semur aftur við fyrrverandi fyrirliða liðsins Liverpool hefur samið við Gemmu Bonner, fyrrverandi fyrirliða liðsins, um að leika með liðinu í ensku Ofurdeildinni í knattspyrnu. Bonner vann á sínum tíma tvo Englandsmeistaratitla með félaginu. Fótbolti 25. desember 2022 17:00
Segir að Phillips hafi komið of þungur heim af HM Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, segir að ástæðan fyrir því að miðjumaðurinn Kalvin Phillips hafi ekki verið í leikmannahópnum þegar liðið mætti Liverpool í enska deildarbikarnum síðastliðinn föstudag hafi verið að leikmaðurinn hafi komið of þungur heim af HM í Katar. Fótbolti 25. desember 2022 15:00
Sjáðu markið: Richarlison skoraði flottasta markið í Katar Síðara mark framherjans Richarlison í 2-0 sigri Brasilíu á Serbíu í fyrsta leik liðanna á HM í Katar hefur verið valið flottasta mark mótsins. Richarlison átti tvo af tíu flottustu mörkum mótsins. Fótbolti 25. desember 2022 14:01
Birkir og félagar fögnuðu jólunum með sigri Birkir Bjarnason og félagar hans í Adana Demirspor unnu góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Karagumruk í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, sjálfan jóladaginn. Fótbolti 25. desember 2022 12:55
Með ör fyrir lífstíð eftir að fá glas í andlitið á leik Man City og Liverpool Unglingsstúlka hlaut höfuðáverka og ör fyrir lífstíð þegar plastglas fullt af smápeningum skall á andliti hennar á meðan Manchester City og Liverpool áttust við í enska deildarbikarnum. Enski boltinn 25. desember 2022 08:00
Er einhver eftir í Keflavík? Finnski miðvörðurinn Dani Hatakka er genginn í raðir FH eftir að hafa spilað með Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Hann er einn af fjölmörgum leikmönnum sem hefur nú yfirgefið Keflavík og því vert að spyrja sig hvort einhver sé eftir í liðinu sem náði góðum árangri á síðustu leiktíð. Íslenski boltinn 25. desember 2022 07:00
Landsliðsþjálfarinn segist ekki vera á móti gagnrýni ef hún er byggð á þekkingu Það hefur ekki verið nein lognmolla í kringum íslenska karlalandsliðið í fótbolta síðan Arnar Þór Viðarsson tók við því árið 2020. Ásamt vandamálum utan vallar þá hefur liðið legið undir gagnrýni fyrir spilamennsku sína. Fótbolti 24. desember 2022 23:00
Örvfættir miðverðir eftirsóttir Áherslan á að halda boltanum betur og spila honum hraðar sín á milli í heimsfótboltanum þýðir að nú eru öll félög í óðaönn að leita sér að örvfættum miðvörðum. Það vekur athygli hversu mörg lið geta boðið upp á tvíeyki í miðverði sem innihalda bæði rétt- og örvfættan leikmann í Bestu deild karla á meðan sama er ekki upp á teningnum í Bestu deild kvenna. Fótbolti 24. desember 2022 22:01
Ranieri ekki dauður úr öllum æðum Ítalski knattspyrnuþjálfarinn Claudio Ranieri hefur tekið að sér sitt 23. þjálfarastarf á ferlinum. Hann var á Þorláksmessu ráðinn þjálfari Cagliari sem spilar í Serie B á Ítalíu. Fótbolti 24. desember 2022 21:01
„Lífið breyttist á skotstundu“ „Ef ég á að vera hreinskilin þá hélt ég að myndi aldrei aftur komast á þennan stað. Ég hélt ekki einu sinni að ég yrði í hópnum fyrir stórmót á nýjan leik, hvað þá að spila í úrslitaleik á Wembley gegn Þýskalandi,“ segir Evrópumeistarinn Mary Earps, markvörður enska landsliðsins og Manchester United. Enski boltinn 24. desember 2022 20:01
Tíu leikmenn sem hækkuðu verulega í verði á HM Það eru alltaf nokkrir leikmenn sem koma skemmtilega á óvart á stórmótum í fótbolta. Þá eru að sama skapi nokkrir leikmenn sem eru eftirsóttir en spila það vel að þeir hækka verulega í verði. Hér að neðan má sjá hvaða tíu leikmenn hækkuðu hvað mest í verði á HM í Katar sem lauk þann 18. desember síðastliðinn með því að Lionel Messi varð loks heimsmeistari. Fótbolti 24. desember 2022 18:00
Segir að De Bruyne spili betur þegar reiður sé Pep Guardiola, þjálfari Kevin De Bruyne hjá Manchester City, segir að Belginn spili hvað best þegar hann sé pirraður. De Bruyne mætti fúllyndur heim frá Katar eftir að Belgía féll úr leik í riðlakeppni HM en miðjumaðurinn sýndi sínar bestu hliðar í sigri á Liverpool í deildarbikarnum í liðinni viku. Enski boltinn 24. desember 2022 17:00
Messi verður áfram í París Það stefnir allt í að heimsmeistarinn Lionel Messi framlengi samning sinn við París Saint-Germain. Núverandi samningur hans rennur út næsta sumar. Fótbolti 24. desember 2022 15:01
Brynjar Ingi orðaður við Gautaborg Miðvörðurinn Brynjar Ingi Bjarnason, leikmaður Vålerenga í Noregi, er á jólagjafalista Gautaborgar í Svíþjóð. Fótbolti 24. desember 2022 13:01
Putellas best annað í röð að mati The Guardian Annað árið í röð hefur The Guardian valið Alexiu Putellas, miðjumann Barcelona og spænska landsliðsins, bestu fótboltakonu heims. Fótbolti 24. desember 2022 12:00
„Lokamarkmiðið er alltaf að komast í A-landsliðið“ „Við setjum pressu á okkur að verða betri. Leikmenn bættu sig sem landsliðsmenn og eru betur undirbúnir í að taka skrefið upp í A-landsliðið, sem er lokamarkmiðið,“ segir Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U-21 árs landsliðs drengja í fótbolta. Fótbolti 24. desember 2022 10:30
„Sagði að ég gæti orðið allt í lagi miðjumaður en frábær miðvörður“ Glódís Perla Viggósdóttir er fastamaður hjá þýska stórveldinu Bayern München sem og íslenska landsliðinu. Hún sem lék lengi vel sem miðjumaður var færð niður í miðvörð þegar hún var í U-17 ára landsliðinu. Ákvörðun sem hún sér ekki eftir í dag. Fótbolti 24. desember 2022 09:01
Brassar séu búnir að ræða við Mourinho um að taka við landsliðinu Brasilíska knattspyrnusambandið vill fá portúgalska knattspyrnustjórann José Mourinho til að taka við landsliðinu eftir að Tite lét af störfum í lok heimsmeistaramótsins í Katar. Fótbolti 24. desember 2022 08:00
Kanté verður mögulega frá keppni fram í mars og gæti farið frítt í sumar Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea þarf líklega að spjara sig án N'Golo Kanté næstu þrjá mánuðina. Graham Potter, knattspyrnustjóri liðsins, staðfesti á blaðamannafundi í gær að miðjumaðurinn myndi líklega ekki jafna sig af meiðslum sínum fyrr en í mars á næsta ári. Fótbolti 24. desember 2022 07:00
Matuidi leggur skóna á hilluna Blaise Matuidi, sem var hluti af franska landsliðinu sem varð heimsmeistari árið 2018, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 18 ára feril. Fótbolti 23. desember 2022 21:00
HM-hetjan George Cohen látinn George Cohen, sem var hluti af heimsmeistaraliði Englendinga árið 1966, er látinn, 83 ára að aldri. Fótbolti 23. desember 2022 19:45
Fimm ára bann fyrir að falsa þjálfararéttindi Mustapha Hadji, knattspyrnuþjálfari og fyrrum leikmaður marokkóska landsliðsins í fótbolta, hefur fengið fimm ára bann frá öllum afskiptum af fótbolta fyrir að falsa þjálfaraskírteini sitt. Fótbolti 23. desember 2022 19:01
Landsliðshanskarnir á hilluna eftir ósætti við þjálfarann aðeins 26 ára gamall Kamerúnski landsliðsmarkvörðurinn Andre Onana hefur ákveðið að hætta að spila fyrir landsliðið eftir að hafa lent í deilum við þjálfara liðsins, Rigobert Song, á nýafstöðnu heimsmeistaramóti í Katar. Onana er aðeins 26 ára gamall. Fótbolti 23. desember 2022 18:15
Alfons á leið í hollensku úrvalsdeildina Landsliðsbakvörðurinn Alfons Sampsted er að ganga í raðir hollenska félagsins Twente. Alfons hefur undanfarin þrjú ár leikið með Bodø/Glimt í Noregi. Fótbolti 23. desember 2022 17:46
Netverjar hlæja að hornspyrnu forseta FIFA Gianni Infantino, forseti FIFA, er óvinsæll og veit af því. Hann varð að banna að sýna sig á stóra skjánum á leikjunum á HM vegna þess að það var alltaf púað svo mikið. Fótbolti 23. desember 2022 17:01
Mætti bókstaflega með geit í argentínska búningnum Lionel Messi er orðinn „geitin“ í fótboltasögunni augum mjög margra eftir að hann leiddi argentínska landsliðið til heimsmeistaratitilsins um síðustu helgi. Fótbolti 23. desember 2022 15:45
FH nær í miðvörð til Keflavíkur og hafði áður samið við markvörðinn Keflvíkingar halda áfram að missa leikmenn til höfuðborgarsvæðisins en nú síðast sóttu FH-ingar miðvörðinn Dani Hatakka til Reykjanesbæjar. Fótbolti 23. desember 2022 15:19