Finnar á toppinn í H-riðli eftir stórsigur á San Marínó Finnland tók San Marínó í kennslustund í H-riðli undankeppni Evrópumótsins í fótbolta í dag en leiknum lauk með 6-0 sigri Finnlands. Fótbolti 19. júní 2023 18:02
Mættur aftur til Celtic eftir að vera sparkað frá Leicester City Knattspyrnustjórinn Brendan Rodgers er tekinn við skoska stórveldinu Celtic á nýjan leik. Fótbolti 19. júní 2023 17:16
Svona var fundur Portúgals í Laugardal fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun Roberto Martínez, landsliðsþjálfari Portúgals, sat fyrir svörum ásamt Cristiano Ronaldo blaðamannafundi á Laugardalsvelli, degi fyrir leik Íslands og Portúgals í undankeppni EM karla í fótbolta. Fundurinn var sýndur á Vísi. Fótbolti 19. júní 2023 16:30
Aron biður Ronaldo ekki um treyjuna og Åge vill skemma partýið Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var spurður út í það þegar Cristiano Ronaldo neitaði honum um treyjuskipti, á EM 2016, á blaðamannafundi í dag og hann ætlar ekki að endurtaka leikinn á morgun, þegar Ísland og Portúgal mætast á Laugardalsvelli í undankeppni EM í fótbolta. Fótbolti 19. júní 2023 16:03
Svona var fundur Íslands fyrir slaginn við stjörnur Portúgals Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi Íslands fyrir leikinn við stórlið Portúgals í undankeppni EM í fótbolta. Fótbolti 19. júní 2023 15:00
Fyrrverandi leikmaður Stoke og Newcastle til Real Madríd José Luis Mato Sanmartín, betur þekktur sem Joselu, er genginn í raðir Real Madríd á láni frá Espanyol. Framherjinn hefur komið víða við á ferli sínum og spilaði meðal annars með Stoke City og Newcastle United á Englandi. Fótbolti 19. júní 2023 14:31
Reggístrákarnir hans Heimis án sigurs í tíu leikjum í röð Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í jamaíska landsliðinu í knattspyrnu máttu þola 2-1 tap er liðið mætti Jórdaníu í vináttulandsleik í dag. Þetta var tíundi leikur liðsins í röð án sigurs. Fótbolti 19. júní 2023 14:05
Leikmaður Fulham handtekinn fyrir að hóta eiginkonu sinni Franski knattspyrnumaðurinn Issa Diop, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Fulham, hefur verið handtekinn í heimalandi sínu, grunaður um að hóta eiginkonu sinni. Fótbolti 19. júní 2023 14:00
Bakvörður Man United til Barcelona Ona Batlle, hægri bakvörður Manchester United, hefur samið við Spánar- og Evrópumeistara Barcelona til ársins 2026. Samningur hennar við Man United rennur út í lok júnímánaðar og því fer hún frítt til Katalóníu. Fótbolti 19. júní 2023 13:30
Rekinn þrátt fyrir að hafa haldið Bournemouth uppi Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth hefur látið knattspyrnustjórann Gary O'Neil fara frá félaginu, aðeins sjö mánuðum eftir að hann var ráðinn til starfa. Fótbolti 19. júní 2023 13:01
Átján mánaða fangelsi fyrir að stinga frænda sinn Knattspyrnumaðurinn Quincy Promes hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að ráðast á frænda sinn. Leikmaðurinn þarf einnig að borga ættingja sínum skaðabætur. Fótbolti 19. júní 2023 12:30
Erlent lið á höttunum á eftir markahæsta manni Bestu deildarinnar Ekki er víst að Stefán Ingi Sigurðarson klári tímabilið hér á landi með Íslandsmeisturum Breiðabliks en framherjinn er á óskalista liðs erlendis frá. Íslenski boltinn 19. júní 2023 11:25
Shaw reynir að lokka Kane og Rice til Manchester United Luke Shaw, bakvörður Manchester United og enska landsliðsins, hefur nýtt landsliðsverkefni Englands undanfarna daga í að reyna að sannfæra þá Harry Kane og Declan Rice um að færa sig frá höfuborginni og yfir til Manchester. Fótbolti 19. júní 2023 10:00
Enska úrvalsdeildin bannar Chelsea að semja við Paramount Plus Chelsea fær ekki að semja við streymisveituna Paramount Plus þar sem forráðamenn ensku úrvalsdeildar banna það. Paramount Plus átti að prýða treyjur félagsins á næstu leiktíð en nú stefnir í að það verði veðmálafyrirtæki. Enski boltinn 19. júní 2023 09:31
Chelsea reynir að nýta tengslanet sitt í Sádi-Arabíu til að losa sig við leikmenn Enska knattspyrnufélagið Chelsea er í óðaönn að reyna losa sig við leikmenn áður en það þarf að gera tímabilið upp fjárhagslega þann 30. júní. Þá er gott að eiga góða vini sem virðast eiga meiri pening þeir vita hvað þeir eiga að gera við. Enski boltinn 19. júní 2023 08:01
Breytingar í farvatninu hjá Man.City Þrír leikmenn hafa undanfarna daga verið orðaðir við brottför frá karlaliði Manchester City í fótbolta. Fótbolti 19. júní 2023 07:02
Knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni sakaður um nauðgun Knattspyrnustjóri sem stýrir liði í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla hefur verið yfirheyrður af bresku lögreglunni vegna ásakana um nauðgun. Fótbolti 18. júní 2023 22:52
Unai Simon hetja Spánverja þegar liðið vann Þjóðadeildina Spánn bar sigurorð af Króatíu þegar liðin mættust í úrslitum Þjóðadeildar UEFA í fótbolta karla á De Kuip í Rotterdam í Hollandi í kvöld. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og þar af leiðandi réðust úrslitin í vítaspyurnukeppni. Fótbolti 18. júní 2023 21:28
Allt útlit fyrir að Luis Enrique verði næsti stjóri PSG Hinn spænski Luis Enrique er kominn langt í samningaviðræður við PSG um að taka við þjálfun liðsins. Enrique er sagður hafa gefið klúbbnum jákvætt svar en PSG hafa varann á sér eftir að upp úr slitnaði í viðræðum við Julian Nagelsmann. Fótbolti 18. júní 2023 17:05
Ingibjörg Sigurðardóttir aftur á skotskónum með Vålerenga Varnarjaxlinn Ingibjörg Sigurðardóttir var aftur á skotskónum í dag með Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni, en þetta var þriðja mark Ingibjargar á tímabilinu. Vålerenga unnu öruggan 4-1 sigur á botnliði Arna-Bjørnar og sitja taplausar í toppsætinu eftir 16 leiki. Fótbolti 18. júní 2023 16:31
Endurbætur á Nývangi í skugga fjármálaóreiðu Barcelona Barcelona mun leika heimaleiki sína næsta tímabil á Ólympíuleikvangnum í borginni en umfangsmiklar endurbætur á Nývangi eru komnar á fullt og reiknað er með að þær taki 18 mánuði. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er um 1,5 milljarður Evra. Fótbolti 18. júní 2023 16:15
Ítalir sóttu bronsið í Þjóðadeildinni sigri á Hollendingum Ítalir fara heim með bronsið frá Hollandi eftir 3-2 sigur á Hollendingum. Hollendingar voru meira með boltann og sóttu mikið en gekk ekki nógu vel að skapa sér afgerandi færi. Fótbolti 18. júní 2023 14:59
Al Hilal með risatilboð í Rubén Neves og setja plön Barcelona í uppnám Lið Al Hilal hefur lagt fram risatilboð í Rubén Neves, fyrirliða Wolves, samkvæmt Fabrizo Romano. Allt leit út fyrir að Neves væri á leið til Barcelona í lok maí en Spánverjarnir hafa ekki náð að klára kaupin, þrátt fyrir að hafa náð samningum við leikmanninn sjálfan. Fótbolti 18. júní 2023 13:30
Manchester United sagðir undirbúa tilboð í Jordan Pickford Fjölmargir breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að orðið á götunni sé að Manchester United séu að undirbúa 45 milljóna punda tilboð í Jordan Pickford, markvörð Everton. Samningur David de Gea við United rennur út um mánaðarmótin. Fótbolti 18. júní 2023 11:30
Mbappé gæti verið á leið til Man.Utd Forráðamenn Paris Saint-Germain eru reiðubúnir að selja stjörnuleikmann sinn, Kylian Mbappe, til Manchester United í sumar. Fótbolti 18. júní 2023 08:01
Blaðamannafundur Åge Hareide: Svekktur en ekki leiður Þjálfari Íslands, Åge Hareide, var ánægður með frammistöðuna í kvöld en vitaskuld reiður yfir því að tapa leiknum gegn Slóvakíu og þá kannski sérstaklega hvernig sigurmarkið gerðist. Leiknum lauk með 1-2 tapi en þetta var þriðji leikur Íslands í riðlinum og setur það stórt strik í reikninginn við að komast upp úr riðlinum. Fótbolti 17. júní 2023 23:00
Åge um Guðlaug: Með mjög mikinn karakter Á blaðamannafundi eftir leik Íslands og Slóvakíu fyrr í kvöld var þjálfari liðsins, Åge Hareide, spurður út í frammistöðu Guðlaugs Victors Pálssonar en hann missti stjúpföður sinn á dögunum. Guðlaugur átti mjög góðan leik og mátti ekki sjá á honum að hafa orðið fyrir áfalli skömmu fyrir leikinn. Fótbolti 17. júní 2023 22:23
Albert: „Hefði átt að klára færin mín betur“ Albert Guðmundsson lék í fremstu víglínu hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Slóvakíu í undankeppni EM 2024 á Laugardalsvelli í kvöld. Albert við iðinn við að koma sér í góðar stöður og færi en náði ekki að reka smiðshöggið á þær sóknir. Fótbolti 17. júní 2023 22:07
„Áttum aldrei að tapa þessum leik“ „Menn eru bara gríðarlega svekktir. Það er erfitt að kyngja þessu tapi, það er ekki spurning,“ sagði markaskorari Íslands, Alfreð Finnbogason, eftir svekkjandi 2-1 tap liðsins gegn Slóvakíu í kvöld. Fótbolti 17. júní 2023 22:03
Rúnar Alex: „Seinna markið alger grís“ Rúnar Alex Rúnarsson sem stóð á milli stanganna á marki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta segir margt jákvætt hægt að taka frá leik liðsins gegn Slóvakíu í undankeppni EM 2024 á Laugardalsvelli í kvöld þrátt fyrir svekkjandi 2-1 tap. Fótbolti 17. júní 2023 21:45