Toppliðið með fjögurra stiga forskot yfir jólin Inter Milan, topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar, fer með fjögurra stiga forskot inn í jólahátíðina eftir öruggan 2-0 sigur gegn Lecce í kvöld. Fótbolti 23. desember 2023 18:54
Jón Daði lagði upp er Bolton komst aftur á sigurbraut Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson lagði upp fyrsta mark Bolton er liðið vann góðan 3-2 sigur gegn Leyton Orient í ensku C-deildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 23. desember 2023 17:22
Burnley og Luton nálgast öruggt sæti Burnley og Luton unnu bæði mikilvæga sigra í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Á sama tíma mátti Nottingham Forest þola 2-3 tap gegn Bournemouth. Fótbolti 23. desember 2023 17:10
Tap og fjórði markalausi leikurinn í röð hjá United West Ham vann góðan 2-0 heimasigur á Manchester United í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar. United hefur nú spilað fjóra leiki án þess að skora mark. Fótbolti 23. desember 2023 14:27
Vlahovic tryggði Juventus mikilvægan sigur Juventus minnkaði forskot Inter á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í eitt stig eftir sigur á Frosinone á útiveli. Sigurmarkið kom undir lok leiksins. Fótbolti 23. desember 2023 13:38
Vegleg hátíðardagskrá á Stöð 2 Sport Það verður nægt framboð af úrvalsíþróttaefni á Stöð 2 Sport um hátíðarnar, bæði af innlendum og erlendum vettvangi. Sport 23. desember 2023 10:01
Lífið leikur við hjólandi landsliðsmenn í Lyngby Íslensku landsliðsmennirnir sem spila með Lyngby í Danmörku fá sekt ef þeir tala íslensku í klefanum og fara allt á reiðhjóli, allavega þeir sem blaðamaður ræddi við nýverið. Fótbolti 23. desember 2023 09:01
Barcelona í hættu á að vera rekið úr Meistaradeildinni Evrópska knattspyrnusambandið rannsakar brot Barcelona á fjárhagsreglum sambandsins. Félagið bókfærði framtíðartekjur í ársreikning félagsins og gæti nú átt í hættu á að vera rekið úr Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 23. desember 2023 08:01
Kyle Walker réðst á Felipe Melo eftir leik Kyle Walker réðst að Felipe Melo eftir úrslitaleik Manchester City gegn Fluminense á heimsmeistaramóti félagsliða. Skilja þurfti leikmennina að, Walker bað svo Melo afsökunar eftir á. Fótbolti 23. desember 2023 07:00
Mark og stoðsending Alberts tryggði sigur Albert Guðmundsson tryggði Genoa 2-1 sigur á útivelli gegn Sassuolo með marki og stoðsendingu. AC Milan gerði svo óvænt jafntefli gegn botnliði Salernitana. Fótbolti 22. desember 2023 21:58
Norrköping segist ekki hafa lagt fram tilboð í Arnar Norrköping segist ekki hafa verið í viðræðum við Víking um kaup á þjálfaranum Arnari Gunnlaugssyni. Víkingur sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem sagt var að félagið hafi hafnað tilboði og slitið viðræðum við Norrköping. Fótbolti 22. desember 2023 20:11
Manchester City heimsmeistari félagsliða Manchester City er heimsmeistari félagsliða eftir 4-0 sigur gegn Fluminense frá Brasilíu í úrslitaleik mótsins. Fótbolti 22. desember 2023 19:56
Tók rosalegt æðiskast eftir sigurmark Real Óhætt er að segja að Luis García, þjálfari Alavés, hafi misst stjórn á skapi sínu og rúmlega það þegar liðið fékk á sig mark í lokin á leik við Real Madrid í spænsku 1. deildinni í fótbolta í gær. Fótbolti 22. desember 2023 17:00
Messi og Suárez sameina krafta sína á ný Tveir þriðju af MSN-tríóinu svokallaða, sem fór á kostum með Barcelona fyrir nokkrum árum, munu spila saman hjá Inter Miami í Bandaríkjunum áður en langt um líður. Fótbolti 22. desember 2023 15:01
Glódís og Hákon hlutu afgerandi kosningu Glódís Perla Viggósdóttir er knattspyrnukona ársins og Hákon Arnar Haraldsson er knattspyrnumaður ársins. Bæði hlutu þau nafnbótina í fyrsta sinn í fyrra og halda henni. Fótbolti 22. desember 2023 13:34
Bergkamp á tvö af tíu bestu mörkum allra tíma: Maradona og Messi efstir Breska GQ blaðið hefur valið tuttugu bestu fótboltamörk allra tíma með hjálp frá fótboltasérfræðingum. Fótbolti 22. desember 2023 12:00
Man. City á fjóra af ellefu bestu í heimi The Guardian fékk 218 sérfræðinga, þar á meðal þrjá íslenska, til að taka þátt í að velja hundrað bestu knattspyrnukarla heims í ár. Norðmaður, Englendingur og Frakki sitja í efstu þremur sætunum. Fótbolti 22. desember 2023 11:31
Þýska landsliðskonan gleymdi að fara í stuttbuxurnar Liðsfélagi Glódísar Perlu Viggósdóttir lenti í spaugilegri uppákomu í leik Bayern München í þýsku deildinni á dögunum. Fótbolti 22. desember 2023 11:00
Forseti PSG skaut á forseta Real Madrid Evrópudómstóllinn hefur heldur betur opnað upp ormagryfjuna í kringum Ofurdeild Evrópu sem flestir héldu að væri gleymd og grafin. Fótbolti 22. desember 2023 10:31
Fabregas verður að hætta af því að leyfið hans rann út Cesc Fabregas hefur unnið fjóra af fimm leikjum sínum síðan hann tók við ítalska liðinu Como en Spánverjinn er samt að missa starfið sitt. Fótbolti 22. desember 2023 07:30
Segir Fluminese spila eins og brasilíska landsliðið á síðustu öld Evrópumeistarar Manchester City og Suður-Ameríkumeistarar Fluminese mætast í úrslitaleik heimsmeistaramóts félagsliða í kvöld. Fótbolti 22. desember 2023 07:01
Stórliðin keppast við að fordæma evrópsku Ofurdeildina Hvert evrópska stórliðið á fætur öðru hefur sent frá sér yfirlýsingar í dag og í kvöld þess efnis að liðið ætli sér ekki að taka þátt í fyrirhugaðri Ofurdeild. Fótbolti 21. desember 2023 23:01
Vazquez skaut tíu Madrídingum á toppinn Lucas Vazquez reyndist hetja Real Madrid er hann tryggði liðinu 0-1 sigur með marki á ögurstundu gegn Alaves í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 21. desember 2023 22:24
Varamaðurinn Welbeck bjargaði stigi fyrir Brighton Crystal Palace og Brighton gerði 1-1 jafntefli er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 21. desember 2023 21:53
Willum lagði upp en Kristian og félagar úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Willum Þór Willumsson og félagar hans í Go Ahead Eagles eru komnir í 16-liða úrslit hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir öruggan 7-1 sigur gegn C-deildarliði De Treffers í kvöld. Kristian Hlynsson og félagar eru hins vegar úr leik eftir 3-2 tap gegn D-deildarliði USV Hercules. Fótbolti 21. desember 2023 21:27
Natasha kom inn af bekknum í magnaðri endurkomu Natashi Anasi og stöllur hennar í norska liðinu Brann nældu í stig er liðið tók á móti Lyon í B-riðli Meistaradeildar Evrópu kvenna í kvöld. Lokatölur 2-2 í leik þar sem frönsku gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins. Fótbolti 21. desember 2023 20:55
Girona missteig sig og gæti misst toppsætið í kvöld Girona þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli er liðið heimsótti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 21. desember 2023 19:59
Sá markahæsti getur ekki beðið eftir fríinu og ætlar að senda myndir af ströndinni Harry Kane, markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, getur ekki beðið eftir því að koma sér fyrir á ströndinni í sínu fyrsta jólafríi á ferlinum. Fótbolti 21. desember 2023 18:31
Árni Vilhjálmsson búinn að finna sér lið á Ítalíu Knattspyrnumaðurinn Árni Vilhjálmsson hefur gert samning við ítalska C-deildarliðið Novara. Hann gengur formlega í raðir félagsins eftir áramót. Fótbolti 21. desember 2023 18:00
Ekki einn heldur tveir Mbappé inn á vellinum hjá PSG í gær Kylian Mbappé og fjölskylda upplifðu stóra stund í gær þegar Paris Saint Germain vann 3-1 sigur á Metz á Parc des Princes í frönsku deildinni. Fótbolti 21. desember 2023 13:32