Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2026 14:00 Virgil van Dijk er ósáttur með gengi Liverpool á þessu tímabili. getty/Shaun Botterill Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segir að þetta tímabil hjá Rauða hernum hafi verið óásættanlegt og megi ekki endurtaka sig.
Liverpool tapaði fyrir Manchester United á Old Trafford í gær, 3-2. Þetta var ellefta tap Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en fara þarf aftur til tímabilsins 2016-17 til að finna meistara sem töpuðu svona mörgum leikjum. „Ég er ekki hér til að afsaka þetta. Þetta hefur verið mikið vonbrigðatímabil, óásættanlegt tímabil og þetta er erfitt. Við ættum ekki að vorkenna okkur,“ sagði Van Dijk eftir leikinn gegn United. „Það er mikið verk fyrir höndum að snúa þessu við og sjá til þess að þessir hlutir endurtaki sig ekki á næsta tímabili. Þetta er ekki Liverpool.“ Van Dijk segir ótækt hversu mörgum leikjum Liverpool hefur tapað á þessu tímabili. „Það er óásættanlegt hversu mörgum leikjum við höfum tapað sem núverandi meistarar og við eigum ekki að láta það líðast,“ sagði Hollendingurinn. „Við verðum að leggja mikið á okkur fyrir næsta tímabil. Þegar ég kem til baka eftir HM fer ég í það en það þarf að gera margt bak við tjöldin.“ Liverpool er í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 58 stig og mikið þarf að gerast til að liðið leiki ekki í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Næsti leikur Liverpool er gegn Chelsea á Anfield á laugardaginn.
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Liverpool-stjórinn Arne Slot ræddi við Hjörvar Hafliðason á Old Trafford í gær, eftir 3-2 tapið gegn Manchester United, og sagði alla hafa haft trú á því að það yrði Liverpool sem næði inn sigurmarkinu. Sama vandamál og í allan vetur hefði hins vegar gert vart við sig. 4. maí 2026 10:00 „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Markaskorarinn Matheus Cunha ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir 3-2 sigur Manchester United gegn Liverpool í dag. 3. maí 2026 23:05 Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Manchester United vann 3-2 gegn Liverpool eftir að hafa gefið frá sér tvö mörk í seinni hálfleik. Kobbie Mainoo skoraði sigurmarkið með laglegu skoti undir lok leiks. 3. maí 2026 14:00 Isak aftur meiddur Alexander Isak, framherji Liverpool, meiddist í vikunni og mun ekki taka þátt er hans menn mæta Manchester United í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 3. maí 2026 11:30 Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fleiri fréttir Man. City - Coventry | Lampard á kunnuglegum slóðum Nott. Forest - Tottenham | Er lífsmark í Spurs? Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Sjá meira
Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Liverpool-stjórinn Arne Slot ræddi við Hjörvar Hafliðason á Old Trafford í gær, eftir 3-2 tapið gegn Manchester United, og sagði alla hafa haft trú á því að það yrði Liverpool sem næði inn sigurmarkinu. Sama vandamál og í allan vetur hefði hins vegar gert vart við sig. 4. maí 2026 10:00
„Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Markaskorarinn Matheus Cunha ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir 3-2 sigur Manchester United gegn Liverpool í dag. 3. maí 2026 23:05
Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Manchester United vann 3-2 gegn Liverpool eftir að hafa gefið frá sér tvö mörk í seinni hálfleik. Kobbie Mainoo skoraði sigurmarkið með laglegu skoti undir lok leiks. 3. maí 2026 14:00
Isak aftur meiddur Alexander Isak, framherji Liverpool, meiddist í vikunni og mun ekki taka þátt er hans menn mæta Manchester United í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 3. maí 2026 11:30