Mamdani skaut á Man City Valur Páll Eiríksson skrifar 15. október 2026 11:01 Mamdani ásamt Gianni Infantino, forseta FIFA, á HM í sumar. Getty Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, segir Manchester City ekki eiga heima í ensku úrvalsdeildinni. Hann skaut á félagið á viðburði vestanhafs í gær.
Mamdani tilkynnti í gær að New York-borg myndi afhenda New York-háskóla (NYU) rúmar 29 milljónir dala til að koma á fót nýrri rannsóknarstofu sem ætluð er rannsóknum í skammtafræði (e. quantum technology). Mamdani tók við spurningum á blaðamannafundinum sem haldinn var vegna málsins og þar tók við spurningu blaðamanns sem Mamdani sjálfur tók fram að væri stuðningsmaður Liverpool á Englandi. 🚨🇬🇧 WATCH: Zohran Mamdani tells a Liverpool fan “you got beat by team that shouldn’t be in the league” following their loss to Man City on Sunday https://t.co/o0L5270Y5i— Politics Global (@PolitlcsGlobal) October 14, 2026 „Hvernig er að vera stuðningsmaður Liverpool akkúrat núna?“ spurði Mamdani blaðamanninn. „Tjah, ég hef ekki haft tíma til að horfa á það,“ svaraði blaðamaðurinn og vísar til 3-0 taps Liverpool fyrir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Um var að ræða fyrsta leik Manchester City eftir að liðið hlaut fordæmalausan dóm fyrir víðtæk brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. „Þið töpuðuð fyrir liði sem á ekki einu sinni að vera í deildinni,“ sagði Mamdani léttur. Í New York er lið í eigu sömu aðila og Mamdani segir brott ræka úr ensku úrvalsdeildinni. Eigendur Manchester City settu á fót lið New York City FC árið 2013 og fengu inngöngu í stækkun MLS-deildarinnar, stærstu fótboltadeildar Bandaríkjanna, árið 2015. New York City hefur spilað víðsvegar um New York frá stofnun liðsins til að mynda á Yankee-vellinum í Bronx, SI-vellinum í New Jersey og á Citi Field í Queens. Síðastnefndi völlurinn er rétt hjá framtíðarheimili félagsins, Etihad Park, sem opnar á næsta ári. Sá völlur ber heiti flugfélagsins Etihad frá Abú Dabí, líkt og heimavöllur Manchester City, Etihad Stadium.
Bandaríkin Enski boltinn Manchester City Bandaríski fótboltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Fótbolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira