Bashar er lifandi flagg í sjálfu sér „Síðan að ég var krakki hefur mig langað að komast á stóra sviðið og deila því sem ég vil segja með heiminum í gegnum tónlist,“ segir tónlistarmaðurinn Bashar Murad. Lífið 10. febrúar 2024 07:01
Salka Sól prjónar peysu fyrir Bashar Murad Tónlistarkonan Salka Sól, sem jafnframt er þekkt hannyrðakona, hefur tekið sig til og prjónað peysu fyrir tónlistarmanninn Bashar Murad. Peysan er í palenstínsku fánalitunum. Lífið 7. febrúar 2024 13:50
Mun koma fram fyrir hönd Ísraels í Malmö Rússnesk-ísraelska söngkonan Eden Golan verður fulltrúi Ísraels í Eurovision sem fram fer í Malmö í Svíþjóð í maí næstkomandi. Lífið 7. febrúar 2024 07:47
Þær verða kynnar á Eurovision í Malmö Sænsku leikkonunum og skemmtikröftunum Petru Mede og Malin Åkerman hefur verið falið að vera kynnar á Eurovision sem fram fer í Malmö í Svíþjóð í maí. Lífið 5. febrúar 2024 10:15
„Hér er maður berskjaldaðri og viðkvæmari“ „Það er þægilegt að geta klætt sig í búning, verið með ólar, klippt á sig mullet og þóst vera einhver klámstrákur því þá veit maður að maður er í raun í leikriti að einhverju leyti. Hér er maður berskjaldaðri og í raun viðkvæmari,“ segir listamaðurinn Klemens Hannigan sem er hvað þekktastur sem meðlimur Hatara. Hann var að gefa út sína fyrstu sólóplötu, Low Light, og frumsýnir sömuleiðis hér tónlistarmyndband við lagið Someone Else. Tónlist 2. febrúar 2024 07:02
Hæðst að Bashar, Björk og Íslandi í ísraelsku sjónvarpi Svo virðist sem fólkið í Ísrael sé afar upptekið af kröfunni sem fram hefur komið á Íslandi þess efnis að Ísrael verði vikið úr keppni vegna stríðsins á Gasa. Og þá finnst þeim þátttaka Bashar Marud eftirtektarverð, svo vægt sé til orða tekið. Lífið 31. janúar 2024 10:35
Ísland keppir á fyrra undanúrslitakvöldinu Framlag Íslands í Eurovision í Malmö verður flutt á fyrra undanúrslitakvöldi keppninnar, þriðjudagskvöldið 7. maí. Lífið 30. janúar 2024 19:00
Í beinni: Dregið í undanriðla Eurovision 2024 Dregið verður um það í dag í hvaða röð fulltrúar þátttökuþjóða í Eurovision stíga á svið í undankeppnunum tveimur, á þriðjudagskvöldinu og fimmtudagskvöldinu í Malmö í maí. Drátturinn hefst klukkan 18:00 á íslenskum tíma. Lífið 30. janúar 2024 17:31
Óvenjulegt Eurovision lag Íra vekur athygli Söngvarinn Bambie Thug mun fara með framlag Írlands í Eurovision í Malmö. Lag háns Doomsday Blue hefur vakið verðskuldaða athygli á samfélagsmiðlum. Lífið 30. janúar 2024 16:00
Þúsund sænskir tónlistarmenn vilja útiloka Ísrael Rúmlega þúsund sænskir tónlistarmenn hafa ritað nafn sitt undir áskorun þess efnis að Ísrael verði meinað þátttaka í Eurovision söngvakeppninni í ár. Meðal þeirra sem hafa sett nafn sitt á listann eru Robyn og Erik Saade. Lífið 29. janúar 2024 16:30
Deilt um hvort Eurovision sé utanríkismál: „Reiðin verði meiri ef Lilja og Bjarni skipa ríkisútvarpinu fyrir“ Ummæli Lilju Alfreðsdóttur, menningar og viðskiptamálaráðherra, um að ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision sé í raun utanríkismál hafa vakið athygli. Stjórnarmaður í RÚV og stjórnarandstöðuþingmaður gagnrýna þau og telja sérstakt ef ákvörðunin sé tekin frá Útvarpsstjóra og færð til utanríkisráðherra. Innlent 28. janúar 2024 11:56
Nei Lilja, Bjarni á ekki að stýra RÚV! Lilja Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, er á afar miklum villigötum þegar hún fullyrðir að utanríkisráðherra þurfi að vera með í ráðum ef RÚV ákveður að taka ekki þátt í Júróvisjón. Ráðherrar eiga að láta fjölmiðlum eftir að taka ákvarðanir um dagskrá og fréttir, líka þær vandasömu. Skoðun 27. janúar 2024 21:40
Bashar keppir með hjálp Hatarastrákanna Palestínski söngvarinn Bashar Murad mun keppa í Söngvakeppninni með lagi sem var meðal annars samið af liðsmönnum úr hljómsveitinni Hatara sem keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision árið 2019. Lífið 27. janúar 2024 20:30
„Ef við þurfum að sleppa nammideginum, þá er það bara þannig“ Afar athyglisverðar og hispurslausar umræður voru í Pallborði Vísis þar sem farið var yfir hugsanlega þátttöku Íslands í Eurovision. Innlent 27. janúar 2024 08:01
Deilan um þátttöku Íslands í Eurovision harðnar Á Ísland að sniðganga Eurovision? Kiknar RÚV undan þrýstingi og hættir við þátttöku? Breytist allt með þátttöku Palestínumanns í Söngvakeppninni? Kristín Ólafsdóttir fer yfir Eurovision-deiluna með góðum gestum í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Innlent 26. janúar 2024 12:13
„Heilaþvotturinn“ náð lengra í alþjóðlegu grúppunum Eurovision-senan á Íslandi hefur logað síðustu vikur vegna þátttöku Ísraels í keppninni í maí. Umdeild tilkynning Ríkisútvarpsins í vikunni blés nýju lífi í umrótið. Við tókum púlsinn á gallhörðum Eurovision-aðdáanda í Íslandi í dag og fórum yfir pólitíkina sem löngum hefur gegnsýrt hina „ópólitísku“ söngvakeppni. Lífið 26. janúar 2024 10:33
Ísland í annað sæti í Eurovision veðbönkum Íslandi er nú spáð öðru sæti í Eurovision söngvakeppninni af veðbönkum. Ísland heldur því áfram að skjótast upp í veðbönkum en fyrir örfáum dögum var landinu spáð 18. til 20. sæti. Lífið 25. janúar 2024 18:44
Magnús Jónsson er sá sem dró sig út úr Júróinu Aðeins einn hefur dregið framlag sitt til baka úr Eurovision eða Sönglagakeppni Ríkisútvarpsins. Sá er Magnús Jónsson sem meðal annars hefur verið kenndur við Gus Gus. Lífið 25. janúar 2024 14:37
Íslandi nú spáð þriðja sæti í Eurovision Íslandi er nú spáð þriðja sæti í Eurovision, sem fer fram í Malmö í Svíþjóð 7. til 9. maí næstakomandi. Það er stökk úr 18. sæti frá því í gær og má rekja stökkið til frétta af því að hinn palestínski Bashar Murad taki þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. Tónlist 25. janúar 2024 13:48
Ísland tók stökk í Eurovision-veðbönkum Ísland tók stökk í Eurovision-veðbönkum í gær og er nú spáð sjöunda sæti. Fyrir það hafði Íslandi verið spáð 18. og 20. sæti. Lífið 25. janúar 2024 07:53
Ákvörðun RÚV „skrípaleikur“ og „fáránleg“ Íslendingar vilja margir hverjir að Ísland taki ekki þátt í Eurovision vegna þátttöku Ísraels í keppninni. Palestínumaður mun taka þátt í undankeppninni hér á landi í næsta mánuði. Innlent 24. janúar 2024 21:30
Palestínumaðurinn Bashar Murad keppir í Söngvakeppninni Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad mun keppa í Söngvakeppni sjónvarpsins. Murad er landsmönnum kunnugur en hann gaf út lag með hljómsveitinni Hatara, eftir Eurovision ævintýri sveitarinnar í Tel Aviv árið 2019. Tónlist 24. janúar 2024 17:01
Grunar að palestínskur söngvari keppi í Söngvakeppninni Tónlistarkonuna Ágústu Evu Erlendsdóttur grunar að palestínskur tónlistarmaður taki þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár. Það sé ástæða þess að Ríkisútvarpið ætli ekki að taka ákvörðun um þátttöku í Eurovision fyrr en niðurstöður Söngvakeppninnar liggja fyrir. Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad hefur verið nefndur sem keppandi. Tónlist 24. janúar 2024 13:55
Viðbrögð við Júró-útspili RÚV: „Galið“ að leggja ákvörðunina á sigurvegarann Ákvörðun Ríkisútvarpsins um að bíða þar til eftir Söngvakeppni sjónvarpsins um að taka ákvörðun um þátttöku í Eurovision í Svíþjóð hefur fallið misvel í kramið hjá landsmönnum. Margir segja þetta útspil galið og vinsælla væri ef Söngvakeppnin væri haldin án möguleika á að fara til Svíþjóðar. Innlent 24. janúar 2024 11:12
Stjórnarmaður segir ábyrgðinni varpað yfir á listafólkið án aðkomu stjórnar Stjórnarmaður í Ríkisútvarpinu segir að stjórnendur stofnunarinnar hafi varpað allri ábyrgð á þátttöku Íslendinga í Eurovision yfir á listafólkið sem tekur þátt í Söngvakeppninni. Það hafi verið gert alfarið á aðkomu stjórnar hlutafélagsins opinbera. Innlent 23. janúar 2024 22:00
„Þetta er hálft skref í rétta átt“ Daníel Ágúst Haraldsson, sem var einn fjölda tónlistarmanna sem mótmæltu fyrirhugaðri þátttöku Íslendinga í Eurovision, segist fagna því að yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi frestað endanlegri þátttöku fram yfir Söngvakeppni sjónvarpsins. Hann hefði þó viljað sjá skrefið stigið til fulls. Innlent 23. janúar 2024 18:25
Ákveða sig eftir Söngvakeppnina Ríkisútvarpið ætlar ekki að taka neina ákvörðun um þátttöku sína í Eurovision í Svíþjóð fyrr en að lokinni Söngvakeppni sjónvarpsins. Að óbreyttu verður Ísland meðal þátttökuþjóða í Malmö í maí. Innlent 23. janúar 2024 17:10
„Enginn íslenskur listamaður þvingaður til þátttöku í Eurovision“ Það verður enginn íslenskur tónlistarmaður þvingaður til þátttöku í Eurovision. Þetta sagði útvarpsstjóri eftir mótmæli tónlistarfólks við Ríkisútvarpið í dag. Minnst 550 tónlistarmenn vilja að RÚV beiti sér fyrir því að Ísraelum verði meinuð þátttaka í keppninni ellegar dragi Íslendingar sig úr henni. Innlent 19. janúar 2024 00:27
Ísrael verður ekki meinuð þátttaka í Eurovision Ísrael verður ekki meinuð þátttaka í Eurovision söngvakeppninni sem fram fer í Malmö í ár. Þetta er ákvörðun skipuleggjenda keppninnar í Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU). Lífið 18. janúar 2024 11:43
Hatari skorar á skipuleggjendur Eurovision Hljómsveitarmeðlimir í Hatara skora á skipuleggjendur Eurovision söngvakeppninnar að meina Ísraelsmönnum um þátttöku í keppninni í ár. Lífið 17. janúar 2024 22:50