

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Everton steinlá og Lampard varar liðið við annarri fallbaráttu
Undibúningstímabil enska úrvalsdeildarliðsins Everton fer ekki vel af stað, en liðið steinlá 4-0 er þeir bláklæddu heimsóttu Minnesota United í Bandaríkjunum í nótt. Frank Lampard, þjálfari Everton, varaði leikmenn liðsins við annarri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.

Harðstjórinn Ten Hag bannar áfengi og mun vigta leikmenn reglulega
Erik ten Hag ætlar að taka til hendinni hjá Manchester United en Hollendingurinn hefur birt áhugaverðan lista yfir reglur sem leikmenn liðsins verða að fylgja ætli þeir sér að spila undir hans stjórn.

Brighton vill átta milljarða fyrir Cucurella
Pep Guardiola þarf að borga 50 milljónir punda eða rúmlega átta milljarða íslenskra króna til að fá Marc Cucurella, bakvörð Brighton & Hove Albion, í sínar raðir.

Bannaður frá öllum leikvöllum í Englandi eftir nasistakveðju
Shay Asher, 24 ára gamall Englendingur og stuðningsmaður Newcastle, hefur verið dæmdur í þriggja ára bann eftir rasíska kveðju að hætti nasista í leik Newcastle gegn Tottenham á St. James‘ Park, heimavelli Newcastle, þann 17. október 2021.

Liverpool og United berjast um vængmann Ajax
Brasilíumaðurinn Antony, leikmaður Ajax, hefur mikið verið orðaður við Manchester United það sem af er sumri en nú hafa erkifjendurnir í Liverpool blandast í baráttuna.

Jesse Lingard gæti verið á leið til Nottingham Forest
Nýliðar Nottingham Forest eru tilbúnir að margfalda launagreiðslur sínar til að fá Englendinginn Jesse Lingard til liðs við sig. Lingard er án félags eftir að hafa yfirgefið Manchester United fyrr í sumar.

Pulisic bannað að svara spurningum um byssulöggjöfina í Bandaríkjunum
Christian Pulisic, leikmaður Chelsea, var einn af leikmönnum bandaríska landsliðsins í knattspyrnu sem setti nafn sitt við bréf sem liðið sendi bandaríska þinginu þar sem kallað var eftir hertri byssulöggjöf í landinu. Pulisic fékk þó ekki að svara spurningum um málið á blaðamannafundi Chelsea.

Pep staðfestir að Zinchenko sé á leið til Arsenal
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, hefur staðfest að Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko sé á leið til Arsenal. Zinchenko verður því annar leikmaðurinn sem Arsenal kaupir af City í sumar.

„Vá, næst sjá þeir okkur kannski á bensínstöðinni“
Norski markaskorarinn Erling Haaland er mættur í enska boltann og það hefur óhjákvæmilega í för með sér meiri umfjöllun um hann í ensku götublöðunum. Pabbi hans gerði grín að fréttaflutningi The Sun í gær.

Ten Hag gefur engan afslátt af leikstílnum: „Hvað í andskotanum ertu að gera?“
Erik ten Hag hefur borið sigurorð í fyrstu þremur leikjum sínum sem knattspyrnustjóri Manchester United. Þrátt fyrir sigur í leik Manchester United gegn Crystal Palace í æfingaleik í Melbourne í Ástralíu í gær var Erik ten Hag ekki par sáttur við spilamennsku sinna manna á meðan á leiknum stóð.

Tuchel kominn með næsta skotmark í varnarlínuna
Forráðamenn Chelsea eru í viðræðum við kollega sína Sevilla um möguleg kaup á franska landsliðsmanninum Jules Kounde.

Zinchenko færir sig á milli æfingabúða í Bandaríkjunum
Oleksandr Zinchenko er á leið frá æfingabúðum Manchester City til Arsenal en bæði lið búa sig undir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla á bandarískri grundu þessa dagana.

Conte sækir enn einn leikmanninn til Tottenham
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur heldur áfram að bæta við sig leikmönnum í félagsskiptaglugganum sem nú er tæplega hálfnaður. Djed Spence er kominn til liðsins frá Middlesbrough, en hann er sjötti leikmaðurinn sem kemur til liðsins í sumar.

Martial nýtur sín vel undir stjórn Erik ten Hag
Manchester United hefur gengið vel á undirbúningstímabilinu en liðið hafði í dag betur gegn Crystal Palace í æfingaleik liðanna sem spilaður var í Melbourne í Ástralíu.

Zinchenko á leiðinni til Arsenal
Skytturnar halda áfram að kaupa varamenn af Englandsmeisturum Manchester City. Næstur inn er hinn fjölhæfi Oleksandr Zinchenko. Hann mun kosta 30 milljónir punda en heildarkaupverðið gæti numið 32 milljónum þegar fram líða stundir.

Bayern dreymir um Kane til að taka við af Lewandowski
Nú þegar pólska markamaskínan Robert Lewandowski er að ganga í raðir Barcelona frá Bayern München eru forráðamenn félagsins sagðir dreyma um enska framherjann Harry Kane til að fylla í skarðið.

Tjá sig ekki fyrr en Gylfi verður ákærður eða laus allra mála
Lögreglan í Manchester ætlar ekki að tjá sig frekar um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, fyrr en hann verður ákærður eða laus allra mála. Farbann Gylfa rann út á laugardaginn en ekki hafa fengist svör um hvort það hafi verið eða verði yfir höfuð framlengt.

Bálreiður út í Arteta
Ungstirnið Marcelo Flores, leikmaður Arsenal, er fúll og reiður út í knattspyrnustjórann Mikel Arteta fyrir að skilja sig útundan úr 33 manna leikmannahóp Arsenal sem fór til Bandaríkjanna í undirbúningstímabilið sitt þar sem Arsenal leikur þrjá leiki.

Bólusetning skiptir máli þegar Tuchel skoðar nýja leikmenn
Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, er án tveggja miðjumanna á undirbúningstímabili Chelsea í Bandaríkjunum, þeirra N’Golo Kante og Ruben Loftus-Cheek, vegna þess að leikmennirnir eru ekki bólusettir fyrir Covid-19. Óbólusettir mega ekki ferðast til Bandaríkjanna.

Villareal sækist eftir kröftum Cavani
Spænska félagið Villareal hefur áhuga á Edinson Cavani sem yfirgaf Manchester United í júní eftir samningur hans rann út. Framherjin gæti því endurnýjað kynni sín við knattspyrnustjórann Unai Emery hjá Villareal.

Arsenal og City ná samkomulagi um kaupverð á Zinchenko
Arsenal ætlar að sér að kaupa annan leikmann frá Manchester City en hinn úkraínski Oleksandr Zinchenko gæti verið á leið til Lundúna.

De Jong í æfingahóp sem fór til Miami | Fimm leikmenn ásamt knattspyrnustjóranum Xavi eftir í Barcelona
Frenkie de Jong, leikmaður Barcelona, fór með liðinu á undirbúningstímabil þeirra í Bandaríkjunum. Telja einhverjir þetta vera vísbendingu að hann muni þá ekki yfirgefa Barcelona fyrir Manchester United eftir allt saman. Knattspyrnustjórinn Xavi varð hins vegar eftir í Katalóníu.

Chelsea staðfestir komu Koulibaly
Senegalski miðvörðurinn Kalidou Koulibaly er formlega orðinn leikmaður Chelsea eftir að félagið tilkynnti um komu leikmannsins frá Napoli fyrr í morgun.

BBC biðst afsökunar á myndbirtingu vegna kynferðisafbrotamáls
Breska ríkisútvarpið BBC hefur formlega beðist afsökunar að hafa birt mynd af Raheem Sterling þegar miðillinn greindi frá handtöku leikmanns í ensku úrvalsdeildarinnar vegna gruns um kynferðisafbrot.

Lukaku: Mistök að fara til Chelsea
Romelu Lukaku, leikmaður Inter Milan, segir það hafa verið mistök að yfirgefa Inter til að ganga til liðs við Chelsea síðasta sumar.

Eriksen orðinn leikmaður Man United
Það er ekki nóg með að Manchester United raði inn mörkum í æfingaleikjum heldur er félagið líka byrjað að sækja leikmenn. Rétt í þessu var staðfest að Christian Eriksen væri genginn í raðir félagsins.

Raphinha genginn í raðir Barcelona
Þrátt fyrir að því virðist að eiga engan pening heldur spænska knattspyrnuliðið Barcelona áfram að festa kaup á nýjum leikmönnum. Nýjasta viðbótin er brasilíski vængmaðurinn Raphinha.

Segir leikmenn Man Utd í betra standi en áður
Marcus Rashford segir leikmenn Manchester United í betra standi eftir að Erik ten Hag tók við sem þjálfari liðsins. Rashford vonast til að koma inn í tímabilið á fleygiferð en framherjinn átti vægast sagt erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð.

Segir að samkomulag um De Jong sé í höfn en leikmaðurinn vilji ekki fara
Félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá því á Twitter-síðu sinni að Manchester United og Barcelona hafi komist að samkomulagi um kaupverðið á miðjumanninum Frenkie de Jong. Enn eigi þó eftir að ganga frá samningum við leikmanninn sem vill halda kyrru fyrir hjá Börsungum.

Ronaldo með risatilboð frá Sádi-Arabíu
Portúgalski framherjinn Cristiano Ronaldo vill komast frá Manchester United. Hann vill spila í Meistaradeild Evrópu en gæti freistast til að taka gylliboði frá Sádi-Arabíu þar sem talið er að hann fengi rúmlega 105 milljónir punda á ári.