

Besta deild kvenna
Leikirnir

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - Tindastóll 4-0 | Þrenna frá Öglu Maríu í öruggum sigri
Breiðablik vann öruggan sigur á Tindastól er liðin mættust í Bestu deild kvenna í kvöld en Agla María Albertsdóttir skoraði þrennu í leiknum.

Umfjöllun og viðtal: FH - Valur 2-3 | Valskonur halda í við Blika á toppnum
Spútniklið FH tók á móti Val í 11. umferð Bestu deildar kvenna nú í kvöld. Fyrir leikinn sat FH í fjórða sæti með 17 stig á meðan Valur var í öðru sæti með 20 stig, jafn mörg og Breiðablik sem sat á toppnum. Eftir afar bragðdaufar sextíu mínútur fengum við fimm mörk síðasta hálftímann og var það Valur sem fór með 3-2 sigur af hólmi.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór/KA 0-1 | Akureyringar með mikilvægan sigur
Þór/KA sótti sterk þrjú stig í annars bragðdaufum leik í Keflavík í 11. umferð Bestu-deildar kvenna í kvöld. Leiknum lauk með eins mark sigri gestanna, 0-1. Þór/KA er komið upp í þriðja sæti deildarinnar eftir sigurinn.

Umfjöllun: ÍBV - Stjarnan 1-2 | Garðbæingar sóttu stigin þrjú til Eyja
Stjarnan gerði góða ferð til Vestmannaeyja og vann 2-1 sigur á ÍBV í leik liðanna í Bestu deild kvenna í kvöld.

Ekki bara læti í Kötlu í Mýrdalsjökli heldur einnig í Laugardalnum
Katla Tryggvadóttir og félagar hennar í Þrótti unnu flottan 3-0 sigur á Selfossi í fyrsta leik elleftu umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta í gærkvöldi.

„Frábærar í fyrri en seinni hálfleikur var hryllilegur“
Þróttur sigraði Selfoss 3-0 á heimavelli fyrr í kvöld. Nik Chamberlain, þjálfari liðsins, var sáttur með niðurstöðu leiksins en óánægður með frammistöðu liðsins í seinni hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur - Selfoss 3-0 | Þróttur heldur í við toppliðin
Þróttur vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti botnliði Selfoss í fyrsta leik 11. umferðar Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Með sigrinum stökk Þróttur upp í þriðja sæti deildarinnar, en Selfyssingar eru enn límdir við botninn.

Besta upphitunin: Í sigurvímu eftir afrekið sögulega
Erna Guðrún Magnúsdóttir og Sigdís Eva Bárðardóttir, leikmenn Víkings, mættu glaðbeittar til Helenu Ólafsdóttur í Bestu upphitunina og rýndu meðal annars í komandi leiki í 11. umferð Bestu deildarinnar í fótbolta.

Kjóstu besta leikmann júní í Bestu deildinni
Fimm knattspyrnukonur eru tilnefndar sem leikmaður mánaðarins í júní, í Bestu deildinni. Kosningin fer fram á Vísi og niðurstöðurnar verða kynntar í Bestu mörkunum.

Rekinn frá KR eftir minna en ár í starfi
Perry Mclachan hefur verið rekinn frá KR. Hann stýrði liðinu í Lengjudeild kvenna. Árangurinn hefur ekki verið nægilega góður og situr liðið í næst neðsta sæti með sex stig.

Stjarnan slapp við Arsenal og Valur mætir Tyrkjum
Valur og Stjarnan voru bæði meðal þeirra liða sem komu upp úr skálunum þegar dregið var í fyrri umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna í dag.

Anna Björk frá Inter í Val
Landsliðskonana Anna Björk Kristjánsdóttir er gengin í raðir Íslandsmeistara Vals frá ítalska félaginu Inter.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 0-1 | Stólarnir með dýrmætan útisigur
Keflavík og Tindastóll áttust við í 10. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Liðin sátu í 7. og 8. sæti deildarinnar og þurftu bæði á sigri að halda til að slíta sig frá botnbaráttunni.

„Ég held að skot Elísu hafi farið inn“
Murielle Tiernan, framherji Tindastóls var kampakát eftir 0-1 sigur gegn Keflavík á HS Orku vellinum. Leikið var í tíundu umferð Bestu deildar kvenna.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Þróttur 0-0 | Markalaust í Hafnarfirði
FH og Þróttur gerðu markalaust jafntefli á Kaplakrikavelli. Fyrri hálfleikur var góð skemmtun þar sem FH hélt betur í boltann en Þróttur fékk hættulegri færi. Það gerðist lítið sem ekkert í síðari hálfleik en þegar tæplega fjórar mínútur voru eftir fékk Shaina dauðafæri en Íris Dögg varði frábærlega frá henni.

„Baráttan og viljinn var til fyrirmyndar“
FH og Þróttur gerðu markalaust jafntefli í 10. umferð Bestu-deildar kvenna. Guðni Eiríksson, þjálfara FH, fannst stigið vera nokkuð sanngjarnt.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - ÍBV 0-2 | ÍBV skilur Selfyssinga eftir á botninum
ÍBV vann mikilvægan 2-0 sigur er liðið heimsótti Selfyssinga í botnslag Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þetta var fyrsti deildarsigur ÍBV síðan 15. maí síðastliðinn.

„Þetta eyðileggur leikinn fyrir okkur“
„Þetta er bara grátlegt, alveg grátlegt,“ sagði niðurlútur Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, eftir 2-0 tap liðsins gegn ÍBV í Bestu-deild kvenna í kvöld.

Verðlaunuðu Fanndísi sjötíu mánuðum eftir hennar síðasta leik með félaginu
Fanndís Friðriksdóttir fékk viðurkenningu fyrir stórleik Breiðabliks og Vals í Bestu deild kvenna í gærkvöldi.

Geta unnið sinn fimmta leik í röð í kvöld: „Þurfum að vera ofan á í baráttu og vilja“
Athyglisverð viðureign mun eiga sér stað á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í tíundu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld þegar spútniklið deildarinnar til þessa, nýliðar FH, taka á móti Þrótti Reykjavík. Ljóst er að sigri annað hvort liðið í kvöld, þá mun það lið lyfta sér upp í 3. sæti deildarinnar.

„Mér fannst tíminn ekkert líða“
Ásmundur Arnarson, þjálfari Breiðabliks, var sigurreifur eftir 2-1 sigur á Val í stórleik tíundu umferðar Bestu deildar kvenna í kvöld. Úrslitin þýða að Breiðablik jafnar Val á stigum og sitja liðin í efstu tveimur sætum deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 2-1 | Breiðablik upp fyrir Val á toppi deildarinnar
Breiðablik vann afar þýðingarmikinn 2-1 sigur þegar liðið mætti Val í toppslag í 10. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Liðin eru nú jöfn að stigum á toppi deildarinnar en og Breiðablik hirti toppsætið af Val þar sem Blikaliðið hefur betri markatölu.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Stjarnan 3-3 | Endurkoma heimakvenna í ótrúlegum leik
Þór/KA og Stjarnan fengu sitthvort stigið í hreint ótrúlegum leik norðan heiða í dag. Gestirnir leiddu 3-0 eftir fyrri hálfleikinn en heimakonur björguðu stigi með jöfnunarmarki á 89. mínútu leiksins. Lokatölur því 3-3 í frábærum fótboltaleik.

„Það er eins og einhver hafi komist í mixerinn og hrært í öllum tökunum“
„Ég held að engin leikur í heiminum hafi verið meiri leikur tveggja hálfleikja og þessi“, sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA eftir magnaða endurkomu hans stelpna í síðari hálfleik á móti Stjörnunni. Hálfleikstölur 0-3 fyrir Stjörnunni en lokatölur 3-3.

Besta upphitunin: „Auðvitað hefur maður líka metnað að vera aðalþjálfari“
Edda Garðarsdóttir, aðstoðarþjálfari Þróttar, og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, voru gestir Helenu Ólafsdóttur í upphitun fyrir 10. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu.

Dagskráin í dag: Besta deildin og golf
Besta deild kvenna í knattspyrnu og golf er í fyrirrúmi hjá okkur á Stöð 2 Sport í dag.

„Ég veit við erum búnar að tala um þetta milljón sinnum“
Fyrir mót var Stjörnunni spáð Íslandsmeistaratitlinum í Bestu deild kvenna í fótbolta af Vísi. Eftir tap gegn botnliði Selfoss er Stjarnan nær fallbaráttunni heldur en toppbaráttunni. Farið var yfir leik Stjörnunnar í síðasta þætti Bestu markanna.

„Ætluðu að pressa allt þetta mót og eru í formi til þess“
Nýliðar FH halda áfram blússandi siglingu í Bestu deild kvenna í fótbolta eftir að hafa víðast hvar verið spáð falli úr deildinni áður en leiktíðin hófst. Liðið fékk verðskuldað hrós í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld.

„Ummæli mín sverta ekki íslenska knattspyrnu, svona dómgæsla gerir það“
Knattspyrnudeild ÍBV hefur verið látið sæta sekt að upphæð 100 þúsund krónum vegna opinberra ummæla formanns knattspyrnudeildar félagsins, Daníels Geirs Moritz, sem eru talin vega að heiðarleika og heilindum dómarans í leik Vals og ÍBV í Bestu deild kvenna í síðasta mánuði.

Stórir viðburðir frá síðasta sigri: „Risahrós á Selfoss“
Það er óhætt að segja að margt hafi gerst á milli sigranna tveggja sem Selfoss hefur unnið í Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar, eins og bent var á í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld.