Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Frá einni ofurbombu til annarrar

Bandaríska fyrirsætan Emily Ratajkowski fann ástina í örmum fransk-gríska leikstjórans Romain Gavras og hefur frumsýnt sambandið á miðlunum. Gavras deitaði poppstjörnuna Dua Lipa árið 2023 og söngkonuna Ritu Ora þar áður.

Lífið
Fréttamynd

Eric Dane er látinn

Leikarinn og hjartaknúsarinn Eric Dane er látinn. Hann var 53 ára. Dane, sem var hvað frægastur sem „McSteamy“ í Grey's Anatomy og nú síðast fyrir leik sinn í þáttunum Euphoria, sagði frá því í fyrra að hann hefði greinst með hreyfitaugungahrörnun (ALS).

Lífið
Fréttamynd

Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina

Flugher Bandaríkjanna hefur opinberað hvernig nýjar forsetaflugvélar ríkisins eiga að líta út. Þær verða bláar, rauðar og hvítar, með dass af gulli, eins og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lagði til á sínu fyrra kjörtímabili.

Erlent
Fréttamynd

Við­búnaðurinn ekki verið eins mikill frá inn­rásinni í Írak

Bandaríkjamenn hafa ekki haft jafn mikinn viðbúnað í háloftunum og getu til loftárása í Mið-Austurlöndum frá árinu 2003, þegar innrás var gerð í Írak. Búið er að senda gífurlegan fjölda herþota og stuðningsflugvéla á svæðið, auk tveggja flugmóðurskipa og fjölda annarra herskipa.

Erlent
Fréttamynd

Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dag­bókum hans

Crystal Hefner, ekkja Playboy-útgefandans Hughs Hefner, heldur því fram að úrklippu- og dagbækur hans innihaldi nektarmyndir af konum teknar í óleyfi og hugsanlega myndir af ólögráða stúlkum. Til stendur að skanna inn öll skjölin stafrænt svo þau varðveitist. Crystal óttast að efnið muni leka út og hefur því sent kvörtun til ríkissaksóknara Kaliforníu og Illinois.

Lífið
Fréttamynd

Um­deilt Friðarráð fundar í Washington í dag

Tugir þjóðarleiðtoga og sendinefnda munu mæta á stofnfund Friðarráðs Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington í dag. Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands verða hins vegar fjarri góðu gamni, þar sem ríkin hafa afþakkað boð um sæti í ráðinu.

Erlent
Fréttamynd

„Stjórinn“ að fá nóg og líkur á á­rásum

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er líklegri en ekki til að hefja stríð gegn klerkastjórninni í Íran og slíkt stríð gæti hafist á næstunni. Árásir yrðu umfangsmiklar og stæðu líklega yfir í að minnsta kosti nokkrar vikur. Trump er sagður vera að missa þolinmæðina gagnvart klerkastjórninni.

Erlent
Fréttamynd

Hand­tekinn fyrir að sýna typpið

Monty Lopez sem er hvað þekktastur fyrir að vera faðir poppstjörnunnar Addison Rae var handtekinn fyrir óviðeigandi nekt á almannafæri síðastliðið sumar. 

Lífið
Fréttamynd

LaBeouf buffaði tvo og sam­bandið búið spil

Leikarinn Shia LaBeouf var aðfaranótt þriðjudags handtekinn fyrir að kýla tvo menn í slagsmálum á Mardi Gras-hátíðinni í New Orleans. Ekki nóg með það heldur bárust í gær fregnir af því að LaBeouf og Mia Goth, barnsmóðir hans og kærasta til margra ára, séu hætt saman.

Lífið
Fréttamynd

Reyna aftur á morgun

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu gera aðra tilraun til að dæla eldsneyti á eldflaugina Space Launch System (SLS), sem á að nota til að senda geimfara til tunglsins á næstunni. Fyrst var það reynt í byrjun mánaðarins en þá fundust eldsneytislekar á eldflauginni og var Artemis 2 geimskotinu frestað.

Erlent
Fréttamynd

Banda­rískir her­menn í Nígeríu

Um hundrað bandarískir hermenn hafa verið sendir til Nígeríu, þar sem þeir munu þjálfa þarlenda hermenn og hjálpa þeim í átökum við uppreisnar-, víga- og glæpahópa. Þeim er ekki ætlað að taka þátt í átökum með hermönnunum sem þeir munu þjálfa.

Erlent
Fréttamynd

Colbert bannað að birta við­tal við Demó­krata

Stephen Colbert, sem stýrir þættinum Late Show á CBS í Bandaríkjunum, var meinað að birta viðtal við James Talarico, þingmann Demókrataflokksins á ríkisþingi Texas. Það voru lögmenn CBS sem bönnuðu birtingu myndbandsins, á grunni væntanlegra nýrra viðmiða frá Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna (FCC) um suma spjallþætti.

Erlent