Rubio: Ísland í miðjunni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. október 2026 11:35 Marco Rubio ávarpaði landann. Vísir/Anton Brink Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga.
Rubio mætti með Þorgerði á blaðamannafund eftir fund hans með Þorgerði í Höfða og síðan Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í morgun. Þar hóf hann mál sitt á að geta þess að sjöhundruð þúsund bandarískir ferðamenn sæki Ísland heim á ári hverju, sendiherrann Billy Long hefði lofað því að hífa þá tölu upp í milljón. Ísland væri friðsælasta land í heimi. „Í áratugi hefur Ísland verið á strategískum stað sem skiptir máli fyrir öryggi okkar og á meðan heimurinn hefur breyst hefur landafræðin alltaf skipt máli,“ sagði Rubio meðal annars á fundinum. Hann sagði að Ísland væri í miðju norðurslóða og skipti því miklu máli fyrir sameiginlegt öryggi Bandaríkjanna, Íslands og annarra vinaþjóða. Hann lagði áherslu á að Ísland gegndi mikilvægu hlutverki fyrir sameiginlegt öryggi NATO ríkja. Samstarfið skipti miklu máli til að koma í veg fyrir átök. Þá lagði Rubio áherslu á samstarf ríkjanna á öðrum sviðum og nefndi meðal annars að Ísland hefði um árabil verið aðsetur bandarískra geimfara til æfinga. Um væri að ræða fyrstu opinberu heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands þar sem ekkert annað erindi væri uppi og sagði Rubio telja að stutt yrði í þá næstu vegna mikilvægis Íslands. Engin uppbygging án samþykkis Rubio fékk spurningar frá íslenskum sem og erlendum fjölmiðlum á fundinum. Hann var meðal annars spurður út í mögulega hernaðaruppbyggingu Bandaríkjanna á Íslandi og mögulega inngöngu Úkraínu inn í NATO, sem hann sagði af borðinu þar til stríðinu lýkur. Hann segir Bandaríkin opin fyrir viðræðum um frekari uppbyggingu á Íslandi. Rubio fagnaði því að hafa séð norðurljósin.Vísir/Anton Brink „Við myndum aldrei gera neitt án samstarfs við yfirvöld. Það eru tækifæri til þess að gera meira, Ísland hefur innviðina,“ sagði Rubio sem sagði að sjónir Bandaríkjanna hefðu beinst annað undanfarin ár. Heimurinn væri hinsvegar breyttur, Ísland hafi alltaf gegnt krítísku hlutverki fyrir varnir NATO. Sagði hann ógnir væru til staðar á Norðurslóðum og að þær væru fjölbreyttari en áður. Vildi ekki ræða kort Bandaríkjaforseta Þá spurði blaðamaður New York Times út í frægt Norður-Ameríkukort Bandaríkjaforseta sem birtist á Truth Social þar sem mátti sjá Ísland sveipað bandarísku fánalitunum. „Við erum ekki að tala um samfélagsmiðlafærslur. Við gerum margt saman, allt saman er það jákvætt,“ sagði Rubio þá. Hann var einnig spurður um það hvers vegna engin skip né flugvélar hefðu tekið þátt í varnaræfingunni Norður-Víkingi á Íslandi í síðasta mánuði. Sagði hann Bandaríkjamenn hafa þurft að bregðast við vegna átakanna í Miðausturlöndum og að ekki mætti lesa dýpra í þá ákvörðun. „Við erum enn með mannafla hér og ég er í heimsókn því þessi staður skiptir máli.“ Lagði áherslu á efnahagslegt samstarf Rubio var þá spurður út í kannanir Bandaríkjanna á varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna og sagði Bandaríkjamenn oft kanna hvar þau standa. Hann sagði Bandaríkin standa með Íslandi, löndin ættu sér langa sögu um samstarf og litu á sömu hlutina sem ógnir og sömu hlutina sem tækfiæri. Hann var einnig spurður hvar væru tækifæri til að dýpka samstarfið. „Öryggi kemur á undan öllu öðru, ef þú ert ekki öruggur þá geturðu ekki verið farsæll. Það sem hefur breyst er heimurinn og ógnirnar, ógnirnar fyrir tuttugu til þrjátíu árum voru aðrar en við erum með ákveðna grunnlínu sem nær 75 ár aftur í tímann,“ sagði Rubio. Hann segir tækifæri á sviði efnahagsmála mörg og að á Íslandi væru mörg frábær fyrirtæki. Eitt af því sem yrði gert til að fylgja eftir fundinum væri að fá bandarísk fyrirtæki í sérstaka heimsókn hingað til lands. Þá var Rubio spurður út í mögulegan fríverslunarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Hann sagði tíma fríverslunarsamninga liðna en að tækifæri væru til staðar til að gera tvíhliða samninga. Slíkt hefði verið í bígerð áður en hann hefði komið í heimsókn til Íslands.
Heimsókn Marco Rubio til Íslands Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Íslandsvinir Bandaríkin Norðurslóðir Öryggis- og varnarmál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Sjá meira