„Þegar hann gat ekki hlaupið lengur, þurfti hann að berjast“ Sérstakur málflutningur fór fram í vikunni og hefur vitnisburður mannanna þriggja sem hafa verið ákærðir vegna dauða Ahmaud Arbery varpað frekari ljósi á málið. Erlent 5. júní 2020 15:16
Upplifði létti á samstöðumótmælunum og vonar að þau marki upphafið að allsherjar vakningu Sigrún hefur ítrekað orðið fyrir fordómum fyrir það eitt að vera brún á hörund. Hún segir að fordóma gegn svörtu fólki sé sannarlega að finna á litla Íslandi. Sigrún biðlar til foreldra að fræða börnin sín. Innlent 5. júní 2020 14:48
Fundu engin merki um meint misferli sonar Biden í Úkraínu Fyrrverandi saksóknari í Úkraínu segir að engar vísbendingar hafi komið fram um að sonur Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, hafi gert nokkuð saknæmt við endurskoðun á gömlum málsskjölum þar. Donald Trump Bandaríkjaforseti og repúblikanar hafa haldið því fram án sannana að Biden-feðgarnir hafi gerst sekir um spillingu í Úkraínu. Erlent 5. júní 2020 13:41
Víggirt Hvíta húsið deilir við ráðhúsið um yfirráð yfir Washington-borg Frá því á mánudagskvöld þegar mótmælendur voru hraktir frá Lafayettetorgi við Hvíta húsið, svo Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gæti haldið myndatöku, hafa varnir við Hvíta húsið aukist gífurlega. Erlent 5. júní 2020 13:39
Lögregluþjónum vikið úr starfi fyrir að hrinda gömlum manni sem þeir sögðu hafa hrasað Tveimur lögregluþjónum í Buffalo í New York ríki hefur verið vikið úr starfi fyrir að ýta 75 ára gömlum manni í jörðina. Erlent 5. júní 2020 11:44
Lögregla hefur engan grunaðan um skotárás þar sem sjö létu lífið Lögreglan í Morgan-sýslu í Alabama í Bandaríkjunum fann í morgun sjö látnar manneskjur í húsi í bænum Valhermoso Springs. Málið er til rannsóknar en enginn hefur verið handtekinn. Erlent 5. júní 2020 10:05
Deildi bréfi þar sem mótmælendur eru kallaðir hryðjuverkamenn Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, deildi í gær bréfi þar sem fyrrverandi lögmaður hans kallar mótmælendur hryðjuverkamenn og skrifar fjölda ósanninda og dylgjur. Erlent 5. júní 2020 09:13
Segja að svara verði „sviksemi“ Carole Baskin Umboðsmannateymi á bak við Joe Exotic, sem einnig er þekktur sem Tígrísdýrakonungurinn, segir að svara verði „sviksemi“ Carole Baskin, sem nýverið vann mál á hendur Exotic með þeim afleiðingum að hún eignaðist dýragarð sem áður var í hans eigu. Erlent 5. júní 2020 09:03
Bætist í hóp herforingja sem gagnrýna Trump Nú bætist í hóp þeirra herforingja sem gagnrýna Bandaríkjaforseta en hótanir hans um að beita hernum gegn mótmælendum hafa vakið afar hörð viðbrögð, ekki hvað síst innan úr röðum hersins. Erlent 5. júní 2020 07:08
„Takið hnén á ykkur af hálsunum á okkur“ Hné lögreglumannsins á hálsi George Floyd er myndlíking fyrir þann raunveruleika sem þeldökkir Bandaríkjamenn glíma við á hverjum degi að mati séra Al Sharpton. Erlent 4. júní 2020 23:30
George Floyd minnst í Minneapolis Minningarathöfn um George Floyd, svartan Bandaríkjamann sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa myrt í síðustu viku, stendur nú yfir í Minneapolis. Enn er mótmælt víðs vegar um heiminn. Erlent 4. júní 2020 18:45
Morðingi svarta skokkarans sagður hafa kallað hann rasísku nafni Sérstakur saksóknari sem rannsakar morðið á Ahmaud Arbery, svörtum skokkara, í Georgíu í Bandaríkjunum segir að einn mannanna sem voru handteknir vegna morðsins hafi kallað Arbery rasísku nafni eftir að hafa skotið hann með haglabyssu. Erlent 4. júní 2020 16:26
Obama kallaði eftir breytingum hjá lögreglunni Mótmælendur lögregluofbeldis og kerfislægrar kynþáttahyggju fengu stuðning frá Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í myndbandsávarpi í gær. Obama sagði að breytinga væri þörf hjá lögregluliði landsins og að endurskoða þyrfti stefnu um hvernig hún beitir valdi sínu. Erlent 4. júní 2020 12:37
Segir að erfðaskrá eiginmanns Carole Baskin sé fölsuð Chad Chronister, lögreglustjóri í Flórída í Bandaríkjunum er sagður hafa staðfest orðróma þess efnis að erfðaskrá Don Lewis, fyrrum eiginmanns dýraverndunaraktívistans Carole Baskin, sé fölsuð. Erlent 4. júní 2020 11:33
Bandaríska sendiráðið þakkar lögreglunni fyrir að standa vörð um mannréttindi Bandaríska sendiráðið á Íslandi birti í gærkvöldi færslu þar sem það tjáði sig um stöðu mála í Bandaríkjunum. Innlent 4. júní 2020 11:26
George Floyd hafði greinst með Covid-19 Í krufningaskýrslu kemur fram að kórónuveirusmitið hafi ekki átt þátt í dauða George Floyd, en áður hefur verið greint frá því að Floyd hafi látist af völdum köfnunar. Erlent 4. júní 2020 07:47
Fyrrverandi ráðherra sakar Trump um að sundra þjóðinni James Mattis, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Trump-stjórninni, segir að Donald Trump forseti sé að reyna viljandi að tvístra þjóðinni með orðum sínum og aðgerðum. Erlent 4. júní 2020 07:38
Aflétta útgöngubanni fyrr en áætlað var Borgaryfirvöld í bandarísku borginni Seattle í Washington-ríki hafa ákveðið að aflétta skyndilega útgöngubanni sem komið hafði verið á vegna mótmælaöldu sem farið hefur yfir stærstu borgir Bandaríkjanna, og snýr að kerfisbundnu ofbeldi lögreglunnar í landinu gegn svörtu fólki. Erlent 4. júní 2020 06:49
Herða ákærur á hendur lögreglumanninum sem kraup á hálsi Floyd Yfirvöld í Minnesota-ríki Bandaríkjanna hafa hert ákæruna á hendur Derek Chauvin, lögreglumanninum fyrrverandi sem kraup á hálsi George Floyd þann 25. maí síðastliðinn. Erlent 3. júní 2020 20:38
Frakkar og Þjóðverjar deila ekki áhuga Trump á að fá Rússa inn í G7 Hvorki þýsk né frönsk stjórnvöld eru spennt fyrir því að bjóða Rússum aftur inn í hóp stærstu iðnríkja heims sem kalla sig G7. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það „heilbrigða skynsemi“ að leyfa Rússum að slást aftur í hópinn. Erlent 3. júní 2020 16:45
Ráðherra ósammála Trump um að beita hernum Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna lýsti sig ósammála hótunum Donalds Trump forseta um að beita hernum til þess að stöðva mótmæli sem hafa blossað upp víða um landið í kjölfar dráps á blökkumanni í haldi lögreglu. Ráðherrann telur aðstæður ekki réttlæta að herinn verði kallaður út. Erlent 3. júní 2020 15:58
Friðsamleg samstöðumótmæli á Austurvelli í dag Samstöðumótmæli munu fara fram á Austurvelli klukkan 16:30 í dag. Mótmælin eru skipulögð vegna ástandsins vestanhafs þar sem mótmælt hefur verið í öllum ríkjum Bandaríkjanna eftir dauða George Floyd. Innlent 3. júní 2020 15:35
Rísa upp eftir viðvarandi ofbeldi í aldanna rás segja „hingað og ekki lengra“ Silja Bára Ómarsdóttir segir að mótmælin vegna morðsins á George Floyd í Minneapolis eigi sér langan aðdraganda. Kynþáttahyggja samofin kerfum landsins sé viðvarandi vandamál sem bandarískt samfélag hafi ekki tekist á við. Innlent 3. júní 2020 13:49
Umdeildum þingmanni hafnað og Biden við það að sigra Kjósendur Repúblikanaflokksins í Iowa höfnuðu umdeildum þingmanni sínum sem sóttist eftir tíunda kjörtímabili sínu í forvali í gær. Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, er við það að tryggja sér útnefningu demókrata sem forsetaframbjóðandi eftir kosningarnar sem fóru fram í skugga kórónuveirufaraldurs og mótmælaöldu vegna dráps á blökkumanni í haldi lögreglu. Erlent 3. júní 2020 11:04
Mótmæli næturinnar að mestu friðsamleg Mótmæli héldu áfram í nótt í Bandaríkjunum þrátt fyrir útgöngubann í fjölda borga. Erlent 3. júní 2020 06:48
Fór sjálfur á vettvang og ýtti á eftir rýmingu torgsins fyrir ávarp Trump William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, fór sjálfur á vettvang og fyrirskipaði lögreglumönnum að úttvíkka það svæði sem mótmælendur máttu ekki vera á við Laffayette-torg í grennd við Hvíta húsið í Washington. Erlent 2. júní 2020 20:05
Íslendingur í New York segir mótmælin hluta af tímabærri samfélagslegri byltingu Dauði hins 46-ára gamla George Floyd sem lét lífið eftir afskipti lögreglunnar í Minneapolis hefur hrundið af stað mótmælaöldu um gervöll Bandaríkin og hafa samstöðumótmæli verið haldin víða um heiminn. Erlent 2. júní 2020 17:19
Biden segir Bandaríkin þurfa að taka á kerfisbundnum rasisma Bandaríkin skortir forystu á tíma þegar þau þurfa að taka á kerfisbundinni kynþáttahyggju í kjölfar dauða blökkumanns í haldi lögreglu í síðustu viku, að sögn Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. Í fyrstu í Fíladelfíu deildi Biden hart á Donald Trump forseta fyrir viðbrögð hans við mótmælum undanfarinna daga. Erlent 2. júní 2020 16:39
Fimm lögreglumenn skotnir í mótmælum vestanhafs Að minnsta kosti fimm lögreglumenn eru sagðir hafa orðið fyrir byssukúlum í mótmælum vegna dauða blökkumanns í haldi lögreglu í gærkvöldi. Lögreglumennirnir eru ekki taldir lífshættulega særðir. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að beita hernum til að stöðva mótmæli og óeirðir. Erlent 2. júní 2020 13:39
Hundrað tilfelli ofbeldis gegn fréttamönnum í óeirðunum Hátt í hundrað fréttamenn greindu frá því að lögreglan hafi beint spjótum sínum að þeim í mótmælum helgarinnar í Bandaríkjunum. Lögreglan hafi beitt táragasi, piparspreyi og gúmmíkúlum gegn þeim. Erlent 2. júní 2020 13:33