
Í beinni: Ríkisstjórnin fallin
Stjórn Bjartrar framtíðar sleit í gærkvöldi ríkisstjórnarsamstarfi flokksins við Sjálfstæðisflokksins og Viðreisn.
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Stjórn Bjartrar framtíðar sleit í gærkvöldi ríkisstjórnarsamstarfi flokksins við Sjálfstæðisflokksins og Viðreisn.
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor segir stórtíðindi að ræða þegar ríkisstjórn falli. Þetta er í þriðja skiptið á innan við áratug sem ríkisstjórn hrökklast frá völdum.
Ný mál og endurflutt eru boðuð frá ríkisstjórninni en málaskrá hennar var birt í gær. Nýjar stofnanir, brotthvarf annarra og nýjar leiðir til tekjuöflunar eru á boðstólum.
Þingflokkur Viðreisnar fundaði í Austurstræti frá klukkan rúmlega 1 eftir miðnætti til um klukkan 4.
Guðlaug Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, segir að mikil eining hafi verið á stjórnarfundir flokksins í kvöld þar sem samþykkt var að slíta stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokk og Viðreisn.
Stjórn Bjartrar framtíðar samþykkti á fundi sínum í kvöld að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn. Kosningin fór fram rafrænt og lauk á tólfta tímanum í kvöld.
Alls eru 188 mál á þingmálaskrá ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar fyrir þing sem var að hefjast.
Eins og við var að búast voru allir flottir í tauinu á þingsetningarathöfninni á þriðjudaginn. Ljósmyndarar Fréttablaðsins fylgdust með þegar forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn mættu til Alþingis í sínu fínasta pússi.
Fyrsta umræða um frumvarp til fjárlaga ársins 2018 hefst á Alþingi í dag klukkan 10:30.
Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna greinir á um hvernig túlka megi orð forseta Íslands um stjórnarskrárbreytingar í ræðu við þingsetningu. Formaður Framsóknarflokksins leggur áherslu á breytingar í skrefum. Píratar vara við bútasaumi
Þeir héldu á borða með skilaboðunum „Virðið barnasáttmálann.“
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, gaf lítið fyrir orð Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra, um komandi kjaraviðræður.
Birgitta Jónsdóttir spólaði 30 ár fram í tímann í ræðu sinni á Alþingi í kvöld.
Ráðherrann lagði út frá því í ræðu sinni að hér á landi væru sveitarfélög sem væru meira en 70 talsins.
Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra, gerði geðheilbrigðismál að umtalsefni á Alþingi í kvöld.
Sigurður Ingi Gunnarsson sagði í ræðu sinni á Alþingi að landsmenn vilji fjölbreytta þjónustu í takt við þarfir á hverjum tíma óháð búsetu.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, flutti stefnuræðu sína fyrir komandi þingvetur á Alþingi upp úr klukkan hálfátta í kvöld.
Katrínu Jakobsdóttur formanni Vinstri grænna var tíðrætt um fátækt og misskiptingu í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra.
Forystufólk í stjórnarandstöðu segir vel hægt að bæta meiri fjármunum til uppbyggingar heilbrigðis-, velferðar- og samgöngukerfisins en gert sé ráð fyrir í fjárlögum ríkisstjórnarinnar.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra heldur stefnuræðu sína í kvöld klukkan 19:30.
Áhersla er lögð á græna skatta í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Gert er ráð fyrir að afgangur á fjárlögum verði 19 milljörðum meiri en ráðgert var þegar frumvarp yfirstandandi árs var lagt fram.
Virðisaukaskattur á ferðaþjónustuna verður ekki hækkaður um mitt næsta ár eins og til stóð, heldur hækkar hann hinn 1. janúar árið 2019.
Forseti Íslands skorar á Alþingi að breyta stjórnarskránni og lögum hvað varðar völd forseta, og þá alveg sérstaklega um aðkomu hans að því að fólk fái uppreist æru.
Birgitta Jónsóttir hefur verið kosin þingflokksformaður Pírata. Hún tekur við af Einari Brynjólfssyni sem tók við af Ástu Guðrúnu Helgadóttir í maí síðastliðnum.
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra mun í dag kynna frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2018.
„Ég vil skila skýrslu til ráðherra í þessum mánuði,“ segir Björgvin Guðmundsson, formaður nefndar sem fjallar um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla.
Fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar verða lögð fram á fimmtudag. Útlit er fyrir átakavetur á Alþingi. Fjármál ríkisins verða allsráðandi út árið en seinnipart vetrar gætu sveitarstjórnarkosningarnar litað þingstörf.
Ellilífeyriskerfið hefur verið eflt verulega og fyrirhugað er að halda því áfram, segir í aðsendri grein Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, sem birtist í blaðinu í dag.
Almenningur getur nú skoðað yfirlit greiddra reikninga úr bókhaldi ráðuneyta í rauntíma á vefnum opnirreikningar.is.
Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan 11 í morgun. Alþingi kemur saman á ný á morgun.