Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Þrír karlmenn, á sextugs- og sjötugsaldri, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að smygla rétt rúmum þremur kílóum af kókaíni til landsins frá Spáni í apríl á þessu ári. Þeim er gefið að sök að smygla efnunum, hvers styrkleiki hafi verið á bilinu 78 til 80 prósent, í þremur pottum frá Spáni til Íslands. Innlent 8. júlí 2025 13:41
Myndaveisla frá Írskum dögum - Bylgjulestin 2025 Veðrið lék heldur betur við gesti bæjarhátíðarinnar Írskir dagar sem fór fram á Akranesi um helgina. Bylgjulestin lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og bauð upp á fjölbreytta dagskrá á laugardag. Lífið samstarf 7. júlí 2025 14:57
Bíll í ljósum logum á Skaganum Bíll stóð í ljósum logum fyrir utan blokk við Holtsflöt á Akranesi um sexleytið í kvöld. Búið er að ráða niðurlögum eldsins en bíllinn er ónýtur. Innlent 6. júlí 2025 18:48
Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Steinar Orri Fjeldsted, einn meðlima rappsveitarinnar Quarashi, segir ekkert annað hafa komið til greina en að sveitin sameinaðist eftir áratugarhlé þegar boð barst frá Lopapeysunni á Akranesi. Allir meðlimir sveitarinnar eiga þangað rætur að rekja og lofar hann miklu stuði í kvöld. Tónlist 5. júlí 2025 14:08
Stór ferðahelgi framundan og bæjarhátíðir víða um land Ein stærsta ferðahelgi ársins er framundan og stórir viðburðir haldnir víða um land. Goslokahátíð í Vestmannaeyjum nær hápunkti á morgun og þá er búist við fjölmenni á Akranesi í tengslum við Írska daga. Innlent 4. júlí 2025 13:01
Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Næsti viðkomustaður Bylgjulestarinnar er Akranes en fjölskylduhátíðin Írskir dagar fer þar fram dagana 3.-6. júlí. Það má því búast við miklu fjöri alla helgina en Bylgjulestin verður í beinni á laugardaginn milli kl. 12 og 16. Lífið samstarf 4. júlí 2025 08:59
Magnús Þór lést við strandveiðar Strandveiðimaðurinn sem lést þegar bátur hans sökk út af Patreksfirði í gær hét Magnús Þór Hafsteinsson og var 61 árs. Hann var fyrrverandi þingmaður og gerði út á bátnum Orminum langa AK-64 frá Patreksfirði. Innlent 1. júlí 2025 14:11
Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Vala Grand Einarsdóttir og Brynjólfur Gunnarsson hafa fest kaup á einbýlishúsi á Akranesi. Um er að ræða 150 fermetra einbýlishús á einni hæð með bílskúr, staðsett innst í rólegri botnlangagötu. Ásett verð eignarinnar var 89,5 milljónir króna. Lífið 1. júlí 2025 11:13
Sjáðu allan þáttinn um Norðurálsmótið Gleðin var við völd á Norðurálsmótinu á Akranesi, þar sem strákar og stelpur í 7. og 8. flokki skemmtu sér í fótbolta. Andri Már Eggertsson var á svæðinu og ræddi við krakkana í nýjasta þætti Sumarmótanna sem nú má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 27. júní 2025 10:32
Hvalfjarðargöng eru lokuð Hvalfjarðargöngin voru tímabundið lokuð á meðan verið er að fjarlægja bíl. Innlent 22. júní 2025 18:00
Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Terra hafa hafið formlegt samstarf um markvissari úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum. Byrjað verður á Norðurálsmótinu sem fer fram á Akranesi í vikunni og um helgina. Viðskipti innlent 20. júní 2025 06:54
Quarashi aftur á svið Íslenska hljómsveitin Quarashi stígur á svið á tónlistarhátíðinni Lopapeysan sem fer fram fyrstu helgina í júlí á Akranesi. Sveitin starfaði í átta ár og lagði upp laupana árið 2004. Lífið 18. júní 2025 11:15
Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona hefur verið ráðin í starf upplýsingafulltrúa Akraneskaupstaðar. Viðskipti innlent 18. júní 2025 11:10
Ungmenni réðust á varnarlaust fórnarlamb í skógræktinni á Akranesi Tveir ungir menn hafa verið sakfelldir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem beindist að einum manni við skógræktina við Klapparholt á Akranesi. Innlent 2. júní 2025 14:25
Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi Árekstur varð á Vesturlandsvegi á fjórða tímanum í dag. Umferð um veginn í báðar áttir var lokað um tíma en opnað hefur verið fyrir umferð í suðurátt. Bílaröðin teygir sig marga kílómetra í suður. Enginn er alvarlega slasaður. Innlent 30. maí 2025 16:52
Eva Laufey og Haraldur selja húsið á Skaganum Hjónin, Eva Laufey Kjaran, dagskrárgerðarkona og markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups, og Haraldur Haraldsson deildarstjóri Icelandair Cargo, hafa sett fallegt einbýlishús við Reynigrund á Akranesi á sölu. Ásett verð er 119 milljónir. Lífið 23. maí 2025 16:21
Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi Síðan á miðnætti hafa verið fimm útköll á sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í tilkynningu segir að það sé óvenju mikið miðað við árstíma. Fyrsta útkallið var frá fólki sem var á siglingu á miðjum Seyðisfirði og hin fjögur vegna strandveiðibáta í vandræðum. Innlent 19. maí 2025 12:48
Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir býr á Akranesi ásamt eiginmanni sínum Jóni Þór Haukssyni knattspyrnuþjálfara og sonum þeirra þremur. Lífið 16. maí 2025 10:31
„Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugsson tóku óvænt við þjálfun ÍA eftir nokkrar umferðir sumarið 2006. Nálgun þeirra á þjálfarahlutverkið var nokkuð óvenjuleg en þeir áttu sér hauk í horni í verkalýðsleiðtoganum Vilhjálmi Birgissyni. Íslenski boltinn 23. apríl 2025 09:01
Missti vélarafl suður af Snæfellsnesi Áhafnir björgunarskipanna Bjargar á Rifi og Jóns Gunnlaugssonar voru kallaðar út klukkan 9:30 í morgun vegna fiskibáts sem misst hafði vélarafl suður af Snæfellsnesi, skammt vestur af Landbrotavík. Báturinn var dreginn til hafnar á Akranesi. Innlent 22. apríl 2025 17:51
„Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Hátt í níutíu íslenskir piltar, þar af sjötíu undir lögaldri, eru fastir ásamt fylgdarliði á flugvellinum í Barselóna þessa stundina. Í hópnum eru allt niður í fjórtán ára börn og einhver enn þá yngri systkini. Drengirnir sem eru annars vegar Skagamenn og hins vegar Grindvíkingar voru í keppnisferð í fótbolta, að taka þátt í Daurada Cup í Salou. Pappírar sem gera fararstjórum kleift að ferðast með strákana renna út í dag. Innlent 19. apríl 2025 10:08
VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi VÍS opnar í sumar aftur þjónustuskrifstofu á Akranesi. Í tilkynningu frá VÍS kemur fram að skrifstofan verði að Dalbraut 1, í sama húsnæði og Íslandsbanki. Tilkynnt var um samstarf VÍS og Íslandsbanka í janúar. Með samstarfinu njóta viðskiptavinir beggja félaga sérstaks ávinnings í vildarkerfum. VÍS hefur ekki rekið skrifstofu á Akranesi frá árinu 2018. Viðskipti innlent 15. apríl 2025 11:36
Mikið högg fyrir nærsamfélagið Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir ákvörðun Hvals hf. um að ekki verði stefnt að hvalveiðum í sumar slá sig illa. Um sé að ræða mikið högg fyrir félagsmenn og nærsamfélagið. Innlent 12. apríl 2025 12:19
Engar hvalveiðar Hvals í sumar Hvalur hf. stefnir ekki á hvalveiðar í sumar. Þetta herma heimildir fréttastofu en RÚV greindi fyrst frá. Innlent 11. apríl 2025 17:34
Bjarki gerði allt brjálað á Skaganum með því að kyssa KR-merkið Þrátt fyrir að hafa alist upp hjá ÍA var Bjarki Gunnlaugsson ekki vinsælasti maðurinn á Akranesi sumarið 1999. Íslenski boltinn 11. apríl 2025 09:01
Greiða atkvæði um verkfall á Grundartanga Undirbúningur er hafinn að atkvæðagreiðslu á um vinnustöðvun félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness sem starfa í álveri Norðuráls á Grundartanga. Stéttarfélagið segist skynja lítinn samningsvilja af hálfu fyrirtækisins og því sé vinnustöðvun það eina í stöðunni. Innlent 28. mars 2025 15:39
Laun bæjarstjóra vanvirðing við íbúa Þónokkrir bæjarstjórar á Íslandi eru með yfir þrjár milljónir króna á mánuði. Verkalýðsleiðtogi segir þessi háu laun óforsvaranleg og vanvirðingu við skattgreiðendur. Innlent 25. mars 2025 19:29
14 hundar og 3 kettir á heimili á Akranesi Það er líf og fjör á heimili á Akranesi alla daga því þar eru fjórtán hundar og þrír kettir. Höfðingi hópsins er tíkin Korka, sem er með níu hvolpa á spena. Sjálf á hún fjórar þeirra en hina fimm tók hún að sér frá annarri tík, sem var svo veik að hún gat ekki hugsað um hvolpana sína. Innlent 23. mars 2025 20:05
Útskrifaður af gjörgæslu Starfsmaður verktakafyrirtækisins Hagtaks sem hafnaði í Akraneshöfn þegar alda hrifsaði bíl í höfnina hefur verið útskrifaður af gjörgæslu. Forstjóri fyrirtækisins segir vonir standa til að hann nái sér að fullu en það komi í ljós á næstu vikum. Innlent 17. mars 2025 15:58
Á batavegi eftir slysið í Akraneshöfn Maður um sextugt sem kastaðist út í sjó við höfnina á Akranesi í síðustu vikur er kominn á bataveg. Innlent 11. mars 2025 13:55