Flugleiðir fyrst íslenskra félaga til að nýta Boeing 747

Loftleiðamenn skrifuðu árið 1973 undir viljayfirlýsingu um kaup á tveimur Boeing 747-risaþotum. Ríkisstjórn Íslands hafnaði því hins vegar að veita ríkisábyrgð fyrir kaupunum. Lengsta samfellda saga Íslendinga í rekstri júmbó er hjá Cargolux, sem fékk fyrstu 747-þotuna árið 1979. Flugleiðir urðu þó fyrsta íslenska félagið til að taka slíka þotu í þjónustu sína með vél sem leigð var í pílagrímaflug árin 1982 og 1983. Í þættinum Flugþjóðin á Sýn+ er fjallað um júmbóþotuna í höndum Íslendinga. Hér má sjá sjö mínútna kafla.

260
06:35

Vinsælt í flokknum Flugþjóðin