40 ár síðan Hlemmur var opnaður
Í dag eru fjörtíu ár síðan Hlemmur var opnaður. Í tilefni afmælisins blésu Mathöllin, Reykjavíkurborg og Strætó til veislu og ávarpaði Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, gesti sem héldu síðan í bíltúr með fyrsta strætisvagninum sem þjónustaði Hlemm. Vagninn var í notkun hjá Strætó frá árinu 1798 til 1985 og hefur hann verið í geymslu síðan.