„Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 11:03 Pressan er gríðarlega á Michael Carrick en hann segist hlakka til að stýra Manchester United í kvöld. AP/Ian Walton) Michael Carrick viðurkennir að það kunni að hljóma eins og hálfgerð klikkun en hinn umsetni stjóri Manchester United segist hlakka til uppgjörsins við Roma í Meistaradeildinni á Old Trafford í kvöld.
United fer inn í leikinn án sigurs í níu leikjum í öllum keppnum. Það er versta gengi liðsins síðan tímabilið 1988-89. Liðið hefur ekki leikið tíu leiki í röð án sigurs á einu tímabili síðan 1977-78 og sú tilfinning fer vaxandi að Carrick missi starfið í komandi landsleikjahléi. Eina tap Roma það sem af er tímabili kom á heimavelli gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í síðasta mánuði, þegar liðið var 3-1 yfir þegar sjö mínútur voru eftir. United er aftur á móti í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og eftir töp gegn Atletico Madrid og Como hefur liðið hrapað niður í 21. sæti stigatöflu Meistaradeildarinnar eftir þrjá leiki, en aðeins efstu 24 liðin komast áfram. Staðan er dökk, en í stað þess að hafa áhyggjur af því sem fram undan er lítur Carrick á þetta sem tækifæri til að snúa gangi tímabilsins við. „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður miðað við úrslitin sem við höfum fengið og það sem er í gangi, en í alvöru talað get ég hreinlega ekki beðið eftir leiknum. Ég hlakka mikið til,“ sagði Carrick. „Heyrðu, ég get ekki séð inn í framtíðina, maður veit aldrei hvað gerist. Það breytir ekki því hvernig mér líður. Það sem gerist mun gerast, í hvaða átt sem það fer, en við viljum gera morgundaginn [daginn í dag] að stóru kvöldi,“ sagði Carrick. Argentínski varnarmaðurinn Lisandro Martinez fékk rauða spjaldið gegn Chelsea og einhverjir hafa kallað eftir því að Martinez yrði settur út úr liðinu fyrir leikinn gegn Roma. „Hlutir gerast í fótbolta. Stundum gerir maður hluti; maður tekur ákvörðun, maður gerir mistök. Stundum gengur það vel,“ sagði Carrick. Hann vísaði einnig á bug áhyggjum bæði af skuldbindingu Martinez og alls leikmannahópsins. „Skynjun er skrýtið fyrirbæri. Hún getur látið hlutina líta út á alls konar ólíka vegu. Það er góður andi í búningsklefanum,“ sagði Carrick. „Ég hef sagt það áður, ég efast ekki um skuldbindingu og hollustu leikmannanna gagnvart félaginu, mér og hver öðrum. Við þurfum að spila betur. Við getum tekið betri ákvarðanir. En hollustan er alls ekki vandamálið,“ sagði Carrick. Leikur Manchester United og Roma hefst klukkan 20.00 en bein útsending á Sýn Sport Viaplay hefst klukkan 19.50.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester United Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira