Manchester United

Manchester United

Fréttir af enska fótboltaliðinu Manchester United.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna

Manchester United hefur samið við Chelsea um kaup á brasilíska miðjumanninum Andrey Santos fyrir 50 milljónir punda, samkvæmt frétt The Athletic í dag. Því eru tveir brasilískir miðjumenn á leið til félagsins en einn nýfarinn.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ó­vissa er um fram­tíð Rashford

Mikil óvissa er um framtíð Marcus Rashford sem er eins og er leikmaður Manchester United. Enska félagið hefur ekki verið duglegt á félagsskiptamarkaðnum það sem af er sumri.

Fótbolti
Fréttamynd

Amorim tekur við AC Milan

Rúben Amorim, fyrrverandi aðalþjálfari Manchester United, hefur samþykkt að verða næsti þjálfari ítalska stórveldisins AC Milan og mun formlega skrifa undir samning þess efnis í þessari viku.

Fótbolti
Fréttamynd

Keane og Fernandes grafa stríðs­öxina

Roy Keane og Bruno Fernandes, fyrrverandi og núverandi fyrirliði Manchester United, hafa náð sáttum. Þeir rifust opinberlega í vor, Keane kallaði Fernandes sjálfelskan en Portúgalinn sagði hann ljúga.

Enski boltinn
Fréttamynd

Þrír Arsenal-leik­menn til­nefndir sem leik­maður ársins

Declan Rice, Gabriel og David Raya úr Arsenal hafa allir verið tilnefndir til verðlauna Samtaka atvinnuknattspyrnumanna sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni en þeir eru á listanum ásamt Bruno Fernandes úr Manchester United og tvíeykinu Erling Haaland og Rayan Cherki úr Manchester City.

Enski boltinn
Fréttamynd

Bruno bætti metið eða hvað?

Bruno Fernandes, sem í gær var valinn besti leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni, virtist í dag hafa bætt stoðsendingametið á einni leiktíð í deildinni.

Enski boltinn
Fréttamynd

Fernandes valinn besti leik­maður tíma­bilsins

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hefur verið valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2025-26. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2011 sem leikmaður Manchester United fær þessa viðurkenningu.

Fótbolti