Enski boltinn

Rauna­mæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um

Valur Páll Eiríksson skrifar
Michael Carrick fylgdist raunamæddur með tapinu gegn Chelsea í dag.
Michael Carrick fylgdist raunamæddur með tapinu gegn Chelsea í dag. Getty/Adam Davy

Michael Carrick, stjóri Manchester United, reiknar með að vera áfram við stjórnvölinn þegar liðið mætir Roma í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn. Hann vildi lítið tjá sig um rauða spjaldið sem Lisandro Martínez fékk í 2-0 tapinu gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Carrick sagði margt jákvætt hafa verið í gangi í fyrri hálfleik enda skapaði United sér þá dauðafæri en eftir markalausan fyrri hálfleik var Chelsea mun beittara í seinni hálfleik og vann 2-0.

Klippa: Carrick niðurlútur eftir tap gegn Chelsea

Segja má að úrslitin hafi verið ráðin á 64. mínútu þegar Martínez fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt og Cole Palmer skoraði úr vítaspyrnunni sem dæmd var vegna brots Argentínumannsins.

„Við komumst ekki almennilega í gang í seinni hálfleik. Auðvitað hefðum við átt að vera yfir eftir fyrri hálfleik, mér fannst allt vera eins jákvætt og við gátum vonast eftir og við hefðum getað skapað fleiri færi með betri lokasendingum. Við litum mjög hættulega út og vorum á góðum stað þegar við fórum inn í hálfleik en fundum leið til að klúðra því í seinni hálfleik. Auðvitað slæmt mark að fá á sig og svo vítaspyrnan, og þá vorum við komnir í mjög erfiða stöðu á þeim tímapunkti, þannig að þetta snerist algjörlega við,“ sagði Carrick.

Hann tók ekki undir að sjálfstraustið væri vandamál og að menn hefðu hengt haus eftir fyrra mark Chelsea:

„Ég held að menn hangi ekki haus. Það er ekki hægt að fela þá staðreynd að við höfum ekki unnið nógu marga leiki. Strákarnir voru á góðum stað í byrjun og það sást á frammistöðunni á svo margan hátt. En þeir slógu fyrsta höggið í seinni hálfleik og að lokum réð það úrslitum,“ sagði Carrick.

En hvað fannst honum um vítaspyrnudóminn og rauða spjaldið?

„Ég hef ekki skoðað það, satt best að segja, þannig að ég hef ekki séð það,“ sagði Carrick en fannst honum Martínez bregðast honum með framgöngu sinni?

„Nei.“

Stuðningsmenn sungu nafn Carricks í lok leiks en aftur var baulað á leikmenn United. Carrick vonast hins vegar til að liðið geti byggt ofan á góðan fyrri hálfleik og segist reikna með að stýra liðinu gegn Roma á þriðjudaginn.

„Það eru miklar tilfinningar, við erum frábært knattspyrnufélag en við viljum vinna fótboltaleiki. Stuðningsmenn koma og eins og ég hef sagt margoft þá leggja þeir mikið á sig og borga mikla peninga til að koma og horfa á okkur spila. Það sást í dag að strákarnir voru í réttum gír. Hugurinn var á réttum stað en hlutirnir hafa fallið gegn okkur og þetta fór hratt úr böndunum. Þannig að það eru miklar tilfinningar í gangi núna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×