Innlent

Fóturinn tekinn af Glettu eftir að hún steig í minkagildru

Agnar Már Másson skrifar
Þessi ljósmynd var tekin í gær en nú er búið að fjarlægja eina loppuna af Glettu, villiketti sem býr hjá hjónum í Gufunesi, eftir að hún steig í minkagildru á svæðinu og hlaut varanlegan taugaskaða.
Þessi ljósmynd var tekin í gær en nú er búið að fjarlægja eina loppuna af Glettu, villiketti sem býr hjá hjónum í Gufunesi, eftir að hún steig í minkagildru á svæðinu og hlaut varanlegan taugaskaða. Samsett Mynd

Kisan Gletta er einum fæti fátækari eftir að hafa stigið í minkagildru fyrir utan atvinnuhúsnæði í Gufunesi. Annar köttur lenti í gildru á nákvæmlega sama stað fyrir rúmum tveimur árum, að sögn formanns Villikatta, sem segir að meindýraeyðir hafi nú verið kærður til MAST vegna málsins.

Ásdís Erla Valdórsdóttir hjá Villiköttum útskýrir í samtali við Vísi að tilkynning hafi borist um kött á dýraspítalanum Animalíu. Kötturinn hafi verið illa á sig kominn eftir að hafa fest fótinn í minkagildru.

„Hún er búin að vera föst í gildrunni í kannski tvo daga þegar hún finnst,“ segir hún um Glettu, sem sé villiköttur en búi þó hjá góðu fólki í Gufunesi.

„Hún var orðin það köld að það mældist ekki líkamshiti og hún búin að klóra af sér allar klærnar við að reyna að komast úr gildrunni.“

Ásdís segir ekki víst að Gletta hafi brotnað á beini þegar hún lenti í gildrunni, heldur hafi hún hlotið talsverðan taugaskaða við það að reyna að koma sér úr gildrunni auk þess sem hún hafi losað beinið úr lið í átökunum.

Fyrir vikið hafi þurft að taka af henni einn fótinn en hún Gletta gekkst undir aðgerð í dag. Nú er hún í sjúkrafóstri á vegum Villa og mun þurfa að vera í búri núna næstu vikur á meðan hún er að jafna sig, að sögn Ásísar.

„Hún er ágæt. Hún er verkstillt og fékk mjög góða þjónustu.“

„Heppni að þessar kisur lifi“

Það gerist ítrekað, að sögn Ásdísar, að kettir lendi í slíkum minkagildrum og þetta er ekki í fyrsta sinn sem köttur lendir í gildru á þessum stað. Greint var frá því árið 2022 að köttur hefði lent í minkagildru við smábátahöfnina í Reykjavík en gildar sem þar fannst var sögð ólögleg.

„Það var síðast í júní 2024 sem kisa lenti í gildru á nákvæmlega sama stað,“ segir hún. Sú kisa hafi verið föst í gildrunni svo dögum skipti og var fóturinn einnig fjarlægður af henni eftir að hún fannst.

Þessi kisa lenti í minkagildruá svæðinu í júní 2024.Villikettir

„Það eru fleiri tilfelli, þetta er ekkert bara á þessu svæði. Kisur eru að missa fæturna.“

Hún tekur fram að Villikettir bjóði sömuleiðis upp á fellibúr sem séu bæði notuð til að fanga ketti og minka án þess að skaða þá.

„Það er í rauninni bara heppni að þessar kisur lifi.“

Ásdís tekur fram að Villikettir séu í mjög góðu samstarfi við fyrirtækið þar sem þessi gildra var. „[Starfsmönnunum] líður alveg jafn illa. Það vill enginn sjá svona í vinnunni.“

Ekki við starfsmenn fyrirtækisins að sakast, heldur meindýraeyði sem hafi komið gildrunum fyrir og ekki fylgst nægilega vel með gildrunni.

Hjónin sem Gletta búi hjá hafi tilkynnt málið til Matvælastofnunar, Náttúruverndarstofnunar og heilbrigðiseftirlitsins.

Slíkar minkagildrur er að hægt að kaupa í verslun á Íslandi.

Ásdís segir að ólöglegt sé að koma slíkum gildrum fyrir á eins fjölmennum stöðum og Gufunesi, þar sem talsverður fjöldi gæludýra búi í Gufunesi og nágrenni. Engu að síður sé auðvelt að kaupa slíka gildru í verslun.

„Okkur var lofað að þetta yrði ekki sett upp aftur,“ heldur hún áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×