Erlent

Sagðir vilja fá Or­bán til að stýra Sam­einuðu þjóðunum

Kjartan Kjartansson skrifar
Viktor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, (f.m.) hefur orðið að einni helstu fyrirmynd bandarískra hægrimanna eins og J.D. Vance (t.v.) á undanförnum árum. Orbán rak stefnu sem hann kenndi við ófrjálslynt lýðræði. Hann beygði meðal annars frjálsa fjölmiðla og dómstóla landsins undir sig líkt og Trump (t.h.) hefur reynt að gera í valdatíð sinni.
Viktor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, (f.m.) hefur orðið að einni helstu fyrirmynd bandarískra hægrimanna eins og J.D. Vance (t.v.) á undanförnum árum. Orbán rak stefnu sem hann kenndi við ófrjálslynt lýðræði. Hann beygði meðal annars frjálsa fjölmiðla og dómstóla landsins undir sig líkt og Trump (t.h.) hefur reynt að gera í valdatíð sinni. Vísir/EPA

Bandaríkjastjórn er sögð hafa talað fyrir því að Viktor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkin, Kína og Rússland gætu náð saman um hann.

Ritstjórn Wall Street Journal, eins af flaggskipunum í fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch, sagði frá áhuga ríkisstjórnar Donalds Trump á að fá Orbán til þess að stýra Sameinuðu þjóðunum í leiðara sem birtist í gær.

Vísaði hún til heimildarmanna frá þremur löndum sem segðu að Trump-stjórnin hefði talað fyrir því að Orbán tæki við þegar Antonio Guterres, fráfarandi framkvæmdastjóri, hættir um áramótin. Fulltrúar Kína og Rússlands hefðu tekið jákvætt í það.

Orbán var helsti bandamaður Trump-stjórnarinnar og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í Evrópu þar til hann galt afhroð í þingkosningum fyrr á þessu ári. Innan Evrópusambandsins stóð hann í vegi refsiaðgerða gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu og gegn frekari stuðningi við Úkraínumenn.

Trump lýsti yfir stuðningi við Orbán fyrir þingkosningarnar og J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, ferðaðist til Ungverjalands til þess að taka þátt í kosningabaráttu ungverska bandamanns þeirra.

Hlálegt

Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, gaf lítið fyrir söguna um Orbán þegar hún var borin undir hann í dag.

„Fyrir ekki svo löngu átti hann að verða forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þetta virkar á mig jafn hlálegt og fyrri kjaftasagan,“ sagði Tusk, að sögn evrópska blaðsins Politico.

Sjö tilnefningar til framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna hafa þegar borist. Á meðal þeirra sem hafa verið tilnefndir er Rafael Grosso, argentínskur fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar, og Olara Otunnu, fyrrverandi utanríkisráðherra Úganda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×