Erlent

Tókst ekki moða miðjuna saman

Kjartan Kjartansson skrifar
Andreas Norlen, forseti sænska þingsins, tekur í hendi, og ermi, Elisabethar Thand Ringqvist, leiðtoga Miðflokksins, þegar þau hittust skömmu eftir þingkosningarnar í Svíþjóð 18. september.
Andreas Norlen, forseti sænska þingsins, tekur í hendi, og ermi, Elisabethar Thand Ringqvist, leiðtoga Miðflokksins, þegar þau hittust skömmu eftir þingkosningarnar í Svíþjóð 18. september. Vísir/EPA

Leiðtogi sænska Miðflokksins segir að ekki sé meirihluti á þingi til þess að mynda miðjustjórn. Miðflokkurinn fékk stjórnarmyndunarumboð í síðustu viku eftir að jafnaðarmönnum mistókst að mynda vinstrimeirihluta.

Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, gaf Andreasi Norlén, þingforseta, skýrslu um afrakstur af viðræðum hennar við leiðtoga annarra flokka í morgun. Norlén fól Ringqvist umboðið í síðustu viku en þá hafði hvorki gengið né rekið hjá Magdalenu Andersson, leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins, að mynda ríkisstjórn til vinstri.

Ringqvist sagði blaðamönnum í morgun að þó að meirihluti væri á þingi fyrir ýmsum miðjumálum þá væri stuðningur fyrir miðjustjórn ekki til staðar. Hún ítrekaði þó einnig þá skoðun sína að ekki væri umboð fyrir miðvinstri- eða vinstristjórn heldur.

Miðflokkur Ringqvist neitaði umleitunum Andersson eftir því að flokkarnir mynduðu ríkisstjórn með Vinstriflokknum. Hann var hins vegar tilbúinn að styðja minnihlutastjórn jafnaðarmanna einna.

Aðrir en hún þurfi að opna á fleiri möguleika

Ringqvist sagði í morgun að hún ætlaði að halda áfram að útiloka samstarf við Vinstriflokkurinn og Svíþjóðademókrata, hægri jaðarflokk, sömuleiðis. Aðrir flokkar þyrftu aftur á móti að endurskoða með hverjum þeir væru tilbúnir að vinna.

Um einn og hálfur mánuður er nú liðinn frá þingkosningunum. Þingið hefur þegar greitt atkvæði einu sinni um mögulega ríkisstjórn Jafnaðarmanna og hafnað henni. Mest er hægt að boða til slíkra atkvæðagreiðslna fjórum sinnum. Ef enginn ríkisstjórn nýtur meirihlutastuðnings í þeim þarf sjálfkrafa að boða til nýrra kosninga.

Þráteflið eftir kosningar flækir nú fjárlagagerð sænska ríkisins. Þingið þarf að samþykkja ný fjárlög fyrir 12. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×