Handbolti

Ómar Ingi og fé­lagar nálgast topp­sætið eftir sigur á Hauki

Andri Broddason skrifar
Ómar Ingi Magnússon var markahæsti leikmaður leiksins í dag.
Ómar Ingi Magnússon var markahæsti leikmaður leiksins í dag. Getty/Igor Kralj

Magdeburg hafði betur í Íslendingaslagnum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta þegar liðið heimsótti Rhein-Neckar Löwen. Leikurinn endaði 31-23 og kom sigurinn Magdeburg í annað sæti þýsku úrvalsdeildarinnar, einu stigi frá Kiel sem er búið að spila einum leik meira.

Leikurinn var gríðarlega jafn til að byrja með en þegar leið á seinni hálfleikinn náðu gestirnir í Magdeburg að vinna sér inn forystu. Í hálfleik voru gestirnir komnir í fjögurra marka forystu þar sem staðan var 12-16.

Heimamenn í Löwen náðu fljótlega að jafna metin í seinni hálfleik og hélt leikurinn áfram að vera jafn. Eftir því sem leið á seinni hálfleikinn náðu þó gestirnir í Magdeburg aftur að ná forskoti og náðu loks að halda því til loka leiks.

Ómar Ingi Magnússon var markahæsti leikmaður Magdeburg með sjö mörk en félagi hans Gísli Þorgeir Kristjánsson náði að skora sex mörk úr aðeins sex skotum. Liðsfélagi þeirra, Elvar Örn Jónsson, var mikilvægur hlekkur í vörn liðsins ásamt því að gefa stoðsendingu.

Haukur Þrastarson náði ekki að nýta færin sín nógu vel fyrir Löwen en hann var aðeins með 44 prósent nýtingu. Hann skoraði þó fjögur mörk og var næstmarkahæstur í liðinu á eftir Jannick Kohlbacher sem skoraði sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×