Viðskipti innlent

Stjórnar­laun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun

Árni Sæberg skrifar
Miðgildi árslauna stjórnarformanna í skráðum félögum nam 12,7 milljónum króna.
Miðgildi árslauna stjórnarformanna í skráðum félögum nam 12,7 milljónum króna. Getty/Howard Kings

Miðgildi árslauna stjórnarformanna hjá íslenskum fyrirtækjum hækkaði um tæp 16 prósent á milli 2024 og 2025. Á sama tímabili hækkaði launavísitala allra launa um 9,1 prósent. Laun stjórnarformanna lífeyrissjóða hækkuðu um 35 prósent á tímabilinu.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri samantekt PwC og Attentus á stjórnarlaunum og launum forstjóra.

Þar segir að á tímabilinu 2023 til 2025 hafi laun stjórnarformanna hækkað um 24 prósent. Hæstu stjórnarlaunin hafi verið hjá skráðum félögum, þar sem miðgildið hafi numið 12,7 milljónum króna árið 2025. Mest hafi hækkunin verið hjá stjórnarformönnum lífeyrissjóða, eða um 35 prósent.

Í skýrslunni er einnig fjallað um samsetningu stjórna og launamun á milli skráðra félaga, ríkisfyrirtækja og lífeyrissjóða. Kynjahlutfall stjórnarmanna sé nokkuð jafnt, en konur séu aðeins 13 prósent stjórnarformanna hjá skráðum félögum, á móti 50 prósentum hjá ríkisfyrirtækjum og 36 hjá lífeyrissjóðum.

Könnun meðal stjórnarformanna og stjórnenda sýni að 85 prósent þeirra telji þekkingu á markaði skipta mestu fyrir stjórnarstörf. Gervigreind og tækninýjungar skeri sig jafnframt úr þegar spurt er um helstu áskoranir stjórna næstu fimm árin en 70 prósent, hafi nefnt þessa þætti.

Í skýrslunni er jafnframt fjallað um þróun stjórnarlauna og launa forstjóra, laun undirnefnda stjórna, samsetningu stjórna, samanburð við önnur Norðurlönd og viðhorf stjórnenda og stjórnarformanna til stjórnarstarfa og helstu áskorana framundan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×