Skoðun

Ríkis­út­varpið og hlut­verk þess

Freyja Þórisdóttir skrifar

Ragga Jóns skrifaði á facebook:

"Hlemmur er ein af þessum heimildamyndum sem hefur lifað í mér öll þessi ár. Ég veit eiginlega ekki hversu oft ég hef séð hana, það hleypur á tugi skipta. Og hún hreyfir alltaf jafn mikið við manni.

Aðsend

Að mínu mati er þetta ein besta íslenska heimildamynd sem gerð hefur verið. Það er eitthvað einstakt við hvernig hún fangar mannlífið á Hlemmi og gerir lífi og örlögum fólksins sem þar dvaldi skil, af einlægni, næmni og virðingu. Fólk sem samfélagið hunsaði gjarnan fær þar bæði rödd og rými. Myndin er líka heimild um tíma sem er sannarlega liðinn. Miðbærinn er gjörbreyttur, ekki aðeins mannlífið sjálft heldur líka hvað varðar aðstöðu fyrir almenning.

Það verður aukasýning á Hlemmi í Bíó Paradís laugardaginn 24. október klukkan 17:00. Ég mæli innilega með Hlemmi, hvort sem þið hafið séð hana áður eða ekki."

Það var samfélag á Hlemmi sem fáir sáu, eða vildu sjá, ekki einu sinni þeir sem að komu þar daglega til að skipta um strætó. Það voru hinir hrjáðu og smáðu sem héldu þar til, óhreinu börnin hennar Evu sem voru ósýnileg venjulegu fólki þó þau blöstu við öllum sem voru raunverulega tilbúnir til að opna augun og horfa fordómalaust á umhverfi sitt. Hlemmur, með frumsaminni tónlist Sigur Rósar, vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd 2002, fyrst í bíó og síðar Sjónvarpinu og er fyrir löngu orðin klassík. En hún er líka költmynd sem kynslóð eftir kynslóð af ungu fólki um og yfir tvítugt hefur uppgötvað, horft á og breytt sýn þeirra á lífið.

Það ætti að vera umhugsunarefni að það væri gersamlega útilokað að fjármagna mynd eins og Hlemm í dag með þátttöku Sjónvarpsins eða selja hana þangað til sýninga. Þá var Rúnar Gunnarsson dagskrárstjóri, einn af gömlu jöxlunum sem hafði unnið lengi í Sjónvarpinu sem kunni að meta þegar menn tóku áhættu í því sem þeir voru að gera og tók sénsinn á að kaupa tvær myndir af mér, nýútskrifuðum kvikmyndagerðarmanninum, um tvö fyrirbæri sem voru tabú á þeim tíma, um braggabyggðina í Reykjavík og íbúa hennar og fastagesti stærstu strætóstoppistöðvar höfuðborgarsvæðisins Hlemm. Hvorug virtist líkleg til að auka orðspor hans eða Sjónvarpsins, hvað þá vera líklegar til vinsælda, enda viðfangsefnin eitthvað sem þjóðin skammaðist sín fyrir og forðaðist að horfast í augu við. En báðar vöktu þær mikla athygli þegar þær voru sýndar og eru 25 árum síðar ómetanlegar heimildir um mannlífið á mismunandi tímum í Reykjavík. Og kannski lagði Rúnar í að kaupa þær óséðar vegna þess að hann er sjálfur mjög góður götuljósmyndari sem hefur áhuga á venjulegu fólki og örlögum þess sem oft er hægt að lesa úr vel heppnuðum ljósmyndum af fólki og umhverfi þess teknum á almannafæri. En trúlega vegna þess líka að þeir sem að þá réðu ríkjum í Sjónvarpinu gerðu sér grein fyrir mikilvægi þess að kaupa og sýna innlendar heimildamyndir sem voru líklegar til að vekja lifandi og mótsagakennda umræðu í samfélaginu. Það fólk sem nú ræður ríkjum í Ríkisútvarpinu og Sjónvarpinu skortir hinsvegar algerlega slíka sýn, bæði á örlög einstaklinga og þjóðfélagshópa og það sem skiptir ekki minna máli, örlögum lands og þjóðar.

Ríkisfjölmiðill í almannaeigu ætti ávallt að fjalla á vandaðan og umfram allt gagnrýnin hátt um það sem stjórnvöld gera hverju sinni, sama hvaða flokkar eru við völd. Og ekki aðeins stjórnvöld, heldur líka það sem valdamiklir einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki taka sér fyrir hendur. Ríkisútvarpið ætti umfram allt að bera hag eigenda sinna, almennings, fyrir brjósti í dagskrá sinni og stuðla að upplýstri umræðu um mikilvæg og umdeild mál auk þess að sjá fyrir afþreyingu. Það er forsendan fyrir lýðræðislegri umræðu og upplýstri ákvarðanatöku. Síðustu áratugina hafa umhverfismál verið eitt helsta deiluefnið í samfélaginu því náttúra sem hefur verið eyðilögð í nafni framfara og fjárhagslegs ábata, sem erlend stórfyrirtæki hafa nánast eingöngu notið, er glötuð að eilífu. Nánast allir Íslendingar eru sammála um að náttúran, ásamt tungumálinu og bókmenntunum, sé mesta verðmætið sem íslensk þjóð á og helst beri að vernda.

Aðsend

Stærsta, umdeildasta og dýrasta framkvæmd íslandssögunnar var Kárahnjúkavirkjun. Áhrifasvæði hennar, sem sárafáir þekktu og haldið var vísvitandi frá almenningi, var eitt helsta undur íslenkrar náttúru og gaf náttúruperlum eins og Þingvöllum, Torfajökulssvæðinu, Mývatni, Skaftafelli, Öskju og Jökulsárgljúfrum, sem þykir sjálfsagt að vernda, ekkert eftir, en var stærra og fjölbreyttara en flest þeirra og sameinaði á einstakan hátt stórbrotið landslag, gróskukmikinn gróður og fjölbreytt dýralíf. Deilurnar um Kárahnjúkavirkjun voru hatrammar og tilfinningahlaðnar. Virkjanasinnar og náttúruverndarsinnar voru í skotgröfum þar sem viljinn til að sýna sannfæringum mótaðilans skilning var vart til staðar. Umfjöllun fjölmiðla var einsleit, þar sem sjónarmið virkjanasinna og þar með yfirvalda fengu mun meiri hljómgrunn en sjónarmið en virkjanaandstæðinga. Sjónvarpið brást algerlega hlutleysishlutverki sínu með því að kaupa og sýna níu sjónvarpsþætti af Sagafilm um byggingu Kárahnjúkavirkjunar, sem Landsvirkjun fjármagnaði. Þetta voru áróðursþættir, vissulega ágætlega gerðir, en minntu helst á áróðursmyndir frá ráðstjórnarríkjunum um ágæti uppbygginar stóriðju á stalíntímanum sem olli meiri mengun og umhverfisslysum en dæmi eru um.

Á næsta ári eru 20 ár síðan Kárahnjúkavirkjun og álver Alcoa í Reyðarfirði voru tekin í notkun. Maður hefði ætlað að nú væri tækifæri til að skoða á öfgalausan hátt hvort það hafi verið „gengið til góðs götuna fram eftir veg“, svo vitnað sé í Jónas Hall., með byggingu hennar. Það væri umfram allt mikilvægt að sýna almenningi hvernig áhrifasvæði virkjunarinnar, sem nánast enginn þekkti, leit út áður en byrjað var að byggja hana og hvernig það lítur út núna, svo almenningur geti myndað sér skoðun um hvort það sé eftirsjá af því eða ekki. Best væri ef góð heimildmynd væri til sem sýndi það og fjallaði á öfgalausan hátt um helstu álitamálin sem að tengdust byggingu hennar sem að Sjónvarpið sýndi. Það væri mikilvægt innlegg í lýðræðisumræðu, nú þegar það gagnaver eiga að spretta upp út um allt land eins og gorkúlur, knúðar af vindmyllum.

Slík mynd er til og heitir „Horfinn heimur“ 93 mínútna löng og höfundur hennar er sá sem að skrifar þessa grein. Pétur Gunnarsson rithöfundur sá hana og skrifaði:

„Stórkostleg upplifun blandin fegurð og trega og sárum, djúpum harmi.“

Það fólk sem nú ræður ríkjum í Sjónvarpinu neitaði að kaupa hana á þeirri forsendu að það væru ekki til pengingar til að sýna hana. Á sama tíma voru beinar útsendingar frá heimsmeistarkeppni í fótbolta karla, evrópukeppnum í frjálsum íþróttum, sundi og fimleikum, heimsmeistarkeppni kvenna í körfubolta og nú síðast í heimsmeistarakeppni í fimleikum. Með öðrum orðum það er til yfirdrifinn nógur peningur hjá Sjónvarpinu, bara ekki fyrir því sem skiptir íslenska þjóð raunverulega máli.

Höfundur er kvikmyndagerðarmaður.




Skoðun

Sjá meira


×